Mig vantaði Hafstein.

 

Ég svara í símann í mínu fyrirtæki.  Í morgun hringdi maður og bað um Hafstein.  Enginn Hafsteinn vinnur í fyrirtækinu og tjáði ég manninum það.  Hann sagði bara VÍST og sagði mér að gefa sér samband við Hafstein.  Eftir það, náði ég aldrei að klára heila setningu í símann því maðurinn greip alltaf fram í fyrir mér.  Hann jós úr sér yfir mig og skipaði mér að finna út úr þessu. 

.

angry%20man

.

Meðan maðurinn hraunaði yfir mig, datt mér ýmislegt í hug. 

Kannski ég ætti að hlaupa fram, segja Geir að hendast í það að fá nafnabreytingu í þjóðskrá.....og gefa manninum svo samband við Geir... nei ég meina Hafstein. Woundering  

Eða gefa símtalið í næsta símtæki, hlaupa sjálf og svara með dimmri karlmannsröddu:  "Hafsteinn hér, góðan daginn".  Cool

Nú eða segja mannleysunni í símanum að Hafsteinn væri veikur og yrði það eitthvað fram eftir ári.

Í alvöru !  Hvað á maður að segja svona fólki ?  Joyful

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

stimpilinn minn

Gunnar Helgi Eysteinsson, 11.1.2008 kl. 13:52

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Kannski ætti ég að setja auglýsingu í blað:

Óskum að ráða Hafstein í vinnu nú þegar. 

Anna Einarsdóttir, 11.1.2008 kl. 14:14

3 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Hm aumingja Hafsteinn sem hann ætlaði að tala við!

Svo gæti mar verið ægilega kindarlegur og sagt að það væri langt síðan Steinn hafi farið út á haf!

Edda Agnarsdóttir, 11.1.2008 kl. 14:18

4 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

...og þarf að geta svarað fyrir sig!

Ásgeir Kristinn Lárusson, 11.1.2008 kl. 14:20

5 identicon

Ég hringdi á vinnustað sonar míns um daginn og bað um að fá að tala við hann, ég heyrði mikið skrölt og skruðninga og og loksins kom lafmóð stúlka í símann og röddin lýsti eftirvæntingu þegar hún sagði HALLÓÓÓ .. ég sagði við hana að hún væri greinilega ekki sonur minn, ég hafði hringt í vitlaust númer og sá sem svaraði hafði heyrt vitlaust og þá hafði vitlaus manneskja komið í símann  ... ... ég hló eins og vitlaus ...

Maddý (IP-tala skráð) 11.1.2008 kl. 14:39

6 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Það er allt í lagi að garga til baka á sumt fólk. Hann hefur að sjálfsögðu ekki sagt til nafns blessaður hlandhausinn, eða hvað?

Halldór Egill Guðnason, 11.1.2008 kl. 15:51

7 Smámynd: Ragnheiður

Hehehehe já svona getur fólk látið...

Það er stundum þrætt við mig í símann,verið að spyrja um einhver kall sem vinnur á allt annarri stöð. Svo bara þrasar fólk. Stundum verð ég þreytt á þessu og segist vera búin að vinna þarna í 20 ár og viti allt um alla þarna.....þá sljákkar í liðinu.

Einn hætti og það er enn verið að spyrja um hann öðru hvoru, það eru 8 ár síðan hann hætti.

Ragnheiður , 11.1.2008 kl. 16:25

8 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Halldór..... NEI, hann sagði sko ekki til nafns... en ég giska á að hann heiti Hafsteinn. 

Ragnheiður..... Ég gat ekki sagt honum hvað ég hafði unnið í mörg ár hjá fyrirtækinu.... ég komst ekki að. 

Anna Einarsdóttir, 11.1.2008 kl. 17:12

9 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

 Ertu ekki með númerabirti?

Ég hefði hringt til baka og spurt um Steina sem kenndur er við Sjóinn.

Ég hef það fyrir sið, þegar hringt er að þykjast ver'n.  Það er svo skemmtilegt, en því miður gerist það of sjaldan, ætti að fá mér númer sem endar á 50 eða 00. 

Ingibjörg Friðriksdóttir, 11.1.2008 kl. 18:01

10 Smámynd: Bjarndís Helena Mitchell

Æ, það er óskemmtilegt að verða fyrir barðinu á skapstórum einstaklingum sem ekki kunna sig. Þessi maður á bara bágt.

Bjarndís Helena Mitchell, 11.1.2008 kl. 19:59

11 Smámynd: Sævar Einarsson

Verst að vita ekki hvar þú vinnur ! ég hefði sko hringt á morgun og sagt "Hæjjj Hafsteinn hér, einhver hringt í mig?"

Sævar Einarsson, 11.1.2008 kl. 20:13

12 Smámynd: Anna Einarsdóttir

  Ég segi þér það næstum því, Sævarinn.... því mér finnst þú svo fyndinn.

Anna Einarsdóttir, 11.1.2008 kl. 20:18

13 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Sæl Anna mín

Hafsteinn hérna, hefur einhver spurt eftir mér

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 11.1.2008 kl. 21:19

14 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Hafsteinn, kallaður Þorsteinn Valur ...  .. merkilegt.  Ekki datt mér þetta í hug.

Jú, það var reyndar spurt eftir þér í dag en þú varst heppinn að vera ekki við, kallinn var BRJÁLAÐUR !!! 

Anna Einarsdóttir, 11.1.2008 kl. 21:26

15 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Þetta er gamall og góður símahrekkur gæskan

Það er hringt í fórnalambið ca 3-5 sinnum og spurt um ákveðinna persónu sem er ekki á staðnum, svo hringir einhver og segist vera persónan sem spurt hefur verið eftir og segir.

Hafsteinn hérna, hefur einhver spurt eftir mér

En í þínu tilfelli hefur líklega bara bældur eiginmaður hringt, skömmu eftir að konan hans skammaði ræfilinn hraustlega.

Stundum er fólk bara æst, þarf að fá útrás fyrir tilfinningar og missir stjórn á sér við þann sem síst skildi.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 11.1.2008 kl. 23:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband