1.2.2008 | 17:12
Þýðir voff alltaf voff ?
Allir hundar segja Voff. En ætli þeir skilji hver annan ? Ef íslenskur fjárhundur hittir kínverskan smáhund og sá kínverski geltir,.... skyldi sá íslenski skilja geltið eða er þetta kínverskt Voff ?
Ég gerði einu sinni smá tilraun í Danmörku. Var inni á dönsku heimili og þar var labradorhundur. Hann hlýddi skipun eiganda síns um að setjast. Hann hlýddi mér líka þegar ég sagði honum að setjast á dönsku. Ef ég hins vegar notaði sama látbragð en sagði "sestu" á mínu ylhýra máli, þá horfði hann bara á mig með heimskulegum hundasvip og gerði ekki neitt. Hann skildi ekki íslenskuna.
En er Voff alþjóðlegt ?
.
Flokkur: Spil og leikir | Facebook
Um bloggið
Sparisjóður grínista og nágrennis.
Eldri færslur
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Gíslína Erlendsdóttir
- Brattur
- Ragnheiður
- Hrönn Sigurðardóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Hugarfluga
- Halldór Egill Guðnason
- Sæmundur Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Gulli litli
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Marinó G. Njálsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Þorsteinn Sverrisson
- Árni Gunnarsson
- Bergljót Hreinsdóttir
- Finnur Bárðarson
- Bjarni Harðarson
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Steingrímur Helgason
- Guðni Már Henningsson
- Íris Guðmundsdóttir
- Edda Agnarsdóttir
- Rannveig Guðmundsdóttir
- Kristjana Bjarnadóttir
- Erna Bjarnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
- Haraldur Sigurðsson
- Ásgeir Kristinn Lárusson
- Daði Ingólfsson
- Óskar Þorkelsson
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Egill Bjarnason
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Kát Svínleifs
- Einar Indriðason
- arnar valgeirsson
- Kama Sutra
- hilmar jónsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- AK-72
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- Dísa Dóra
- Sigurður Einarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Jóhannes Guðnason
- Brynjar Jóhannsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Magga tagga
- Fanney Björg Karlsdóttir
- Tófulöpp
- Valgeir Skagfjörð
- kop
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Björgvin R. Leifsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Svanhildur Karlsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Aprílrós
- Guðrún Björk
- Guðmundur Óli Scheving
- Helgi Jóhann Hauksson
- Katan
- Páll Rúnar Elíson
- Þórir Aðalsteinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristín Snorradóttir
- Þorsteinn Briem
- Gunnar Níelsson
- Jón Ólafur Vilhjálmsson
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Heiða B. Heiðars
- Þórdís tinna
- Eva Hrönn Jóhannsdóttir
- Jóhannes Freyr Stefánsson
- kloi
- Bjarndís Helena Mitchell
- Ragnar Gunnarsson
- Brynja skordal
- Vefritid
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Árelía Eydís Guðmundsdóttir
- Garún
- Hörður B Hjartarson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Ég held að þetta sér rétt hjá þér. Íslenskir hundar skilja íslensku, kínveskir kínversku o.s.frv. Akomendur hunda sem Vestur-Íslendingar fóru með til Winnepeg skilja t.d. mjög fáir orðið íslensku í dag. Aðeins örfáir hundgamlir seppar. Þetta er víst alveg að deyja út þarna vestur frá.
Þorsteinn Sverrisson, 1.2.2008 kl. 17:23
Já... Vofflenskan er snúið tungumál....
Brynjar Jóhannsson, 1.2.2008 kl. 17:26
Las um rannsókn þar sem hundum var jafnað á við Simpansa í greind, og minnir að málskilningur hunda sé meiri en apanna.
Enginn furða, búnir að hlusta á röflið í okkur í margar kynslóðir.
Þorsteinn Valur Baldvinsson, 1.2.2008 kl. 17:34
Reyndi að ræða við hund í Kína um daginn, en ekkert gekk, alveg sama hvað ég reyndi. Þeir smakkast hins vegar ágætlega í Kína, en það er önnur saga og ekki orð um það meir. Voff er greinilega ekki bara voff, það er ljóst. Annars hélt ég í fyrstu að hundurinn hægra meginn væri svona "gólfhreinsiróbot" sem þrífur meðan maður er að heiman. Sé það núna að þetta er bara gólfhreinsir. Ekkert með róbót að gera. Það sem maður getur annars bullað og tuðað...
Halldór Egill Guðnason, 1.2.2008 kl. 17:47
Einn vinur minn sagði að Voff þýddi: Ég er gæi.
Gunnar Helgi Eysteinsson, 1.2.2008 kl. 18:12
De spiser ju hunder i Kina - það er soldið OFF...
Ásgeir Kristinn Lárusson, 1.2.2008 kl. 19:30
Ég er með fína hunda í voff upptökur
Ragnheiður , 1.2.2008 kl. 19:54
Athyglisverð pæling Anna......var einmitt með Bóndann og tíkina á hlyðninámskeiði....... merkilegt hvað tíkinni gekk betur að læra að hlýða en Bóndanum..... en það er nú annað mál....... en á námskeiðinu lærði tíkina að setjast á skipun frá mér sem inniheldur bæði munnlega og verklega skipun... þ.e. um leið og ég segi sestu þá bendi ég henni á að setjast..... kanski þetta sé gert til að danir og aðrir útlendinga geti skipað henni að setjast á sínu tungumáli...... veit ekki ..... bara svona vitsmunaleg pæling....
Fanney Björg Karlsdóttir, 1.2.2008 kl. 23:59
Ég er með nýja dellu núna, mig langar að eignast hund og kött og helst hænur líka, mér er alveg sama á hvaða tungumáli þessi dýr tala, svo þarf ég kannsi að eignast garð fyrir hænurnar. Ef ég læt eftir mér að fá mér belju þá þarf ég sennilega heila jörð og ég nenni því ekki, langar samt líka í belju.
Maddý (IP-tala skráð) 2.2.2008 kl. 00:13
.... veistu Maddy.... þetta er skynsöm og skemmtilega della...... sjálf á ég hund, kött, hænur, kynvilltan hana ...en það er nú annað mál.... og svo er ég með hesta líka...... þetta er lífið.... eina sem mig vantar akkurt núna er lítinn sætan kettling..... helst læðu....
Fanney Björg Karlsdóttir, 2.2.2008 kl. 09:24
sko Íslenska tíkin mín og þýski fuglahundurinn minn eru alveg að tala saman, reyndar fer sá þýski oft í taugarnar á þeirri Íslensku en er það ekki bara þjóðarrembingur
Kristín Snorradóttir, 2.2.2008 kl. 15:01
Dóttir mín sagði einu sinni við mig að kettlingurinn okkar þekkti orðið nafnið sitt. Kettlingurinn sat í gluggakistunni og var að góna á eitthvað úti og dóttir mín segir frekar lágum rómi: "Tinni!". Þá leit kettlingurinn við og stelpan mín sagði hróðug; "sko!" Tinni hélt svo áfram að góna út. Þá sagði ég lágum rómi "Guðmundur!" ... og Tinni leit við á alveg sama hátt.
Gunnar Th. Gunnarsson, 3.2.2008 kl. 17:18
Kannski hét kettlingurinn Guðmundur Tinni ?
Anna Einarsdóttir, 3.2.2008 kl. 17:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.