Það er að byrja að fjúka í mig.

 

Nú er fokið í flest skjól !

 

Það er nefnilega farið að fjúka í mig oft í viku.

Á mánudaginn fauk alveg rosalega í mig.  Angry

Ég finn að það er að byrja að fjúka í mig núna.

Og svo á eftir að fjúka alveg ofboðslega í mig á föstudaginn.  Angry

Þeir spá því !

.

Ég held að þetta séu helvítis lægðirnar við Grænland.

.

Ps.... ekki kaupa neitt núna....

.... það er örugglega alveg fokdýrt.  Pinch


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Kristinn Jakobsson

......hahhaha fokdýrt......ég sem ætlaði að versla í kvöld......ja nú er fokið í flest skjól!

Helgi Kristinn Jakobsson, 12.12.2007 kl. 20:26

2 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Gott að tína steina í vasana Anna, helst fylla þá og vera með fullan bakpoka líka,.

Þá fýkur þú varla mikið.

Fín frétt á forsíðu : Kona fergir sig í Borganesi, átti erfitt með gang.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 12.12.2007 kl. 20:52

3 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Fjúka - fauk - fukum - fokið

rjúkja - rauk - rukum - þett´er nú meira rokið

strjúkja - strauk - stukum - strokið

ljúka - lauk - lukum - er mér nú öllum lokið

(svokallaður orðhengilsháttur)

Ásgeir Kristinn Lárusson, 12.12.2007 kl. 21:05

4 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Fáðu þér einn fokheldann Anna!

ferlega sætan og ríkan

Held að ég þurfi að kanna,

hvort .....................................

Nei, engan dónaskap á þessarri síðu, 

hún borgar hvort er ekki í blíðu.

Anna, hvað er eiginlega með þessar lægðir, ég er alveg í keng,

Fýkur yfir hæðir, ég er alveg í spreng.

 Bið að heilsa í Borgarfjörðinn, og vonandi fer spáin að batna.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 12.12.2007 kl. 21:07

5 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Það er nú hellings skap í stelpunni Kristjana ..... það vill bara svo vel til að það er oftast gott. 

Anna Einarsdóttir, 12.12.2007 kl. 23:43

6 identicon

Ha, ha.. alltaf jafn skemmtilegt að lesa bloggið þitt.  Hef ekki kíkt hérna í nokkra daga... en verð að láta sumt fjúka, vegna fyrri blogga.  Froskarnir og framsóknarflokkurinn... ja, hérna.. manstu ekki hvað ég og fleiri góðir sungu /röppuðu á Bifróvision hér fyrir nokkrum árum: Allir eru að tala um skólann sem framleiðir, framsóknarmenn í hrönnum og gerir þá að mönnum... Þessi boðskapur sem þar var boðaður hefur greinilega ekki náð inn í hjarta þitt, frekar en mitt. Ætli Jón okkar Sig viti af þessu? Síðan með magadansinn, ég hef lært, eða amk reynt að læra magadans, og það var æðislega skemmtilegt.  Ég æfði mig reglulega fyrir framan kettina, læðan flúði, en fressinn var mjög áhugasamur.  Enda átti ég magadanspils með fullt af glingri utan á sem heyrðist vel í þegar mín sveiflaði sér... Þér er velkomið að fá það lánað!!! Varðandi veðrið þá auglýsi ég bara eftir grilli sem fauk af svölunum mínum á Seltjarnarnesi... það er kannski komið upp í Borgarnes? Hvað er maður líka að gera að búa á þessu rokrassgati, alin upp í logninu á Ísafirði.  Vonandi sjáumst við fyrr en síðar.  Koss og knús.. Ebba

Ebba (IP-tala skráð) 13.12.2007 kl. 18:58

7 Smámynd: Ragnheiður

Úffff...Anna mín viltu ekki leggja þig aðeins, það fauk herfilega í þig í nótt og það er sko að koma meira fjúkí....Það vill svo heppilega til að ég þarf ekki að fara út, er sko lögformlega afsökuð og sendi kallinn í allar áttir enda ekki hundi út sigandi...

Ragnheiður , 13.12.2007 kl. 19:32

8 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ebba mín..... gaman að sjá þig hér.     Ég hef ekki séð grillið þitt en kannski kemur það á morgun.  Þá læt ég þig vita.  Og magadansæfingunni var frestað þar sem dýrin voru komin með harðsperrur í magann af hlátri.  Kannski fæ ég beltið lánað síðar. 

Það er rétt Ragnheiður... ekki hundi út sigandi.... bara kallinum. 

Anna Einarsdóttir, 13.12.2007 kl. 20:16

9 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Skil bara ekki hvað fólk er að búa þarna á suðursvæðinu, nær að koma hingað Austur á Héraðið í skjól.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 13.12.2007 kl. 20:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 342810

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband