Færsluflokkur: Spil og leikir

Lesendur opna sig.

 

Nú hefst þátturinn "Lesendur opna sig".

Þeim sem enn álpast inn á bloggið mitt, gefst nú kostur á sjálfsskoðun eða naflaskoðun.

.

paa032000030 

.

Í fyrsta þætti tökum við fyrir kosti og lesti.

.

Spurt er;  Hver er þinn stærsti kostur ?

Og í annan stað en samt á sama stað er spurt;  Hver er þinn mesti löstur ?

.

Þar sem þátturinn er enn í burðarliðnum, er ekki ljóst hvað gert verður við upplýsingarnar.

Hugsanlega verður þó boðin aðstoð.

Hvur veit ?  FootinMouth

.

Ég ríð á vaðið - hestlaus.

Minn stærsti kostur er hvað ég er skrambi góð.  Halo

Minn helsti löstur er agaleg óþolinmæði.  Frown 

Þorir einhver ? 

 

 


Sjáumst í Kaupfélaginu.

 

Í hádeginu á kassa ég sat
meðan hin afgreiðslukonan fór heim í mat
þá kom til mín kona
og sagði sísvona;
"ég er með undarlega spurningu en heitir þú Anna,
ertu þessi á blogginu eða hverra ertu manna"?

 

Ég horfði á hana með augun svo tóm,
hún var mér ókunnug...  gat verið frá Róm !
en þá kom í ljós
sá draumur í dós
að þetta var bloggvinkonan mín,  hún Auður
og ekki í fyrsta sinn sem að ég er mikill sauður.  Whistling

WhistlingWhistlingWhistling

 

 

.

Gaman að sjá þig Auður.  Smile

Sjáumst í Kaupfélaginu !

.

efra_pakkhus 

.


Til þín og þinna.

 

Heill sé þér og þínum

þá einnig mér og mínum

þegar þú og þínir

næst hitta mig og mína,

megi gestrisni mín og minna

jafnast á við þá sem þú og þínir

hafa sýnt mér og mínum

í dag.

 

hesturI

.

 


Föstudagurinn tuttugastiogsjöundi.

Föstudagurinn tuttugastiogsjöundi;

.

Í morgun arkaði ég í vinnuna og steig í þann eina poll sem var á gólfinu.  Afleiðingin var sú að ég hefði farið í splitt, hefði ég getað það.  Pouty   Fæturnir fóru semsagt út um allt og ekki í sömu átt.   Þrátt fyrir jákvæðan vilja get ég ekki sagt að tilburðir mínir hafi verið tignarlegir.   Sennilega var byltan í hallærislegra lagi þótt ég segi sjálf frá.   En ómeidd er ég.

Síðan gerist það í hádeginu að ég sest upp í minn sífellt verðmeiri bíl en hann er að hluta til fjármagnaður með frekar alþjóðlegum hætti .... og keyri af stað.  Sól var í heiði og líka hjá mér svo ég opna gluggann.  Skyndilega svínar bíll fyrir mig svo ég stöðva minn eðalvagn snöggt og ákveðið.  Joyful   Vill þá ekki betur til en svo að íshröngl sem safnast hafði á þak bílsins losnar og með einhverjum ótrúlegum hætti kom það allt inn um gluggann.  Þarna sat ég því með heilu ísklumpana í fanginu.   How cool is that ?

.

.

En að allt öðru;

Af hverju er sagt að eitthvað sé laukrétt ?

.

onion_SubCategoryImage_PICT201 

.

Og af hverju er sagt að eitthvað sé arfavitlaust ?

.

haugarfi_300 

.

Laukur í verðlaun fyrir laukrétt svar.  Wink 

 


Kvefaður klerkur.

 

Ég afgreiddi prest í vinnunni í gær.

Í miðri afgreiðslu hnerraði hann......... atjúúúúúú.

Og aftur.......... aaaatjúúúúúúú.

Ég þagði.

Hann hnerraði í þriðja sinn......... aaatjúúúúúúú !

Þá sagði ég ..............

  Guð hjálpi þér ! 

.

2006052501_road_to_heaven 

.

Mér fannst ég satt að segja vera komin aðeins inn á hans verksvið.  Blush

 


Þetta gekk OF vel.

 

Um daginn bloggaði ég um hryssuna mína.   

.

BirtaII 

.

Ég á tvo hesta og eina hryssu og eru þau í hagagöngu uppi í sveit.  Dag einn, fyrir u.þ.b. mánuði, hringdi bóndinn og tjáði mér að skjótti klárinn og hryssan væru alltaf upp við þjóðveg.... bara tvö.    Þá fór ég og leit til með þeim og tók myndir, m.a. til að nota í myndagátu um hrossaliti. 

Í fyrsta skipti þarna datt mér í hug að hryssan, sem er ótamin, gæti verið litförótt eins og faðir hennar sem einnig er í minni eigu.   Ekki leiðinlegt að eiga tvö litförótt hross ! 

Nú, þar sem ég á ekki hesthús, ekki land og ekki hestakerru, hefur hestamennska mín undanfarin ár verið svolítið lituð af basli.  Fæ ég hús í vetur ?  Getur einhver lánað mér hestakerru ? 

Því hef ég, smátt og smátt, verið að taka þá ákvörðun að hætta í hestamennsku.  Hestarnir eru "börnin" mín og ég ákvað að gefa hrossin á valda staði frekar en að selja þá bara eitthvert.  Klárarnir tveir fara til bestu vinkonu minnar en hryssan var gefin til pars sem ég þekki að góðu einu úr bridge spilamennsku.

Á síðustu helgi sluppu hryssan og skjótti klárinn út á þjóðveg.  Maður sem ég þekki náði þeim seint um kvöld og stakk þeim inn í aðra girðingu en þau upphaflega voru í.  Þá hringi ég í parið og bið þau að taka hryssuna um þessa helgi.

Í gær komu þau svo að sækja hryssuna.  Ég var búin að mýla skjótta klárinn og hryssan beið álengdar.  Við gengum að hryssunni og viti menn !  Hún stóð grafkyrr meðan við mýldum hana.  Jei, hvað ég var glöð.  Ótamin hryssa og hagaði sér alveg eins og gull.  Happy   Síðan teymdist hún ljúflega upp á kerru og við höfðum á orði að þetta hefði gengið ótrúlega vel.

Parið keyrði heim á leið með hryssuna en leið mín lá niður í flóa þar sem ég hugðist sækja föður hennar.  Litförótta móálótta hestinn minn, og teyma heim í girðingu til þess skjótta.

Þá brá svo við að ég náði honum ekki !  Pouty  Það var sama hvað ég reyndi.  Ég náði einu sinni gripi undir kjálkann á honum og það hafði alltaf dugað fram að þessu.... en hann reif sig frá mér.

Þá settist ég niður og fór að hugsa.  Sem ég hefði betur gert aðeins fyrr í ferlinu.  Whistling

Hvað er að hestinum ?  FootinMouth  Eða er þetta ekki hesturinn ?  Kannski er ÞETTA hryssan !  Gasp

Ég leit undir hestinn og fann ekkert !  Obbobobb.  Þetta ER hryssan.   Parið var á þessari stundu að bruna með klárinn minn upp í sveit, klárinn sem besta vinkona mín á að fá en hryssan þeirra stendur hér lengst út í flóa og lætur ekki ná sér.

Upphaflega sagði bóndinn mér að hryssan og skjótti klárinn væru upp við þjóðveg.  Ég trúði honum bara.  Og hugsaði aldrei sjálfstætt um það.  Ég breytti meira að segja lit hryssunnar til að allt passaði.   Hún er glettilega lík föður sínum á litinn, utan að hann er litföróttur en ekki hún.   Pinch  

En í stað gagnrýninnar hugsunar, gladdist ég yfir því að hryssan væri litförótt líka !   Barnslegt sakleysi mitt er slíkt að mér liggur við að skrá mig inn á leikskóla.  W00t   

Hvað á að gera við konu á fimmtugsaldri sem trúir öllu sem henni er sagt ?  Woundering

 


Tíska.

 

Eins og flestir vita,  fer tískan í hringi.  Þ.e. fatatískan.

Í stjórnmálum hefur verið í tísku að kjósa sjallana næstum því síðan ég man eftir mér.

Undanfarin ár hafa auðkýfingar verið í tísku.  Um þá er fjallað reglulega í Séð og heyrt.

Hér boða ég nýja tískustrauma.

Nú er OUT að kjósa þá sem framfylgdu ónýtri efnahagsstefnu.

Það er líka OUT að vera auðkýfingur.

Tískan í dag er HEIÐARLEIKI, RÉTTLÆTI og SAMHJÁLP.

Og það er eina tískan sem skiptir einhverju máli. 

.

caring 

.


mbl.is Selja íbúð á Manhattan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Davíð lýsir vantrausti á Geir.

 

Þessi málsgrein bréfsins vekur athygli mína umfram annað;

Davíð segir að æ fleiri mönnum verði ljóst að formaður bankastjórnar persónulega og bankastjórn Seðlabankans sameiginlega hafi á undanförnum árum aftur og aftur varað við því að í óefni stefndi í bankamálum þjóðarinnar og þrýst á þá sem ábyrgð báru um að bregðast við í tíma.

 

Sé þetta rétt hjá honum, er hann að lýsa vantrausti sínu á forsætisráðherra þess tíma, Geir H. Haarde.

Athyglisvert svo ekki sé meira sagt.  Woundering

.

David_geir_jpg_550x400_q95

.


mbl.is Davíð segir ekki af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Síminn hringir.

 

Halló segi ég minni hljómþýðu röddu.

"Já, Kjartan er hann þarna?"

Nei, enginn Kjartan hér.

"Nú, ég er þá að hringja í bandvitlaust númer"

Ég er með alveg rétt númer,  segi ég á minn látlausa hátt.

Það er Kjartan sem er með vitlaust númer.

.

Löng þögn á línunni.   Örugglega hálf mínúta.  Joyful

"Ég prófa þá bara að hringja aftur í Kjartan"  tafsar hann vandræðalega.

.

Embarrassed

.

Það er svo gaman að stríða.  LoL

.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 342863

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband