21.9.2007 | 13:47
Helena Björnsdóttir.
Helena er góð bloggvinkona mín. Hún er ein af þessum persónum, sem fá mann til að undrast hversu fjölbreytilegt lífið getur verið. Helena hefur misst sjónina en samt getur hún málað hreinustu listaverk. Það er mér alveg óskiljanlegt.
Reyndar segir hún sjálf, að hún hafi ekki getað teiknað Óla prik skammlaust, meðan hún hafði sjón. Helena gerir oft grín að sjálfri sér og stundum er hún svo djúp að ég kveiki ekki fyrr en mörgum klukkutímum síðar.
"Mig dreymir um að hafa efni á að leigja mér lítið verkstæði (ætti varla að kosta mikið, ég þarf ekki einu sinni glugga :o) )" segir hún.
Mörgum klukkutímum eftir að ég las þetta, var ég að láta mig dreyma um verkstæðið hennar Helenu. Í mínum huga var það bjart og fallegt, með dásamlegu útsýni. Ég undraðist í huganum, hvers vegna hún gerði ekki kröfur um glugga. Fattlaus og vitlaus ég !
.
Myndin mín, HUGLJÚF. REYKJAVÍK Í HUGA MÉR.
EILÍFÐIN FLJÓTT SKIPAST VEÐUR. LÍFSTRÉÐ.
HUGMYND BLÆBRIGÐI.
.
.
Undanfarin 5 ár, hef ég haft það fyrir reglu, að kaupa eins lítið af drasli og ég get... en í staðinn kaupi ég einu sinni á ári, eitthvað sem mig virkilega langar í.
Árið 2007 varð myndin Hugljúf eftir Helenu fyrir valinu.
.
Ég held að mér sé óhætt að segja, að fimm af myndunum hérna fyrir ofan séu til sölu (ekki tvær efstu) og þær fást fyrir aðeins 25 þúsund. Þú leiðréttir mig Helena, ef ég er að bulla. (það væri þá heldur ekki í fyrsta skiptið).
.
Helena vinkona ! þú ert ekki bloggvinkona mín af þeirri ástæðu að þú málar flottar myndir, né af því að þú átt svo fluggáfaðan hund ....... heldur einfaldlega af því að húmorinn þinn er óborganlegur.
Flokkur: Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 13:52 | Facebook
Um bloggið
Sparisjóður grínista og nágrennis.
Eldri færslur
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Gíslína Erlendsdóttir
- Brattur
- Ragnheiður
- Hrönn Sigurðardóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Hugarfluga
- Halldór Egill Guðnason
- Sæmundur Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Gulli litli
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Marinó G. Njálsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Þorsteinn Sverrisson
- Árni Gunnarsson
- Bergljót Hreinsdóttir
- Finnur Bárðarson
- Bjarni Harðarson
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Steingrímur Helgason
- Guðni Már Henningsson
- Íris Guðmundsdóttir
- Edda Agnarsdóttir
- Rannveig Guðmundsdóttir
- Kristjana Bjarnadóttir
- Erna Bjarnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
- Haraldur Sigurðsson
- Ásgeir Kristinn Lárusson
- Daði Ingólfsson
- Óskar Þorkelsson
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Egill Bjarnason
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Kát Svínleifs
- Einar Indriðason
- arnar valgeirsson
- Kama Sutra
- hilmar jónsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- AK-72
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- Dísa Dóra
- Sigurður Einarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Jóhannes Guðnason
- Brynjar Jóhannsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Magga tagga
- Fanney Björg Karlsdóttir
- Tófulöpp
- Valgeir Skagfjörð
- kop
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Björgvin R. Leifsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Svanhildur Karlsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Aprílrós
- Guðrún Björk
- Guðmundur Óli Scheving
- Helgi Jóhann Hauksson
- Katan
- Páll Rúnar Elíson
- Þórir Aðalsteinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristín Snorradóttir
- Þorsteinn Briem
- Gunnar Níelsson
- Jón Ólafur Vilhjálmsson
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Heiða B. Heiðars
- Þórdís tinna
- Eva Hrönn Jóhannsdóttir
- Jóhannes Freyr Stefánsson
- kloi
- Bjarndís Helena Mitchell
- Ragnar Gunnarsson
- Brynja skordal
- Vefritid
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Árelía Eydís Guðmundsdóttir
- Garún
- Hörður B Hjartarson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Glæsilegar myndir.... hjá henni..... skil ekki hvernig hún fer að þessu..
Brynjar Jóhannsson, 21.9.2007 kl. 14:15
Frábært... Ég veit ekki af hverju en ég er dolfallin af Reykjavík í huga mér.
Gunnar Helgi Eysteinsson, 21.9.2007 kl. 17:49
Frábært hjá þér Anna mín að koma Helenu á framfæri og fallegu myndunum hennar. Hún og Fönix eru í sérstöku uppáhaldi hjá mér í bloggheimum vegna sinna einstöku lífssýnar og dugnaðar.
Gíslína Erlendsdóttir, 21.9.2007 kl. 18:09
Allt er nú hægt, ef viljinn er einbeittur. Fallegar myndir. Hlakka til að sjá fleiri.
Halldór Egill Guðnason, 21.9.2007 kl. 20:21
Vá! Ekki get ég málað svona vel, þó að ég sjái. Virkilega fallegar myndir hjá henni og einstakir hæfileikar þarna á ferð. Það var virkilega fallega gert af þér að koma henni Helenu á framfæri svona. Hlakka til að sjá meira.
Bjarndís Helena Mitchell, 21.9.2007 kl. 20:31
Flottar myndir. Hvernig getur hun gert þetta?
Marta B Helgadóttir, 21.9.2007 kl. 21:41
Nei vá þetta er þó merkilegt....takk fyrir að vekja athygli á þessu. Set síðuna strax í uppáhalds..
Ragnheiður , 21.9.2007 kl. 22:16
... hver myndin annarri fallegri... Anna þú er frábær að sýna okkur þessar myndir... takk fyrir... Helena er greinilega engin venjuleg manneskja...
Brattur, 21.9.2007 kl. 22:32
Er orðlaus, fegurðin og listin og Helena ekki sjáandi eins og við sem "kommenterum". Þætti virkilega gaman ef þú gætir bent mér á það hvernig má nálgast myndirnar bæði til að skoða þær og kaupa.
Takk fyrir að benda okkur á þessa frábæru list
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 22.9.2007 kl. 02:12
Þetta er séstakt, kannski einstakt? Það sem situr eftir í manni er forvitni um hvernig hún vinnur myndirnar. Það er líka svo merkilegt Anna hvað þú ert nösk við að vekja athygli þá földu efni hér í bloggheimum og víðar og greinilega með sterkar umhyggjuhvatir. Takk
Edda Agnarsdóttir, 22.9.2007 kl. 13:03
Guðrún Jóna.... þú getur sent póst á Helenu á www.teamfonix.gmail.com
Bloggslóðin hennar er http://fonix.blog.is/blog/fonix/
Edda... Ég get svarað spurningunni um hvernig hún vinnur myndirnar, að hluta til með afriti úr bréfi hennar til mín. (þú fyrirgefur Helena og ég lofa að birta ekki neitt meira... þegjum eins og steinar yfir leyndarmálunum okkar )
"Mig dreymir um að hafa efni á að leigja´mér lítið verkstæði (ætti varla að kosta mikið, ég þarf ekki einu sinni glugga :o) ) þar sem ég get málað í friði og ró. Þar sem ég þarf ekki að ganga frá öllu þegar er kominn tími til að taka til kvöldmatinn. Að vinna þetta í eldhúsinu hentar mér illa. Ég þarf jú að mæla allt út osfrv og þegar ég hef pakkað öllu niður og tek fram næsta dag hendir að mér gengur illa að "hitta" á réttan stað á myndinni til að halda áfram osfrv. Ég bý gjarnan til merki með teipi á borðið sem markar sjóndeildarhringinn á myndinni eða annað. Allt væri svo miklu einfaldara ef myndirnar gætu staðið á sama stað þar til næst. Að ég gæti hreinlega gengið að öllu vísu. Þá á ég líka einfaldara með að vinna STÓRAR myndir. Litirnir sem blandaðir voru í gær, bíði enn undir plastinu en ekki að ég þurfi að klára allt með þeim lit í dag því ég næ aldrei að finna sama litinn aftur. Eins langar mig að þróa áfram þessa tækni mína sem gerir mér kleift að mála svo og að vinna að "aðgengilegum" myndum.. það er að prófa alls konar strúktur og áferðir sem gerir sjónskertum kleift að upplifa myndirnar".
Anna Einarsdóttir, 22.9.2007 kl. 16:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.