Hestarnir.

.

Ívar

. koníak

 

 

 

 

 

 

.

 

.

Má ég kynna:  Ívar, móálóttur litföróttur og Koníak, jarpskjóttur... úr minni eigin hrossarækt.  Wink

Hestarnir voru teknir á hús í dag.  Ég komst að því í leiðinni að mig vantar kúlu.  Þegar ég ætlaði að hengja hestakerruna aftan í bílinn, greip ég í tómt.  Engin kúla !!  Svik og prettir að selja manni kúlulausan bíl.  Pouty  Jæja, skítt með það... Smile

Mig langaði bara að sýna ykkur myndir af mínum gullfallegu gæðingum. 

.

hest . hestur

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Báðir yndislegir, hvað heitir sá skjótti?

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 2.2.2008 kl. 17:46

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Koníak. 

Anna Einarsdóttir, 2.2.2008 kl. 17:48

3 Smámynd: Ragnheiður

nei vá...flottir ! Pant heimsækja þá um leið og þig hehe

Ragnheiður , 2.2.2008 kl. 17:48

4 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Þegar eitthvað er frábært, þá stimpla ég þessum stimpli

Gunnar Helgi Eysteinsson, 2.2.2008 kl. 18:13

5 identicon

Anna, ekki misskilja mig vitlaust,en áttu nokkuð hest sem er snöggbrúnyrjóttur,veit ekki hvaða litur það er en ég sá svona hest vestur  í Grundarfirði um daginn mér var sagt að litur hestsins væri semsagt ,,snöggbrúnyrjóttur,,hef aldrei heyrt þetta áður.Þá var mér sagt að hann hesturinn kæmi frá sunnan megin af Nesinu,þekkirðu þennan lit þaðan þú ert nú frá ,,sunnan,, megin af nesinu.Hesturin þinn, Koníak er glæsilegur.

Númi (IP-tala skráð) 2.2.2008 kl. 18:16

6 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Snöggbrúnyrjótt er ekki til.  Það hefur einhver verið að djóka í þér.

Anna Einarsdóttir, 2.2.2008 kl. 18:32

7 Smámynd: Hugarfluga

Ó, en fallegir hestar og falleg kona!

Hugarfluga, 2.2.2008 kl. 18:46

8 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

glæsilegir hestar...... mmmm ég finn allveg lyktina hingað..... yndislegt.....finnst þér það ekki...

Fanney Björg Karlsdóttir, 2.2.2008 kl. 19:06

9 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Fjarskafallegir hestar, hvar lætur þú sprauta þennan litförótta, er bílamálari í Borganesi

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 2.2.2008 kl. 20:41

10 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Löngu hætt að tala um skjótt æi mynni fjölskyldu, dóttir mín kallaði þá Indíána póní og það er bara notað um alla skjóttu lita flóruna í dag.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 2.2.2008 kl. 20:44

11 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Koníak ber með sér að vera ungur og viljugur, glæsileg hross. Það er ekki laust við að það taki sig upp gamall fiðringur

Gunnar Th. Gunnarsson, 2.2.2008 kl. 20:57

12 identicon

Svakalega fallegir hestar, ég þekkti einu sinni meri sem hét Bristol eins og sherrýið.

Kveðja í hesthúsið

Maddý (IP-tala skráð) 2.2.2008 kl. 21:08

13 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Maður verður bara tárbrestóttur við að sjá þessi fallegu skinn...

Ásgeir Kristinn Lárusson, 2.2.2008 kl. 22:05

14 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Glæsilegar skepnur sem þú heldur Anna, enda ekki við öðru að búast. Átti eitt sinn hest sem mér var sagt að væri "vindóttur". Svo langt síðan að elstu menn muna ekki neitt. Þetta var glæsilegur hestur, yfir einn og fimmtíu á kambinn og fór létt með tuðarakvikyndið, enda hann ekki nema milli tektar og tvítugs. Ljótt að heyra þetta með kúluna. Hvar var fyrirhyggjan eiginlega? Annars er ég alltaf að bíða eftir því að Brattur, besti vinur, sendi okkur myndir af köflótta hestinum sem hann hitti í Hunaveri í sumar.

Halldór Egill Guðnason, 2.2.2008 kl. 23:04

15 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Þeir eru krútt hestarnir þínir. Ég er hrifin af litnum á ÍVARI.

Edda Agnarsdóttir, 2.2.2008 kl. 23:20

16 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Þið eruð glæsilegir bloggvinir. 

Hér með lofa ég að birta myndir aftur í vor.  Þá verður sá litförótti öðruvísi á litinn.  Það eru einungis 2-300 litföróttir hestar til í öllum heiminum og undanfarin ár hefur verið í gangi átak til að fjölga litföróttum hrossum svo þau deyi ekki út.   Ykkur til fróðleiks eru mörg afbrigði af litförótta litnum;  þ.e. grunnliturinn getur verið rauður, brúnn, jarpur.... en litförótt þýðir að búkur hestsins lýsist upp tvisvar til þrisvar á ári en fætur og höfuð halda sama lit.  Skemmtilegt !

Koníak er fjörugur - eins og nafnið ber með sér.

Hér með skorum við á Bratt að birta myndir af köflótta hestinum. 

Ragnheiður.... ég er búin að hella á könnuna. 

Anna Einarsdóttir, 2.2.2008 kl. 23:53

17 Smámynd: Brattur

... ha, já... nú þarf ég að finna þessa mynd af þeim köflótta... hún kemur fyrr en síðar... sjáið bara til...

Brattur, 3.2.2008 kl. 00:17

18 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Íslenskir hestar eru dásamlegustu dýr í veröldinni... að íslenska fjárhundinum undanskildum...

Lára Hanna Einarsdóttir, 3.2.2008 kl. 00:47

19 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Sem sagt, 2-3 á ári þarftu að drösla klárnum inn í sprautuklefa í Borganesi og láta líma yfir haus og fætur, sprauta búkinn í tískulitum ársins, og ríða svo um á flottasta hestinum á staðnum.

Þú ert snillingur Anna, hvernig datt þér þetta í hug.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 3.2.2008 kl. 01:04

20 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Pabbi sprautaði bíla og var uppfinningamaður.  Það segir sig sjálft að afkvæmið lærir af því sem fyrir því er haft. 

Anna Einarsdóttir, 3.2.2008 kl. 01:07

21 identicon

Glæsilegir hestar hjá þér Anna.  Það fer alveg um mig gamli þægindahrollurinn sem fylgir því að vera í nálægð við hrossin.  Bara yndisleg dýr

Guðrún Arna Möller (IP-tala skráð) 3.2.2008 kl. 01:53

22 Smámynd: Árni Gunnarsson

Hestar eru falleg dýr, en misfallegir eru þeir nú blessaðir nema kannski í augum eigendanna. Vindhærðir og loðnir, nýkomnir á hús sýna þeir nú varla sitt besta.

En svona rauðjarpskjóttur litur er mitt uppáhald. Út af þannig litri hryssu ræktaði ég nokkur af bestu reiðhrossum landsins á þeirri tíð. Þessi hryssa hét Fjöður og hafði ættbókarnr. 4120. Hún var líklega minnsta hross sem fengið hefur 1. verðl. á kynbótasýningu en það fékk hún fyrir afkvæmi árið 1974.

Hæð á herðakamb var 124 cm, bandmál!!!!!

Árni Gunnarsson, 3.2.2008 kl. 09:34

23 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Árni.   Ég er forvitin og hef ekki aðgang að Feng.  Mig langar að vita meira um Fjöður.  Má ég spyrja um ætterni hennar og einhver afkvæmi ? 

Anna Einarsdóttir, 3.2.2008 kl. 12:42

24 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Flott nafn Koníak!

Hrönn Sigurðardóttir, 3.2.2008 kl. 18:51

25 identicon

Anna já hann pabbi þinn var mikill uppfinningarmaður,ég man svo vel eftir vindmyllunum hans,hann var langt á undan sinni samtíð.

Númi (IP-tala skráð) 3.2.2008 kl. 22:41

26 Smámynd: Erna Bjarnadóttir

Hvernig eru þessir stólpagripir þínir ættaðir Anna?

Erna Bjarnadóttir, 4.2.2008 kl. 18:41

27 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Sá litförótti er undan Skímu frá Brjánslæk og Galdri frá Laugavatni.  Sá skjótti er undan Indíánaskjónu frá Skíðsholtum og Guma frá Laugavatni. 

Anna Einarsdóttir, 4.2.2008 kl. 19:10

28 Smámynd: Erna Bjarnadóttir

Ó ekki slæmt, ég á eina undan Ham frá Þóroddsstöðum sú á líka bróður undan Guma

Erna Bjarnadóttir, 4.2.2008 kl. 20:51

29 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Hamur er mikill hestur.  Laugavatnsklárarnir eru umdeildir... eins og reyndar flestir stóðhestar.  Mikil pólitík í gangi í þeim bransanum.  Mér líkar hins vegar ljómandi vel við þá. 

Anna Einarsdóttir, 5.2.2008 kl. 00:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 342849

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband