Með húsráð undir rifi hverju.

 

Allar alvöru húsmæður gera alvöru kartöflustöppur.  Grin

Gervimús er ekki matur.

.

Í áratugi afhýddi ég kartöflurnar og stappaði þær síðan í þartilgerðri pressu.... því ég er auðvitað alvöru húsmóðir.  Cool

.

Í fyrra gerði ég stórmerka uppgötvun.  Ef maður setti kartöflurnar, óafhýddar í pressuna, varð hýðið eftir en kartaflan kom í gegn, alveg í mauki.  Síðan var bara að skafa hýðið af með nærliggjandi hníf og setja næstu kartöflur í pressuna.

.

Þetta er þvílíkur tímasparnaður að ég get dundað mér við að gera krossgátur fyrir tímann sem ég græði í hvert skipti sem ég elda kartöflumús.  Smile

.

Ég hélt þið vilduð kannski vita af þessu.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín Ósk Adamsdóttir

Flott ráð,verð að prufa þetta í vikunni

Katrín Ósk Adamsdóttir, 20.10.2007 kl. 21:39

2 Smámynd: Halldór Sigurðsson

Takk fyrir þeta - og þá er að ná sér í konu og segja henni frá þessu

Halldór Sigurðsson, 20.10.2007 kl. 21:48

3 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Veistu hvernig ég geri þetta, ég er reyndar ekki alvöru húsmóðir.

Ég afhýði kartöflurnar sjóðheitar (nota gúmmíhanska) sýð mjólkina með klípu af smöri, dengi þessu í hrærivélina, og þeyti. bæti sykri, salti og pipar.  Músin á að vera næstum því eins létt og þeyttur rjómi.  Og hana nú,  En svo er spurning hvort maður getur ekki notað forsoðnar kartöflur.  Ég er ógeðslega löt húsmóðir og hef fundið þessa líka fínu leiðina til að sleppa þessum leiðindum, skúra skrúbba og bóna, dau.. og dj..... .  sit bara við tölvuna í staðinn og læt mig dreyma.  Annars var ég fúl í kvöld.  Barði átti að vinna þessa keppni.  Tími til kominn að það sé einhver sveifla í þessu. 

Ingibjörg Friðriksdóttir, 20.10.2007 kl. 22:13

4 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Halldór... Hún Anna er á lausu........

bullaðu bara nógu mikið einhverja tóma steypu ...þá fellur hún kylliflöt fyrir þér.. enda er hún af gæsapartíastofninum BULLUKOLLA.. hahahahahha

Brynjar Jóhannsson, 20.10.2007 kl. 22:47

5 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Hverjum datt eiginlega í hug að skræla hollasta hlutann af kartöflunni af, ha? Kartöflumús með hýðinu og smá "dash" af sætum kartöflum með.........nammi namm. 

Halldór Egill Guðnason, 20.10.2007 kl. 23:22

6 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Ég skil þetta ekki, er hún á lausu eða er hún laus, hvaða hvaða, en hún er af bullukollaættinni, það er þó víst.  Ég hinsvegar er af kollunni hans Villa Vill sem er blýföst og haggaðist ekki einu sinni út í Viðey í öllu rokinu sem þar nú var.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 20.10.2007 kl. 23:25

7 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ég henta nú illa fyrir Halldór Sig...... hann ætlar að ná sér í konu og segja henni frá þessu snilldarbragði.... og það er lítið gaman að segja einhverjum sem veit.    Það sjá það allir að þetta gengur ekki upp.

Anna Einarsdóttir, 20.10.2007 kl. 23:31

8 Smámynd: Gíslína Erlendsdóttir

Geri alveg eins og Ingibjörg nema nota enga hanska og sýð ekki mjólkina. Mér skilst á sérfróðum að ég myndi vinna heimsmeistarakeppnina í kartöfluafhýðingu ef hún væri haldin, svo fljót er ég að skræla....og hrærivélin er algjört möst.....áttu ekki eina svoleiðis Anna mín? Ef ekki þá færðu eina í brúðagjöf frá mér....þegar þú giftist Dóra Sig.

Gíslína Erlendsdóttir, 20.10.2007 kl. 23:55

9 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Mig vantar hrærivél.  VILTU GIFTAST MÉR DÓRI ? 

Anna Einarsdóttir, 20.10.2007 kl. 23:59

10 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Nei annars !  Mig vantar ekkert hrærivél.    Ég baka bara smákökur sem ég hnoða og vandræði sem koma alveg áreynslulaust. 

Dóri.... gleymd´essu.

Anna Einarsdóttir, 21.10.2007 kl. 00:07

11 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Ætlaði bara að fara að segjaða Anna. Þú gitist nú ekki fyrir eina hrærivél? Lágmark að fá "Mixer" með

Halldór Egill Guðnason, 21.10.2007 kl. 00:10

12 Smámynd: Brattur

... Anna, ertu nokkuð til í að senda mér smá kartöflustöppu í pósti... mig langar að vita hvort hún er eins góð hjá þér eins og hún var hjá mömmu...

... annars vantar mig hrærivél líka... hvaða tegund ætli sé best?

Brattur, 21.10.2007 kl. 00:25

13 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Já.... Mixer Halldór.... nú þarf ég að hugsa mig um.   

KitchenAid er langbest.......það voru svo flottar auglýsingar í gamla daga man ég..... kona með svuntu og alles. 

Ég sendi þér eitt bréf af stöppu Brattur.... A4 eða A3 ?

Anna Einarsdóttir, 21.10.2007 kl. 00:28

14 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Er það ekki A 1 í dag, ha? Hilsen fra Danmark

Halldór Egill Guðnason, 21.10.2007 kl. 00:35

15 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Heyrðu Halldór !  Hvað vannstu mikið í spilavítinu ?

Tak for hilsen fra Danmark.

Anna Einarsdóttir, 21.10.2007 kl. 00:40

16 Smámynd: Brattur

Anna... faxaðu bara stöppuna...

... gömlu auglýsingarnar myndu gera allt vitlaust núna, sumar hverjar... t.d. þessi, sem KEA notaði á Akureyri á sínum tíma fyrir matvöruverslanir sínar...

"Húsmæður, húsmæður... gerið helgarinnkaupin snemma á föstudögum"...

Brattur, 21.10.2007 kl. 00:40

17 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Anna.: Heppnin var með í þetta sinn.18.425.DKK takk fyrir, í plús! Já það borgar sig að versla snemma á föstudögum.....húsmæður Brattur.: Það gengur ekki að auglýsa svona í dag, er það nokkuð?

Halldór Egill Guðnason, 21.10.2007 kl. 00:44

18 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Annars þetta með að faxa stöppuna.: Gengur það að stappa föxuna? Bara að spá.....

Halldór Egill Guðnason, 21.10.2007 kl. 00:46

19 Smámynd: Anna Einarsdóttir

18.425 DKK sinnum 33,3%  ....   Halldór, þú skuldar skákfélagi bloggara með tattoo 6.135 DKK.  Borga fyrir mánaðamót.

Anna Einarsdóttir, 21.10.2007 kl. 00:47

20 Smámynd: Brattur

... nei... Halldór... það gengur auðvita ekki að auglýsa svona í dag... frekar en að auglýsa... Húsbændur, eiginmenn... elskhugar... útsala á borvélum... yrðum við ekki móðgaðir???

Brattur, 21.10.2007 kl. 00:51

21 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Sorry, too late. Búinn að eyða öllu. Kvikyndið var dressað upp.........

Halldór Egill Guðnason, 21.10.2007 kl. 00:51

22 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Ef ég fæ borvél á góðum prís verð ég ekki móðgaður. Hvað er þetta annars með kvenfólkið, að taka saklausar auglýsingar svona nálægt sér. Hefur þér, Brattur, einhverntímann þótt asnalegt að sjá léttklædda konu auglýsa bremsuborða til dæmis. Sé bara alls ekki hvað er að því.

Halldór Egill Guðnason, 21.10.2007 kl. 00:55

23 Smámynd: Brattur

... talandi um faxtæki... þá er hér smá saga:

... faxtækin voru nýkomin til Íslands og ekki allir sem kunnu á þessi tæki...

... þessi saga er sönn...

... forstjóri einn bað konu á skrifstofunni að faxa fyrir sig bréf til Bandaríkjanna... konan hamaðist á faxtækinu og ýtti á alla takka, en ekki fór bréfið í gegn...  hún fer til forstjórans og segir honum að hún nái bara ekki að faxa þetta bréf... jæja þá, sagði forstjórinn... settu það þá í umslag og sendu það svoleiðis....

... konan setti bréfið í umslag, sleikti og lokaði... stakk svo umslaginu í faxtækið og viti menn... umslagið rann í gegn!!!

Brattur, 21.10.2007 kl. 00:55

24 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Halldór Egill Guðnason, 21.10.2007 kl. 01:01

25 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Segi það enn og aftur Það er ekki öll vitleysan eins. Hún er öðruvísi

Ingibjörg Friðriksdóttir, 21.10.2007 kl. 01:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 342816

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband