Þegar ég var ung og vitlaus....

 

Skrásetning æskuminninga áður en þær falla í gleymsku.........

 -------------------

-Fékk lánaða regnhlíf systur minnar, sem hún hafði fengið í jólagjöf, örstuttu áður.  Það var rok og ein hviðan reif af mér regnhlífina og hún hvarf út í buskann á ógnarhraða.

Þá uppgötvaði ég í fyrsta skipti að sumt hverfur og kemur aldrei aftur. 

-------------------- 

-Það var íþróttamót á Breiðabliki.  Kúluvarparinn kastaði kúlunni eitthvað ónákvæmt.  Hún lenti í höfðinu á bróður hans pabba.  Ég man rosalega mikið blóð.

Þá uppgötvaði ég í fyrsta skipti að fullorðnir menn geta líka fellt tár.

--------------------- 

-Pabbi var búinn að breyta ryksugumótor í smergel.  Hann var alltaf að finna eitthvað upp.  Síðan fór hann að sýna þetta undratæki.  Smergelskífan fór af og tók þumalfingurinn af pabba.  Aftur mikið blóð.

Þá gerðist ég fréttakona...... hljóp á næstu bæi og gólaði: "pabbi missti putta, pabbi missti putta" !

---------------------- 

-Það var dansleikur á Breiðabliki.  Hljómsveitin Stykk.  Ég var 11 ára gömul og bróðir minn 12 og vinkona mín, 11 ára var líka með okkur.  Okkur langaði á ball en gátum ekki spurt, því það var enginn heima.  Svo við fórum bara...   Grin .....á puttanum.  

Á ballinu sá ég frænku mína í sleik við einhvern strák.  Ojj barasta. 

---------------------- 

-Við vorum með eitt allsherjar búó í Dal.  Kofa, potta og pönnur, vegi og bíla, felgu sem við notuðum sem klósett...... allt til alls.  Þangað til pabbi kom einu sinni, vippaði felgunni upp á öxlina og gekk með hana í burtu.

Þá kom skrítinn svipur á okkur krakkana.  LoL

----------------------- 

-Afi hjó hausinn af hananum og haninn hljóp út um allt, hauslaus.

Það var rosalegt.

----------------------- 

-Við vorum í grunnskólanum.  Frænka mín fullyrti að ég kæmist ekki ofan í skúffu sem var í botni skáps.  Ég hélt nú það.  Skreið ofan í skúffuna og hún renndi skúffunni inn og lokaði skápnum pent. 

Þarna uppgötvaði ég að ég gat verið vitlaus.  Grin

------------------------ 

-Amma gaf okkur "kaffi sykur brauð og mjólk" en afi gaf okkur í nefið frá 7 ára aldri.

Þetta var fyrir tíma ESB samningsins.  Wink

------------------------ 

 Svona var nú lífið í gamla daga.   Joyful

.

Já...... og nú er ég bara ung og ekkert vitlaus... eða þannig. 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgeir Rúnar Helgason

Hér ríða atómskáld um héruð og geislar af:

Ásgeir Rúnar Helgason, 22.8.2007 kl. 19:51

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Já ljúfan mín.   Hef mínar ástæður fyrir því. 

Anna Einarsdóttir, 22.8.2007 kl. 19:51

3 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ljúfan er sko Dúa..... ekki þú Ásgeir.      En þakka þér hrósið. 

Anna Einarsdóttir, 22.8.2007 kl. 19:56

4 Smámynd: Gíslína Erlendsdóttir

Nammi namm....skemmtilegt.  Mikið var ég fegin þegar ég var búin að reikna út hvað þú ert mörgum árum yngri en ég og hvað ég er mörgum árum eldri en þú að frænkan á ballinu gat ekki hafa verið ég.....sjúkket.  Þú ert snillingur.

Gíslína Erlendsdóttir, 22.8.2007 kl. 20:00

5 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Sneddý breddý Svona á sko að skrá niður, þetta er skemmtilegt.

Edda Agnarsdóttir, 22.8.2007 kl. 20:45

6 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Blóðbað, hlandaustur úr felgum, afsagaðir fingur með ryksugumótor, sveitaböll, hauslausir hanar, kaffi sykur og brauð, neftóbak og skúffureið!!  Humm...engir svona...komplexar á efri árum, ha? Eitthvað sem þú vilt ræða Anna mín? Þú veist við erum öll til staðar, ef þú vilt opna þig eitthvað og ræða fyrri tíð. Bara nefna það gæskan

Halldór Egill Guðnason, 22.8.2007 kl. 22:30

7 Smámynd: arnar valgeirsson

vona að þú hafir eitthvað þroskast. þó þú sért ung og minna vitlaus!!

arnar valgeirsson, 22.8.2007 kl. 22:54

8 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

hahahahahah, gaman að fá eitthvað skemmtilegt fyrir svefninn, í stað þess að þrasa við einhvern.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 22.8.2007 kl. 22:55

9 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Án gríns, er gaman að rifja upp og greinilegt að það hefur ekki verið lognmollan í kringum þig í þinni æsku. Gott að muna svona vel. Það er ekki öllum gefið.

Halldór Egill Guðnason, 22.8.2007 kl. 23:23

10 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Þið eruð frábær.     Punktur og basta.

Anna Einarsdóttir, 22.8.2007 kl. 23:32

11 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Halldór Egill Guðnason, 23.8.2007 kl. 00:16

12 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Þú hefur átt ansi ofbeldisfulla og blóðuga æsku Anna mín

Jóna Á. Gísladóttir, 23.8.2007 kl. 00:27

13 Smámynd: Marta B Helgadóttir

heyrðu - ég var að skipta um mynd á blogginu mínu - vona að þið finnið mig samt, var nokkuð oft búin að fá athugasemdir frá ættingjum og vinnufélögum um að hin myndin væri ekki eins falleg og ég er i raun og veru sko

Marta B Helgadóttir, 23.8.2007 kl. 01:56

14 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

LOL, gaman að þessu!

Bjarndís Helena Mitchell, 23.8.2007 kl. 13:16

15 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Ég held Anna mín að þú egir að sérmerkja síðuna þína

Bannað yngra en 18

Ingibjörg Friðriksdóttir, 23.8.2007 kl. 17:11

16 identicon

Gaman ad lesa thetta! Man vel eftir sumu af thvi sem thu minnist a, for ekki smergelskifan i gegnum thakid a verkstaedinu? Einnig man eg vel eftir ithrottasmotinu a Breidabliki en eg held alveg orugglega ad thad hafi verid kringla en ekki kula sem Elli i Dal fekk i hausinn og ef eg man rett var thad Erlendur Valdimarsson sem kastadi kringlunni og seinna i thessu sama moti setti hann islandsmet med thvi ad kasta kringlunni 63,56 metra og enginn hafdi reiknad med svo longu kasti thvi kringlan lenti fyrir utan ithrottavollinn og setti nokkra starsmenn sem voru vid timatoku i 100 metra hlaupi i haettu. Thetta er allavega eins og eg man thetta :)

bjarni (IP-tala skráð) 23.8.2007 kl. 17:19

17 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Alveg rétt Bjarni !  Það var kringla.  Ahhh, ég man það þegar þú segir það.    Hef samt ekki hugmynd um hver kastaði og hversu langt, svo við tökum þín orð góð og gild með það.  Kannski hefði Erlendur Valdimarsson sett HEIMSMET í hinu kastinu ef kringlan hefði ekki stoppað á höfði Ella ?  Hvur veit. 

Hitt man ég vel, þótt ég hafi látið þess ógetið, að smergelskífan fór rétt framhjá hausnum á Þorgeiri og svo út um þakið á verkstæðinu.  Við leituðum lengi, bæði að skífunni og puttanum á pabba..... án árangurs. 

Anna Einarsdóttir, 23.8.2007 kl. 17:45

18 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ég meinti auðvitað puttanum, sem var ekki lengur á pabba.... án árangurs.

Anna Einarsdóttir, 23.8.2007 kl. 17:46

19 Smámynd: Gíslína Erlendsdóttir

Mikið rétt, kringla var það og mér var mjög brugðið að sjá pabba alblóðugan drifinn inn í bíl og inn í Hólm á spítalann þar sem hann var saumaður saman.   Ætli puttinn sé ekki ennþá fastur í sperrunum á verkstæðinu í Holti.

Gíslína Erlendsdóttir, 23.8.2007 kl. 23:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 342855

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband