Þetta er ekkert grín sko.

 

Ég hef aðeins orðið vör við að það eru ýmsir að misskilja heiti síðunnar;  "Sparisjóður grínista og nágrennis".   Þá er ég að tala um fólk sem álpast hingað inn einu sinni í þeirri trú að þetta sé einhver brandarasíða. 

NOT !  Pouty

Fyrir þá sem ekki vita, nefndi ég síðuna þessu nafni til að fólk sem stundaði það að stelast til að lesa mig í vinnunni, gæti hent glugganum niður ef yfirmaðurinn birtist og þá stendur á flipanum neðst Sparisjóður ....

Hva........ fólk má nú kíkja á bankann sinn.  Joyful

Fullkomlega löglegt en kannski með því siðlausara sem ég hef gert.  Blush

.

Embarrassed%20chimpanzee_Tim%20Davis

.

 

 


Atjúúúú.

 

Þetta er snilld.  LoL

.

Í þessari rannsókn er tekinn einn miðaldra karlmaður, þrælkvefaður.

Það kemur í ljós að hann hugsar stöðugt um kynlíf.

Niðurstaða;  Tengsl milli þess að hnerra og hugsa um kynlíf.    

Atjúúúú.  W00t

.

flu 

.


mbl.is Hnerrandi kynlíf?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég spyr....

 

....... hver spurði fyrstu spurningarinnar sem spurð var á þessari jörðu ?

.

question_mark 

.


Ég fékk útblástur fyrir vildarpunkta.

 

Þessi færsla er mín fyrsta í flokknum "umhverfismál".

Þannig háttaði til að ég og mín fjölskylda nutum lífsins á Hótel Loftleiðum nú um helgina, fyrir vildarpunkta eingöngu.  Þetta er orðin hefð.  Fjórða árið í röð sem við förum til Reykjavíkurhrepps um miðjan desember til að tjilla og eyða vildarpunktunum. 

Jæja.  Við fórum og skoðuðum mannlífið í verslunum og litum við í kvikmyndahúsi einu.

Um kvöldið fórum við heim á hótel.  Sjáum við þá í lyftunni viðvörun á tíu tungumálum; 

"Varað er við stormi í nótt.  Vinsamlegast lokið gluggunum".

Við náttúrulega brostum í kampinn, vitandi það ósköp vel að veðurspáin hljóðaði upp á bongóblíðu og ekkert annað.  Smile   Galopnuðum gluggann og lögðumst til svefns.

Klukkan 9 í morgun vöknuðum við, við ógnarhávaða.  Drrrrunn, drrrrunn.  Flugvélarnar þöndu vélarnar eins og þær væru að fara í spyrnu.  Ekki viðlit að sofa lengur.  Allt í góðu með það því morgunstund gefur gull, ergelsi og pirru, eins og þeir segja Spaugstofumenn.  Joyful

Örstuttri stundu síðar fyllist herbergið af flugvélaútblæstri.  Hóst hóst.  Hreinasti mökkur !  Ég lít út og sé að flugvélarnar eru að þenja sig með afturendann alveg við andlitið á mér.  Crying

.

mengun 

.

Nú fer að þykkna upp.  Ekki bara á himni heldur líka svona inni í mér.  Ég hringi niður í afgreiðslu og bið konuna vinsamlegast að koma aðeins upp á herbergi.

Þegar hún gengur inn bið ég hana að þefa.   Hún segir þá;  "Já, þetta er alveg eins niðri hjá okkur" og svo segir hún "þetta er mengunin í Reykjavík".  Shocking

Við erum nú ósköp sveitó en.......... mengunin í Reykjavík ?

Nú spyr ég og vil fá hlutlaust svar;  Lít ég út fyrir að vera heimsk ?  Blush

 


Ég og aðrir sauðir.

 

Hafið þið pælt í því ?  Það er bara ALLTAF föstudagur.  Gasp

Jú ok, einstaka sinnum er mánudagur en svo,  strax aftur, er kominn föstudagur.

Mér finnst þetta merkilegt.

Og máltækið "föstudagur til fjár".   Þeir hljóta að hafa meint sauðfé þar.  FootinMouth

.

saudir_300303 

.

Þegar ég hugsa aðeins dýpra, man ég máltækið "mánudagur til mæðu".  Þá var alveg pottþétt verið að tala um mæðuveikt sauðfé.

.

Eftir því sem ég eldist, verð ég vitrari.  Cool


FM 101,3 Óðal

 

Vantar einhvern að komast í jólaskap ?

Grunnskólakrakkarnir í Borgarnesi senda út jólaútvarp í eina viku á ári...... þessa viku.

Hægt er að komast inn á útsendingu hér;  http://odal.borgarbyggd.is/

Þar eru spiluð jólalög, tekin viðtöl við fólk og meira að segja sagðar fréttir og veðurfréttir.  Smile

Í augnablikinu eru þau með beina útsendingu frá leik Skallagríms og Vals í körfuknattleik.

.

jolautvarp 

.

Veðrið er að versna.  45 metrar undir Hafnarfjalli.

Endalaust gott kúr-veður.  Happy 

Ég ætla að chilla í kvöld.  Whistling

.


Þessi er heillandi.

 

Uppákoma í útvarpi.

 

Á Bylgjunni í gær var þáttur, þar sem fólki gafst kostur á að hringja inn, spjalla og biðja um óskalög.

Inn hringdi maður í fínu skapi.  Hann sagði að þau hjón væru bara tvö heima, að skreyta fyrir jólin með kertaljós og kósý.  Heart

.

couple 

.

Eftir nokkurt spjall spurði þáttastjórnandinn hvaða lag mætti bjóða honum að hlusta á ?

Maðurinn valdi jólalag en þá heyrðist hvell rödd konunnar fyrir aftan hann;

Nei !  Ég vil ekki þetta lag.  GetLost   Það er ömurlegt.  W00t

Maðurinn varð víst hálfvandræðalegur því þessi uppákoma stemmdi illa við lýsingu hans á notalegheitunum heima.

Hann sagði;  "Þú sérð hver ræður á heimilinu".  Blush

 

 


Soðið rauðkál með eplum.

 

Þar sem ég veit að lesendahópur minn samanstendur af hagsýnum húsforeldrum,  dembi ég á ykkur einni gómsætri uppskrift;  Wink

salat_raudkal_eplum 

.

350 g niðursneitt rauðkál (1/2 meðalstór haus)
1 epli, grænt
1 rauðlaukur
2 msk. olía
100 ml hindberjasulta (eða önnur sulta)
100 ml epla- eða rauðvínsedik
2 msk púðursykur (meira eftir smekk)
1/4 tsk. kanell (má sleppa)
pipar
salt
.

Soðið rauðkál með eplum

Rauðkálið skorið í mjóar ræmur (ef ekki er notað tilbúið hátíðarauðkál úr poka). Eplið flysjað, kjarnhreinsað og skorið í litla bita. Laukurinn saxaður smátt. Olían hituð í potti og laukurinn látinn krauma í henni í nokkrar mínútur við fremur vægan hita. Þá er rauðkáli og epli bætt út í, hrært vel og látið krauma smástund. Sultu, ediki, púðursykri, kanel, pipar og salti hrært saman við og látið malla við hægan hita undir loki í um 45 mínútur. Hrært öðru hverju og svolitlu vatni bætt við ef þarf. Smakkað og e.t.v. bragðbætt með sykri eða ediki eftir smekk.
.
.
Þess má geta að rauðkál verður ávöxtur vikunnar í Samkaupsverslunum n.k. fimmtudag og fram yfir helgi.  Sparið 50%  og eyðið gróðanum svo í vitleysu.  Hvað er skemmtilegra en að græða í kreppu ?  Whistling

Ferlega góð limra :-)

 

.

Þegar Steinn var að yrkja til Stínu
öll stefin úr hjarta sínu,
    þá varð honum það
    til þrautar að
hann þurfti að minnast á svo miklu
fleira í lokin en nokkurt viðlit var að segja í síðustu línu.

Höfundur; Hrólfur Sveinsson. 

.

love-is-in-the-air 

.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband