8.11.2007 | 20:47
Ljós fyrir Gillí.
Kæru vinir.
.
Kveikjum ljós fyrir elsku Gillí okkar, sem lést í morgun.
.
Elsku Palli og synir, Elli, Gerða, systkini og fjölskyldur.
Fjölskylda mín sendir innilegustu samúðarkveðjur.
.
.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 22:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
7.11.2007 | 16:44
Skilaboðaskjóðan.
Öll þurfum við ást og hlýju í lífinu. Mest þurfum við á því að halda þegar okkur líður illa eða erum veik. Ég hef verið í sambandi við fjölskyldu Gillíar og talaði síðast við bróður hennar í morgun. Ástand hennar er að mestu óbreytt síðan á laugardag. Eins og fram kom á bloggsíðu Gillíar, má gjarnan senda henni kveðjur og kort. Það er líka hægt að skrifa henni hérna og það verður lesið fyrir hana. Endilega leggið ykkar af mörkum til að hlýja henni aðeins um hjartað.
.
4.11.2007 | 11:27
Væntumþykjupistill.
.
Ég hef oft sagt að systkinin í Dal séu meira eins og systkini mín en frændfólk, enda ekki nema 3 kílómetrar á milli æskuheimila okkar og samgangur nokkuð mikill.
Í Dal bjuggu amma og afi okkar allra. Afi gaf okkur stundum í nefið (ekkert svo oft en það er bara svo gaman að segja frá því) en amma gaf okkur eitthvað gott að borða, spilaði við okkur og kenndi okkur bænirnar.
Gillí er elst af okkur. Við litum upp til hennar. Rósa, Halldór, Þorgeir og ég erum öll á sama aldri. Egill og Helga voru svo litlu börnin.... en eru það reyndar ekki lengur. Egill er meira að segja orðinn doktor .....
.... kannski skrifað með stóru Déi ?
.
Við krakkarnir lékum okkur í bílaleik og dúkkuleik, feluleik, "búó" og draugaleik. Við áttum líka horn, leggi og kjálkabein og gátum því verið stórbændur ef okkur bauð svo við að horfa. Þegar Rósa lærði að lesa, lærði ég að lesa. Þegar Rósa lærði að prjóna, lærði ég að prjóna. Þegar Halldór lærði að hjóla, lærði ég að hjóla.
Einfalt kerfi og skilvirkt.
Við fundum út svör við gátum lífsins í sameiningu: "Verður Helga systir Jesú þegar hún verður stór" ? var ein af stóru spurningunum sem ég man eftir að hafa borið fram. Helga er nefnilega fædd á Jóladag og því fannst mér nokkuð sjálfsagt að hún tæki við hlutverki Jesú þegar hún hefði aldur til.
.
Síðar, þegar við urðum unglingar, leigðum við saman um tíma. Þá var oft mikið gaman og alltaf kom okkur vel saman. Halldór er langskemmtilegasti sambýlismaður sem ég hef haft. Við hlógum einu sinni í gegnum alla Hagkaupsbúðina vegna þess að hann hafði sprautað sjampói upp í nefið á sér þegar hann ætlaði bara að finna lyktina.....og þegar við Halldór hlægjum saman... þá smitum við hvort annað og getum illa hætt.... hreinlega grátum úr hlátri.
.
Árið 2000 varð Golfklúbbur Guttorms tudda til. Það er félagsskapur gamalla Miklhreppinga og áhangenda þeirra sem eiga reglulega saman góða stund við golf á sumrin en á veturna er keppt í ýmsum íþróttum, s.s. keilu, billjard, pílukasti, félagsvist, skák og badminton. Drifkraftarnir í Guttormi eru Gillí og Þorgeir. Það er alveg frábært að slá tvær flugur í einu höggi; hitta gamla vini og leika sér með þeim í leiðinni.
.
Gillí hef ég kynnst á annan hátt á blogginu.... betur en áður. Það er henni að þakka að ég byrjaði að blogga, því hún hvatti alla vini og vandamenn sem blogguðu, til að segja sér frá því. Þá var hugmyndinni sáð hjá mér - að kannski væri þetta eitthvað sem ég gæti gert. Gillí er ótrúlega magnaður karakter og það vita allir þeir sem hafa fylgst með henni hérna á blogginu.
.
Elli er mikill húmoristi og við getum alltaf hlegið saman þegar við hittumst. Við Gerða unnum saman í heilt ár og samdi alveg rosalega vel. Hún er svo dugleg og létt og kát að það er ekki hægt annað.
.
Í sumar fórum við svo í yndislega Barcelonaferð; Gillí, Palli, Kári og Ásgeir, Halldór og Denna, Egill og Ragna, Þorgeir og Sif og ég og Brynjar..... ferð sem batt enn frekar fjölskylduböndin.
.
Ég vissi ekki, þegar ég byrjaði að blogga, hvað kæmi út úr því.... en ég er að reyna að segja fjölskyldunni í Dal hvað mér þykir vænt um þau öll.
.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 13:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
1.11.2007 | 18:47
Gillí.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 21:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
30.10.2007 | 17:51
Álfkonan í töfralampanum.
.
.
Ég bloggaði fyrir stuttu um töfralampann.... sem ég skírði því nafni um leið og færslan varð til. Þegar myndin af lampanum birtist á skjánum, tók ég eftir andliti neðst á honum... sem ég hafði aldrei séð fyrr. Andliti sem líkist álfkonu, finnst mér, með hjartalaga umgjörð.
Þegar horft er á lampann sjálfan... er ekki nokkur leið að sjá þetta andlit !
Þetta er frekar dularfullt.... það býr álfkona í lampanum mínum.
Skyldi Aladín vita af þessu ?
Ætti ég að gefa henni að borða ?
.
28.10.2007 | 15:47
Djúpt blogg.
.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 17:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
28.10.2007 | 12:47
Töfralampinn.
Ég er undarleg... af konu að vera. Mér finnast verslunarferðir ekki skemmtilegar.
Þegar það kemur fyrir að mig langar í eitthvað, hugsa ég með mér: "Vantar mig þetta"?
Ef svarið er nei, læt ég það yfirleitt eiga sig.
Þó eru undantekningar á þessu, eins og flestu öðru.
Fyrir þremur árum fór ég í verslunina að Sólheimum í Grímsnesi.
Gekk inn með hálfum huga og horfði áhugalaus í kringum mig.
Sé ég þá lampa einn, gullfallegan.....horfi á hann dágóða stund og fyllist aðdáun.
Ég hugsa með mér: "Mig vantar þetta ekki" og geng í burtu.
Við útidyrnar sný ég við, geng aftur að lampanum og horfi á hann enn um stund.
Sé að hann kostar átta þúsund, hugsa mig um lengi, lengi, tek hann og geng í átt að kassanum.
Segi svo við sjálfa mig: "Nei Anna, þig vantar þetta ekki" ...geng hægum skrefum með lampann til baka og skila honum á sinn stað.
.
Það er bara eins og lampaskrípið hafi aðdráttarafl sem ég ræð ekki við.
Við útidyrnar sný ég við, enn einu sinni, hálf hleyp að honum, skíthrædd um að einhver verði á undan mér.
Hrifsa hann til mín og held fast.
Hann varð minn.
.
.
.
Þessi lampi er búinn til af vistmönnum á Sólheimum og mér þykir eins vænt um hann og hægt er að þykja um veraldlega hluti. Töfralampinn.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 15:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
27.10.2007 | 21:48
Í njólann fyrir jólin.
Mínir virtustu bloggvinir þekkja þennan:
.
.
Rétt til getið.... þetta er hinn íðilfagri Njóli. Jeminn, hvað ég er stolt af honum.
.
Meðan aðrar plöntur eru fölar og óhrjálegar, er hann sífellt upp á sitt besta.
Á Hawai, hef ég heyrt að stelpurnar geri sér strápils.
Strá ! Eins og það sé eitthvert hald í því.
Nei........njólapils er það sem koma skal. Pils sem endist og endist og endist.
.
Í njólann fyrir jólin !!
Spil og leikir | Breytt 28.10.2007 kl. 00:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
27.10.2007 | 11:28
Áskorun.
Ég skora hér með á Morgunblaðið að hætta nú þegar myndbirtingum af vettvangi banaslysa í umferðinni. Slík myndbirting er með öllu óþörf og eingöngu til þess fallin að særa aðstandendur þeirra sem þannig látast eða slasast.
.
Vinsamlega birtið sem víðast kæru bloggvinir
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 12:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Um bloggið
Sparisjóður grínista og nágrennis.
Eldri færslur
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.7.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 343468
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Gíslína Erlendsdóttir
-
Brattur
-
Ragnheiður
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Hugarfluga
-
Halldór Egill Guðnason
-
Sæmundur Bjarnason
-
Brjánn Guðjónsson
-
Gulli litli
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Marinó G. Njálsson
-
Svanur Gísli Þorkelsson
-
Þorsteinn Sverrisson
-
Árni Gunnarsson
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Finnur Bárðarson
-
Bjarni Harðarson
-
Ingibjörg Hinriksdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Guðni Már Henningsson
-
Íris Guðmundsdóttir
-
Edda Agnarsdóttir
-
Rannveig Guðmundsdóttir
-
Kristjana Bjarnadóttir
-
Erna Bjarnadóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
-
Haraldur Sigurðsson
-
Ásgeir Kristinn Lárusson
-
Daði Ingólfsson
-
Óskar Þorkelsson
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Egill Bjarnason
-
Sigurður Grétar Guðmundsson
-
Kát Svínleifs
-
Einar Indriðason
-
arnar valgeirsson
-
Kama Sutra
-
hilmar jónsson
-
Eiður Svanberg Guðnason
-
AK-72
-
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
-
Dísa Dóra
-
Sigurður Einarsson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Jóhannes Guðnason
-
Brynjar Jóhannsson
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Magga tagga
-
Fanney Björg Karlsdóttir
-
Tófulöpp
-
Valgeir Skagfjörð
-
kop
-
Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
-
Björgvin R. Leifsson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Svanhildur Karlsdóttir
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Aprílrós
-
Guðrún Björk
-
Guðmundur Óli Scheving
-
Helgi Jóhann Hauksson
-
Katan
-
Páll Rúnar Elíson
-
Þórir Aðalsteinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Kristín Snorradóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Gunnar Níelsson
-
Jón Ólafur Vilhjálmsson
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Bjarni Sæmundsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Þórdís tinna
-
Eva Hrönn Jóhannsdóttir
-
Jóhannes Freyr Stefánsson
-
kloi
-
Bjarndís Helena Mitchell
-
Ragnar Gunnarsson
-
Brynja skordal
-
Vefritid
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Árelía Eydís Guðmundsdóttir
-
Garún
-
Hörður B Hjartarson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði