Fjörutíu fuku og leyndarmálin fjúka líka.

 

Nú er ég fjörutíu bloggvinum fátækari... en það er ekki magnið sem skiptir máli, heldur gæðin.  InLove

Þá er runnin upp sú stund að ég get sagt ykkur öll mín innstu mál.  Bara bestu bloggvinir mínir eftir.  Wink 

Hér kemur fyrsta leyndóið og þið lofið að þegja yfir því.  Cool   Það tekur aðeins á að opna sig svona..... Crying ....ehf  LoL  ég ætlaði að skrifa ehm ...... en eitthvert eignarhaldsfélag slæddist óvart með.  Kannski skiljið þið ekki orð af þessu en það gerir þá ekkert til.  Brosið bara út í annað og haldið svo áfram að brosa út í annað.

En nú kemur það !

Einn bloggvinur minn er dálítið meira en bloggvinur.  Hann er besti vinur minn og kannski aðeins meira en það. 

Say no more, say no more.  Joyful 

Förum svo í leik.... svo það sé nú ekki verið að agnúast út í mig fyrir að skrifa undir færsluflokknum "spil og leikir". 

Allir sem fatta hver hann er, þessi besti vinur minn og kannski aðeins meira en það.... þeir eiga að fara á síðuna hans og kommenta:  "Ert þú hann ?Whistling


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Anna mín, hvað ertu bara að segja. Ég er svo spennnnnnnnt

Ég skal svoleiðis klappa fyrir ykkur. 

Ingibjörg Friðriksdóttir, 16.1.2008 kl. 21:41

2 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

ókei

Gunnar Helgi Eysteinsson, 16.1.2008 kl. 21:41

3 Smámynd: Þröstur Unnar

*Úps.

Þröstur Unnar, 16.1.2008 kl. 21:48

4 Smámynd: kloi

Er það nokkuð ég Anna.  góður þessi, ég og Anna  Annars er ég alveg í skýjunum að sleppa gegnum hreinsunareldinn

kloi, 16.1.2008 kl. 21:49

5 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Góða nótt Anna mín, dreymi þig vel, ég mun hugsa vel til ykkar.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 16.1.2008 kl. 22:34

6 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

hmmmmmmmmmmm, þessi er erfið

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 16.1.2008 kl. 22:39

7 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Lét mig hafa það, veðjaði á tvo. Góð leið til að ýta við manni og kíkja á blogg annarra

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 16.1.2008 kl. 22:57

8 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Það er á brattann að sækja fyrir mig; er enn afvelta eftir þarsíðustu færslu!

Ásgeir Kristinn Lárusson, 16.1.2008 kl. 23:05

9 Smámynd: Katrín Ósk Adamsdóttir

Hæ Anna mín! Takk fyrir að hafa mig áfram  Jæja ætla að kíkja á vinina til hliðar og reyna að sigta úr

Katrín Ósk Adamsdóttir, 16.1.2008 kl. 23:32

10 Smámynd: Katrín Ósk Adamsdóttir

Jæja mitt fyrsta val var einhver Jóhannes en ekki hægt að kvitta hjá honum

Katrín Ósk Adamsdóttir, 16.1.2008 kl. 23:34

11 identicon

Ertu að segja að þú sért farin að sofa hjá öðrum bloggara??? MÁ ÞAÐ??????  

*tíst* 

Maddý (IP-tala skráð) 17.1.2008 kl. 00:33

12 Smámynd: Svanhildur Karlsdóttir

Takk Anna mín.........er búin að taka rúnt hjá þínum bloggvinum og ætla að skjóta á einn

Svanhildur Karlsdóttir, 17.1.2008 kl. 00:45

13 Smámynd: Ragnheiður

Ja...nú verðum við að leggjast yfir skilmálana á Moggabloggi....á ég nokkuð að giska

Ragnheiður , 17.1.2008 kl. 00:45

14 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Þetta er líklega einhver boru brattur og mannvits brekka, en ekki rafhlöðudrifin.

Vandast málið, en allavega góða skemmtun og gott gengi.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 17.1.2008 kl. 07:53

15 Smámynd: Kristín Snorradóttir

Spennó... þetta er gáta sem er skemmtileg  leitin að vininum sem er meira enn vinur..thíhíhí

Kristín Snorradóttir, 17.1.2008 kl. 10:46

16 identicon

Hmmmm..... má byðja um vísbendingar? Teflir hann skák??

Nei annars.. ég held ég viti.. ætla strax á síðuna hans og kommenta...

p.s. ætlaru að koma norður í sumar með mér að vinna við með hesta? Maggi búinn að hafa samband við þig??

Björg F (IP-tala skráð) 17.1.2008 kl. 11:08

17 identicon

okei, nú er ég búin að spyrja hann... en svo datt mér í hug að spyrja einn annan en það er bara ekki hægt því drengur sá er bara ekkert búinn að blogga lengi og því tími athugasemda liðinn.. svo varla getur það verið sá.. eða hvað? nei bíð eftir svari frá þeim fyrsta.. úff hvað þetta er spennandi

Björg F (IP-tala skráð) 17.1.2008 kl. 11:14

18 Smámynd: Hugarfluga

Gavöð ... ertu farin að bloggast með öðrum bloggara? Og hvað ... eru afleggjarablogg á leiðinni?  Ertu nokkuð óblogguð?! En svona án alls bloggs .. þá hef ég ekki bloggmynd

Hugarfluga, 17.1.2008 kl. 16:46

19 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Mér líst sérlega vel á svona grisjun á löngum listum....var samt alveg með hjartslátt að gá hvort ég væri enn hér hjá þér.Er voða glöð

En nú er ég vforvitin..ætla að kíkja aðeins betur í gegnum lsitann og sjá hver er líklegur sem eitthvað meira en bara bloggvinur þinn..hmmm

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 17.1.2008 kl. 17:09

20 Smámynd: Huld S. Ringsted

Leiðinlegt að sjá að ég fékk að fjúka en skiljanlegt þar sem ég er sú óduglegasta að kommenta en ég hætti ekkert að lesa þig þegar tími gefst til, geri það bara eftir krókaleiðum. En í sambandi við "getraunina" þína að þá segi ég Brattur

Huld S. Ringsted, 17.1.2008 kl. 17:25

21 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Þið eruð svo skemmtileg. 

Björg..... já, hann er búinn að hafa samband.  Nei, ég kemst ekki, þar sem ég er frekar ómissandi í vinnunni minni.

Huld.... Hér reynum við að hafa bara gaman.  Velkomin aftur.

Anna Einarsdóttir, 17.1.2008 kl. 22:01

22 identicon

Vá allt of flókið,er komin í marga hringi þarafleiðandi rata ég ekkert um íbúðina mína,hjálp.

Númi (IP-tala skráð) 17.1.2008 kl. 23:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband