21.8.2007 | 19:45
Vangaði strák með hor.
Þegar ég var lítil,, þá var ég lítil....... ,minnst í bekknum.
Á jólaskemmtunum í gegnum allan grunnskólann lék ég Stúf.
.
Stúfur hét sá þriðji
stubburinn sá
hann krækti sér í pönnu
þegar kostur var á
.
Eins og maður muni þetta ekki !
.
Ég var alltaf höfðinu minni en frænka mín sem var TVEIMUR DÖGUM YNGRI. Það þótti lítilli stúlku vera stórt svindl.
.
Í bensínskúrnum hjá pabba, fór ég að vinna þegar ég var 9 ára gömul. Það kom iðulega fyrir að menn leituðu að bensínafgreiðslumanninum,, horfðu framhjá mér. Þegar ég spurði minni barnalegu röddu: "FYLLA"?, .... Þá horfðu menn á mig með vantrú í augunum.... litu svo hver á annan..... og litu svo undan. Stundum sá ég axlirnar hristast. Það er ekki eins og maður sé heimskur þótt maður sé lítill !
.
Mamma sparaði líklega stórfé þegar hún saumaði á mig fötin... þurfti svo lítið efni.
.
Síðan var ég líka seinþroska. Enginn strákur vildi vanga við mig, fyrr en ég var komin í níunda bekk.... og þá var það yngri strákur með hor.
Og svo seinþroska var ég, að þegar ég loksins byrjaði á blæðingum, hoppaði ég og dansaði af gleði. Loksins loksins....... ég er orðin eins og hinar stelpurnar. Húrra og jibbíjei.
.
Hef ekki heyrt að aðrar stúlkur hafi fyllst þvílíkum fögnuði yfir þessum ófögnuði.
.
Um 15 ára aldur fór "Anna Sigga litla mín", eins og amma kallaði mig stundum, loks að stækka. Hún stækkaði og stækkaði og varð 167 sentimetrar á hæð.
Svo telur hún sjálfri sér trú um það núna að seinþroska stelpur endist bara lengur.... ha... .... hvað svo sem hún meinar nú með því ?
.
Margur er knár þótt hann sé smár frameftir öllu og betra er seint en aldrei líka.
Flokkur: Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 20:38 | Facebook
Um bloggið
Sparisjóður grínista og nágrennis.
Eldri færslur
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Gíslína Erlendsdóttir
- Brattur
- Ragnheiður
- Hrönn Sigurðardóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Hugarfluga
- Halldór Egill Guðnason
- Sæmundur Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Gulli litli
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Marinó G. Njálsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Þorsteinn Sverrisson
- Árni Gunnarsson
- Bergljót Hreinsdóttir
- Finnur Bárðarson
- Bjarni Harðarson
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Steingrímur Helgason
- Guðni Már Henningsson
- Íris Guðmundsdóttir
- Edda Agnarsdóttir
- Rannveig Guðmundsdóttir
- Kristjana Bjarnadóttir
- Erna Bjarnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
- Haraldur Sigurðsson
- Ásgeir Kristinn Lárusson
- Daði Ingólfsson
- Óskar Þorkelsson
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Egill Bjarnason
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Kát Svínleifs
- Einar Indriðason
- arnar valgeirsson
- Kama Sutra
- hilmar jónsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- AK-72
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- Dísa Dóra
- Sigurður Einarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Jóhannes Guðnason
- Brynjar Jóhannsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Magga tagga
- Fanney Björg Karlsdóttir
- Tófulöpp
- Valgeir Skagfjörð
- kop
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Björgvin R. Leifsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Svanhildur Karlsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Aprílrós
- Guðrún Björk
- Guðmundur Óli Scheving
- Helgi Jóhann Hauksson
- Katan
- Páll Rúnar Elíson
- Þórir Aðalsteinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristín Snorradóttir
- Þorsteinn Briem
- Gunnar Níelsson
- Jón Ólafur Vilhjálmsson
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Heiða B. Heiðars
- Þórdís tinna
- Eva Hrönn Jóhannsdóttir
- Jóhannes Freyr Stefánsson
- kloi
- Bjarndís Helena Mitchell
- Ragnar Gunnarsson
- Brynja skordal
- Vefritid
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Árelía Eydís Guðmundsdóttir
- Garún
- Hörður B Hjartarson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Mér hefur alltaf þótt hálf skrítið að fá 20 athugasemdir, þótt ég skrifi bara smávegis. Nú er enginn athugasemd. Ég lít svo á að þetta sé hinn fullkomni pistill.
NOT !
Anna Einarsdóttir, 21.8.2007 kl. 22:12
ÉG átti bara eftir að tjá mig, finnst svo gaman þegar þú skrifar um gamla daga, miklu skemmtilegra en allt grínið.....sem ég skil ekki því ég er svo treg. Ég var alveg búin að gleyma bensínskúrnum hans pabba þíns....og svo mörgu öðru, haltu áfram að rifja upp, ég fíla það alveg í ræmur. Svo sannast það á þér ......að þeir stuttu munu á endanum lengri verða.....(nýr málsháttur).
Og eitt enn......punkturinn með álver í almannagjá var alveg magnaður.
Gíslína Erlendsdóttir, 21.8.2007 kl. 22:19
Takk Gillí mín. Þegar þú og Sæmundur fóruð að rifja upp gamla daga, þá fannst mér mest gaman að lesa....... þessvegna er ég að reyna að muna eitthvað líka. Verst hvað það er langt síðan !
Anna Einarsdóttir, 21.8.2007 kl. 22:37
Las þetta sem "Vankaði" strák með hor. Þorði ekki kommenta, ef ske kynni að það endaði með því að þú vankaðir mann með tuð. Annars hugljúf upprifjun á liðinni tíð. Þú manst þó allavega fyrsta vangadansinn. Ég á hann ennþá eftir...
Halldór Egill Guðnason, 21.8.2007 kl. 22:57
Bíddu annars...167? var ekki einhver sem sagði þá væri maður hola?Man ekki betur.
Halldór Egill Guðnason, 21.8.2007 kl. 22:59
Jú...... hola. Bíddu,, hvað var ég að skrifa um þá ? Er þetta endurtekið efni hérna ! Ekki sjéns að ég nenni að gá að því. Tja..... ef þið hafið lesið þetta áður og það er ekki eins.... þá getið þið alltént leiðrétt mig.
Hefurðu ALDREI vangað Halldór ?
Anna Einarsdóttir, 21.8.2007 kl. 23:09
Heyrðu Anna, ég fattaði bara fyrr en þú að vera ekki að stækka eins og vitleysingur. Fannst samt gaman að vera stærri meðan það varði, viðurkenni það. Man vel eftir bensínskúrnum, dvaldist þar með þér löngum stundum. Tengi alltaf skúrinn og Töggur karamellur.
Vildirðu vera svo væn að nafngreina horstrákinn - plís :D
Rósa (IP-tala skráð) 21.8.2007 kl. 23:23
Hum...ég sagði að þeir sem væru undir 160 væru hola nema Rósa systir hún er fjall. Tek undir með Rósu .....hver var með hor....kjafta frá, nógu langt síðan til að enginn verði fúll.
Gíslína Erlendsdóttir, 21.8.2007 kl. 23:33
Guð minn góður. Ég er að reyna að meiða engan með þessu bloggi mínu. Ok Rósa, þú biður svo fallega.... treysti því að hann lesi þetta ekki, enda er hann örugglega löngu búin að gleyma mér....skömmin hann ef hann er búinn að því ... úff........ sonur Gunnvarar...ári yngri....Gummi.
Anna Einarsdóttir, 21.8.2007 kl. 23:36
Virkaði ég risi ?
Anna Einarsdóttir, 21.8.2007 kl. 23:42
Og Rósa..... manstu 10 á toppnum ? Öll bestu lögin. Nazareth, Slade, Sweet.....
Einu sinni vann ég spurninguna í þættinum. Nafnið mitt var lesið í útvarpinu og ég varð FRÆG..... fannst mér. Síðan kom lítil plata í pósti.... verðlaunin. Það var Barry Withaker (með fyrirvara um stafsetningu), platan brotin í tvennt. Kúl.
Anna Einarsdóttir, 21.8.2007 kl. 23:46
Þetta með að vanga fannst mér alltaf einhvern veginn frekar að hanga og nennti því aldrei. Dans og Dóri......."bad combination"
Halldór Egill Guðnason, 22.8.2007 kl. 00:28
krúttleg færsla Anna. Ég held ég hafi aldrei verið minnst í mínum bekk. Ef svo var tók ég allavega ekki eftir því. Í dag er ég ekki nema 162 cm. Hefur aldrei plagað mig fyrr en núna því ég vil trúa því að ég sé alls ekki overweight, ég er bara ekki nógu há fyrir vigtina mína.
Jóna Á. Gísladóttir, 22.8.2007 kl. 00:39
frábær færsla ...var alltaf minnst í bekknum - er núna orðin 166 cm risi
Marta B Helgadóttir, 22.8.2007 kl. 00:43
Ég man vel eftir samkeppninni!! Shell vs Essó. Annars held ég að salan hafi yfirleitt verið meiri hjá okkur. Haha.
Mér fannst þú aldrei vera neitt lítil. Þú varst það held ég ekki í samanburði við strákana mína. Þorgeir var kannski svolítið stærri en þú.
Sæmundur Bjarnason, 22.8.2007 kl. 03:52
Ég á mynd af ykkur Þorgeiri úti í Barcelona þar sem þið standið hlið við hlið og það er svo fyndið að sjá að meðan mittið á þér nær honum upp á miðja vömb þá er hann samt stærri en þú. ÉG var líka alltaf langstærst í mínum bekk langt fram eftir aldri enda náði ég 168, mamma sagði hins vegar alltaf að ofeldið á okkur (við vorum alltaf grönn, tek það fram) hefði gert það að verkum að við stækkuðum alltof hratt, alltof snemma og urðum því ekki stærri en við erum....4 píslir. Metra að stækka hægt og lengur. ..... Slade var uppáhaldshljómsveitin mín og Sweet og Nazareth líka, dásamlegar.
Gíslína Erlendsdóttir, 22.8.2007 kl. 09:56
Hahaha, ég var alltaf lítil líka, en náði aldrei 160 cm og endaði bara í 156,5cm. En satt er það að margur sé knár þótt hann sé smár.
Bjarndís Helena Mitchell, 22.8.2007 kl. 11:40
Ji, hvað þú ert mikið trútt!! Ég var alltaf stærst ... og er enn. Kölluð "himnastiginn" "síríuslengjan" "gíraffinn" og þar fram eftir götunum. Töff sjitt að vera ekki NORMAL!
Hugarfluga, 22.8.2007 kl. 12:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.