15.10.2007 | 17:38
Bloggflokkurinn.
Bloggritari hefur fengið áskorun um að stofna stjórnmálaflokk bloggara.
.
Bloggflokkurinn heitir hið nýja afl.... sem mun hafa gígantísk áhrif á íslenskt samfélag á komandi mánuðum....
.
Nú þurfum við að kjósa frambjóðendur og mín tillaga er þessi:
- Gillí frænka (Hún myndi rústa hvorteðer handónýtu heilbrigðis og tryggingakerfi og byggja upp nýtt og flott kerfi.... og svo á ákveðin frænka greiðari aðgang að málum... )
- Halldór tuðari (sá kann að tuða svo mikið að allir gefast upp og samþykkja allt sem hann segir)
- Jón Steinar prakkari (hann getur strítt þingmönnunum og samið þingsályktunartillögur)
- Jóna Svanlaug (hún kemur í veg fyrir spillingu á Alþingi)
- Einhver Sjálfstæðismaður.... (þá er einum Sjálfstæðismanninum færra á Íslandi).
.
SAMÞYKKT ?
Breytingatillaga..... Ingibjörg verður í 5 sæti og Sjálfstæðismanninum verður bolað niður.... hún á að sjá um að frambjóðendur Bloggflokksins skemmti sér konunglega.
.
Svo þarf að setja upp stefnuna !!
.
Ég verð að heiman í kvöld en geng út frá því að heildstæð stefna liggi fyrir þegar ég kem aftur.
Flokkur: Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 17:52 | Facebook
Um bloggið
Sparisjóður grínista og nágrennis.
Eldri færslur
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Gíslína Erlendsdóttir
- Brattur
- Ragnheiður
- Hrönn Sigurðardóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Hugarfluga
- Halldór Egill Guðnason
- Sæmundur Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Gulli litli
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Marinó G. Njálsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Þorsteinn Sverrisson
- Árni Gunnarsson
- Bergljót Hreinsdóttir
- Finnur Bárðarson
- Bjarni Harðarson
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Steingrímur Helgason
- Guðni Már Henningsson
- Íris Guðmundsdóttir
- Edda Agnarsdóttir
- Rannveig Guðmundsdóttir
- Kristjana Bjarnadóttir
- Erna Bjarnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
- Haraldur Sigurðsson
- Ásgeir Kristinn Lárusson
- Daði Ingólfsson
- Óskar Þorkelsson
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Egill Bjarnason
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Kát Svínleifs
- Einar Indriðason
- arnar valgeirsson
- Kama Sutra
- hilmar jónsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- AK-72
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- Dísa Dóra
- Sigurður Einarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Jóhannes Guðnason
- Brynjar Jóhannsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Magga tagga
- Fanney Björg Karlsdóttir
- Tófulöpp
- Valgeir Skagfjörð
- kop
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Björgvin R. Leifsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Svanhildur Karlsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Aprílrós
- Guðrún Björk
- Guðmundur Óli Scheving
- Helgi Jóhann Hauksson
- Katan
- Páll Rúnar Elíson
- Þórir Aðalsteinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristín Snorradóttir
- Þorsteinn Briem
- Gunnar Níelsson
- Jón Ólafur Vilhjálmsson
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Heiða B. Heiðars
- Þórdís tinna
- Eva Hrönn Jóhannsdóttir
- Jóhannes Freyr Stefánsson
- kloi
- Bjarndís Helena Mitchell
- Ragnar Gunnarsson
- Brynja skordal
- Vefritid
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Árelía Eydís Guðmundsdóttir
- Garún
- Hörður B Hjartarson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Má ég vera í skemmtinefndinni? sem tilheyrir menningu og listum
Ingibjörg Friðriksdóttir, 15.10.2007 kl. 17:43
Jibbýyyyyyy öngvir sjálfstðismenn í okkar flokki bara sjálfstæðir. Oho hvað ég hlakka til
Ingibjörg Friðriksdóttir, 15.10.2007 kl. 17:59
... heyrðu, ég vil vera í íþróttamálunum og styrkveitingum... frítt í sund fyrir alla... "Happy hour" í strætó alla föstudaga... allir sem ferðast þá með strætó fá bjórkippu og pakka af mjólkurkexi... og lakkrísrör...
Brattur, 15.10.2007 kl. 18:10
Oj... ég skil ekkert í þér að hafa mig ekki með! Ég gæti sko stappað niður löppunum og rifið í hárið á fólki þangað til það hlýðir og er eins og ég vil hafa það!!
Heiða B. Heiðars, 15.10.2007 kl. 18:13
Hó hó...... það mega bara ALLIR VERA MEÐ í okkar flokki..... við skiljum sko ekki útundan.
Þá er það stefnan ? Spurning hvort við eigum að stefna að heimsyfirráðum.... eða kannski nennum við því ekki....
Anna Einarsdóttir, 15.10.2007 kl. 18:17
Eitt skref í einu Anna mín. Byrjum úr Borgarfirði að Stokkseyri. Stefnan þangað er ca SSV að Suðri. Er það ekki bara fín stefna, ha?
Halldór Egill Guðnason, 15.10.2007 kl. 18:25
whoa, takk fyrir traustið!
ég er memm! hef meira að segja "reynslu" af að vera í framboði frá því hér á árum áður þegar konseptgrínið "Anarkistaflokkurinn" bauð sig fram í ríkisstjórnarkosningum. Hann Brylli (Brynjar Jóhannsson) ætti eitthvað að kannast við það flipp...
kiza, 15.10.2007 kl. 19:02
Whoa (er að reyna að tala eins og mér örlítið yngra fólk), ekkert að þakka Jóna Svanlaug. Ég sá í dag að þú ert komin niður í kjallara í Alþingishúsinu... og þar fannstu óþekka alþingismenn. Við þurfum þig í þetta verkefni.
Anna Einarsdóttir, 15.10.2007 kl. 19:06
Það er nauðsynlegt að taka upp hýðingar. segi og skrifa HÝÐINGAR, ætlaði að fara að búa til ljóð um þetta en hætti við af augljósum ástæðum. Ég er engin dónastelpa.
Ingibjörg Friðriksdóttir, 15.10.2007 kl. 19:17
Spurning um málefnasamstöðuna... Jón Val í Dóms og Kirkjumál. Ég skal taka fjármálin og gera út um þetta í eitt skipti fyrir öll.
Jón Steinar Ragnarsson, 15.10.2007 kl. 19:41
Jóna.. ég mann svo sannarlega eftir því .. þegar ég og Tóti haki.. héngum fyrir framan auglýinguna á lækjarbrekku við lækjargötu og kölluðum það kostningarskrifstofuna okkar.. hahahahaha .. það var skemmtilegur tími..
alltaf þegar við vorum spurðir út í eitthvað sem við gátum ekki svarað. þá sögðum við
"það er nefnd að vinna í málinu"
Brynjar Jóhannsson, 15.10.2007 kl. 20:11
Allar kisur fái fríar bjöllur og niðurgreiddan íslenskan kisumat. Gef kost á mér í dýraverndina
kloi, 15.10.2007 kl. 20:24
Ég skal vera Landbúnaðarráðherra.
Þröstur Unnar, 15.10.2007 kl. 20:38
Ég get verið sendiherra Íslands í Svíþjóð
Gunnar Helgi Eysteinsson, 15.10.2007 kl. 20:59
ef gunnar ætlar að verða sendiherra íslands.. þá vil ég vera sendiherra í 101 rvk
Brynjar Jóhannsson, 15.10.2007 kl. 21:14
Kristjana,
Þú getur ekki skorast undan, held að formaðurinn gæti hugsað sér þig sem siðferðispostula stjórnar, ég meina protokollu eða siðameistara.´
Eins og þú veist verð ég skemmtanastjóri, það á engum að leiðast.
Stefnumálin semjum við svo síðar. það liggur ekkert á. Anna heldur að við getum eitthvað gert þegar hún er úti á örkinnim, en þar skjátlast henni illilega.
Hún verður í það minnsta að vera heima, stúlkan sú, annars fer fyrir henni eins og fráfarandi borgermester. Minnismiðar og annað aukaatriði forsvinner eins og dögg fyrir sólu.
Ingibjörg Friðriksdóttir, 15.10.2007 kl. 22:26
Vil bara árétta fyrir félögum flokksins að vera duglegir að "nótera" hjá sér allt sem sagt er á fundum, hvort heldur er heima hjá formanninum eða í væntanlegu félagsheimili. Ljósrita síðan að fundum loknum í 100 eintökum og dreifa til fundarmanna. Láta síðan alla viðstadda kvitta fyrir að hafa tekið við skjalinu.Ég skal taka af mér utanríkismálin. Er hvort eð er alltaf á ferð og flugi út um allan heim.
Halldór Egill Guðnason, 15.10.2007 kl. 22:50
Vá fæ ég að vera með....frábært....byrja á því að losna við Pétur Blöndal úr nefndinni og setja hann í að kenna börnum stærðfræði á grunnskólakennaralaunum.
Og Brattur, burt með bjórinn....hann er óheilsusamlegur. Rífa í hárið sleppur. Hýða barnaníðinga á Lækjartorgi og setja þá síðan í gapastokk....nauðsynlegt, samfélagslegt verkefni. Óeðliega mikil ásókn í sendiherrastörf....lyktar af sögunni um Dabba kóng......eru sjálfstæðismenn í felum hér
Annars er nefnd að vinna í málinu undir stjórn Brynjars.......
Þetta er allt að verða klárt....held ég fari að sofa enda búin að vinna sem heilbrigðisráðherra í 30 mínútur......algjört ríkismet.
Gíslína Erlendsdóttir, 15.10.2007 kl. 22:55
Frábært Halldór, einhver þarf að vera í því.
Ætti kannski að skreppa niður í Góða hirðinn á morgun og athuga með ljósritunarvél.
Væri ekki upplagt að fá Ægi í náttúruverndarmálin, hann er svo asssskoti umhverfisvænn.
Ég verð í Dublin í lok mánaðarins og þýskalandi í byrjun Nóvember, svo við verðum að hafa hraðan á með stefnumótun og því um líkt.
asskoti vorkenndi ég VIlla viðutan í kastljósinu í kvöld. Gengur það að vera svona tæpur, er þetta helber heimska eða er hann bara svona mikið kjánaprik.
Ég held ekki að hann sé illur eða siðblindur, en ég fæ svona tilfinningu að mig langar að klappa greyinu.
Ingibjörg Friðriksdóttir, 15.10.2007 kl. 22:56
Kæra Gíslina,
Gott að þú tekur undir með hýðingarnar, ég er þér hjartanlega sammála með Pétur Blöndal og það væri frábært að skipta um laun við hann,´þó ekki væri lengur en fram að jólum.
Ingibjörg Friðriksdóttir, 15.10.2007 kl. 22:59
Hver er formaður Bloggflokksins? Ef það er Anna óska ég eftir að verða aðstoðarmaður sem tekur skelli!
Edda Agnarsdóttir, 15.10.2007 kl. 23:00
Abbababababa! Kona, karl, kona, karl, kona, karl Edda. Þetta er jafnréttissinnaður flokkur. talsvert á skjön við allar áttir, með húmanísku yfirbragði og jafnréttiskennd sem hvergi hefur sést áður.
Halldór Egill Guðnason, 15.10.2007 kl. 23:13
Sko ef ég fæ ekki Landúnaðarráðuneytið strax, kæri ég til umboðsmanns Önnu og vill öll spilin upp á borðið.
Þröstur Unnar, 15.10.2007 kl. 23:26
Flokurinn verður að hafa ritara. Starfsheiti hans á að vera "flokksbloggari"..Heeh flokksbloggari bloggflokksins..segið þetta eins hratt og þið getið tíu sinnum
Gunnar Th. Gunnarsson, 15.10.2007 kl. 23:44
Það er svo borðleggjandi að við erum Bloggflokkur sem treystandi er á.... valinn maður í hverju rúmi.... enda komin nótt. Mér finnst bara eins gott að ég las þetta ekki fyrr í kvöld. Þröstur segir öll spilin upp á borðið. Ég var að spila bridge í kvöld og það hefði aldeilis dottið andlitið af mönnum ef ég hefði lagt hvert einasta spil á borðið.
En hér eru fæddir ráðherrar og ritarar og sendiherrar og nefndarmenn.... og stefnumörkun komin í gang. Við stefnum hátt !
Hvað finnst ykkur um að leggja það til að bloggarar fái hærri lífeyrisgreiðslur ?
Anna Einarsdóttir, 16.10.2007 kl. 00:37
Það tilkynnist hér með að Tuðarinn, utanríkisráðherra Bloggflokksins, verður erlendis næstu vikuna að sinna brýnum málefnum á vegunm íslenskrar útrásar og kynna hið nýja afl í íslenskum stjórnmálum.(Þar sem enginn hefur mótmælt stöðuveitingunni, telst hún samþykkt einróma eða hjáróma. Ráðningartími 20 ár, óafturkræft og eftirlaun á sama skala og gengur og gerist hjá ráðamönnum þjóðarinnar. Öll ferðalög á Saga Class og ókeypis bíll.)
Halldór Egill Guðnason, 16.10.2007 kl. 08:48
Halldór mér finnst þetta sjálfsagðar og eðlilegar kröfur enda er ég vel innrættur og laus við allt sem kalla má spillingu.... í beinu framhaldi af því krefst ég þess að fá að vera framsóknarmaðurinn í flokknum, veit það verður slegist um þá stöðu en..... fyrstur kemur fyrstur fær... samþykkt? og eins vil ég fá lykilstöðu eða a.m.k. stöðu með lykli.. eða bara lykil eða lyklakippu
Arnfinnur Bragason, 16.10.2007 kl. 12:18
Verður slegist um að fá að vera Framsóknarmaðurinn í flokknum ??? Hvað er þetta Arnfinnur... ætlar þú að slást við sjálfan þig ? Þú ert SÍÐASTI Framsóknarmaðurinn.
Góða ferð Halldór utanríkisráðherra.
Anna Einarsdóttir, 16.10.2007 kl. 17:45
Bíddu aðeins Anna, Framsóknarmenn spretta alltaf upp ef góðar stöður eru í boði.... þannig að ég á eins vona á að þurfa að slást
Arnfinnur Bragason, 16.10.2007 kl. 18:22
Arnfinnur er örugglega skyldur Þránni þurs Bertels. Bráðfyndinn framsóknarmaður.
Ég er líka komin af framsóknarmönnum, mann fram af manni og ekki nóg með það, það er regluleg kaupfélagslykt af mér.
Má ég ekki vera vera formaður stjórnar í Kaupfélaginu? Ég er svo djöfulli dugleg að ég get það alveg með skemmtanastjórastöðunni.
Ingibjörg Friðriksdóttir, 16.10.2007 kl. 19:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.