Halldór er dottinn íða.

 

Halldór, bloggvinur minn, datt íða í gær.  Datt íða að lesa ljóð sko.   Hann verður fyrir svo miklum hughrifum af ljóðunum,  að hann grætur og grætur og ætlar að gráta fram að páskum.  Crying

Ýmislegt lærir maður á netinu, nytsamlegt sem ónytsamlegt.  Áðan lærði ég snilldarbragð.  Ef maður dettur oná góða ljóðabók, þá nýtur maður ljóðanna í botn.  Hef aldrei vitað að gott væri að vera oná ljóðabókinni.  FootinMouth

Hér verður því gerð rannsókn, til að sannreyna þessa speki.  Ég birti ljóð sem ég samdi einhvern daginn.  Rómantísk vella...... sem ætti þó að vera mjög gott hnoð, ef þið aðeins fylgið fyrirmælum og liggið ofan á skjánum meðan lesið er.  Wink

.

Hjartað þitt er hreint og tært
svo hlýr þú ert og ornar mér.
Í fangi þínu sef svo vært
og sundlar ef ég er með þér.

Þú elsku gefur alla leið
ert ljúfur, traustur, blíður.
Með þér ég þrái æviskeið,
njóta þess er okkar bíður.

.

Nú megið þið koma ykkur niður af skjánum aftur.  Virkaði þetta ?

.

P.S.  Muna svo eftir handboltaleiknum í sjónvarpinu klukkan 15.40... bein útsending frá leik karlalandsliða Íslendinga og Tékka.  Cool


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Þú ert sko ekki við eina fjölina felld! Frábært hjá þér !

Edda Agnarsdóttir, 13.1.2008 kl. 15:06

2 Smámynd: arnar valgeirsson

blind af ást stelpan. hjartað hreint og ljúfur og blíður og ég veit ekki hvað.....

var þetta ekki bara einn stór misskilningur og dúddinn algjör...

eða hvað veit ég. en vel gert hjá þér samt...

arnar valgeirsson, 13.1.2008 kl. 15:30

3 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ekki veit ég nú hvort að dúddinn sé algjör.. þar sem ég þekki engan Dúdda. 

Vóóó, flott handboltalandslið sem við eigum.     Vil samt hafa Garcia heima og sjá Sigfús FRÆNDA MINN koma í liðið í staðinn.  Bráðskemmtilegur leikur, Ísland - Tékkland...... þeir gátu rúllað þessu upp... búið til tékkneska rúllupylsu ef sumt hefði verið aðeins, oggolítið öðruvísi.  ÁÁÁÁFRAM ÍSLAND !!!!!! 

Anna Einarsdóttir, 13.1.2008 kl. 17:49

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Þetta virkar Anna. Altso oná bókinni og skjánum. "Strákarnir Okkar" taka tékkana í karphúsið á morgun, ekki spurning. Inná með Sigfús, ekki spurning.

Halldór Egill Guðnason, 13.1.2008 kl. 20:28

5 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Var afvelta eftir fyrra erindið - missti af leiknum - hvernig fór?

Ásgeir Kristinn Lárusson, 13.1.2008 kl. 21:02

6 Smámynd: Anna Einarsdóttir

32 - 30 fyrir Ísland...... bráðskemmtilegur leikur en fullt af sóknarmistökum í fyrri hálfleik..... sem þýðir að við eigum töluvert inni.  Þetta er þrusulið. 

Anna Einarsdóttir, 13.1.2008 kl. 21:10

7 identicon

Ætla ekkert að tala um leikin,en ljóðið er mjögsvo fallegt,áttu fleiri.?

Númi (IP-tala skráð) 17.1.2008 kl. 23:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 342782

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband