26.6.2009 | 18:30
Það reddast.
Við lifum erfiða tíma á suma vegu; Kreppa, Icesave, óréttlæti...... og ljúfa á aðra; bongóblíða, fegurð Íslands, trú á réttlæti.
.
Icesave málið er svo stórt að mér finnst engan veginn hægt að taka einarða afstöðu. Ekki veit ég hvað gerist ef við skrifum ekki upp á lánið. Ekki veit ég heldur nákvæmlega hvað gerist ef við skrifum upp á lánið ?
Ljóst er að hvorutveggja eru afar slæmir kostir en hvor er skárri ?
Í augnablikinu hallast ég að því að við eigum að skrifa upp á vegna þess að ég óttast afleiðingarnar, gerum við það ekki. Síðan eigum við að leggja ofuráherslu á að ná aftur peningum auðmannanna, þeim hinum sömu og settu okkur á hausinn og nýta þá peninga til að greiða niður skuldina. Í öðru lagi eigum við einhverja von í olíuauðlindum. Hugsanlega og mögulega mun það bjarga okkur. Kannski er þetta dæmigerður íslenskur hugsanaháttur...... að þetta reddist einhvern veginn. En ég er jú rammíslensk og ennþá stolt af því þrátt fyrir allt.
.
Sjálf ætla ég að taka mér smá hvíld frá blogginu. (þegar ég gerði það í fyrra varð ég svo frjó í hugsun að ég gat ekki hætt að blogga) Núna er ég í sumarfríi og reyni að njóta þess eins og best ég get. Geri vonandi eitthvað svakalegt af mér, sem bloggandi er um síðar.
.
Þangað til........ njótið dagsins því hann kemur ekki aftur.
.
.
.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Sparisjóður grínista og nágrennis.
Eldri færslur
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Gíslína Erlendsdóttir
- Brattur
- Ragnheiður
- Hrönn Sigurðardóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Hugarfluga
- Halldór Egill Guðnason
- Sæmundur Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Gulli litli
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Marinó G. Njálsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Þorsteinn Sverrisson
- Árni Gunnarsson
- Bergljót Hreinsdóttir
- Finnur Bárðarson
- Bjarni Harðarson
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Steingrímur Helgason
- Guðni Már Henningsson
- Íris Guðmundsdóttir
- Edda Agnarsdóttir
- Rannveig Guðmundsdóttir
- Kristjana Bjarnadóttir
- Erna Bjarnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
- Haraldur Sigurðsson
- Ásgeir Kristinn Lárusson
- Daði Ingólfsson
- Óskar Þorkelsson
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Egill Bjarnason
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Kát Svínleifs
- Einar Indriðason
- arnar valgeirsson
- Kama Sutra
- hilmar jónsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- AK-72
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- Dísa Dóra
- Sigurður Einarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Jóhannes Guðnason
- Brynjar Jóhannsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Magga tagga
- Fanney Björg Karlsdóttir
- Tófulöpp
- Valgeir Skagfjörð
- kop
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Björgvin R. Leifsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Svanhildur Karlsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Aprílrós
- Guðrún Björk
- Guðmundur Óli Scheving
- Helgi Jóhann Hauksson
- Katan
- Páll Rúnar Elíson
- Þórir Aðalsteinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristín Snorradóttir
- Þorsteinn Briem
- Gunnar Níelsson
- Jón Ólafur Vilhjálmsson
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Heiða B. Heiðars
- Þórdís tinna
- Eva Hrönn Jóhannsdóttir
- Jóhannes Freyr Stefánsson
- kloi
- Bjarndís Helena Mitchell
- Ragnar Gunnarsson
- Brynja skordal
- Vefritid
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Árelía Eydís Guðmundsdóttir
- Garún
- Hörður B Hjartarson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Ég ætla bara rétt að vona að þú sért búin að sétja niður kartöflunar!!
Hrönn Sigurðardóttir, 26.6.2009 kl. 18:43
Búin að setja niður kartöflurnar OG gulræturnar OG taka upp rabbarbara OG gera rabbarbarasultu. Púff..... ég verð nú bara þreytt af að telja upp allt sem ég hef gert í garðyrkju þetta árið.
Anna Einarsdóttir, 26.6.2009 kl. 20:25
Myndin er flott
Hafðu það gott í fríinu.
Kristjana Bjarnadóttir, 26.6.2009 kl. 20:59
"Ljóst er að hvorutveggja eru afar slæmir kostir en hvor er skárri ?" Mjög skynsamleg spurning Anna. Hvernig í ósköpunum á meðalJóninn að átta sig á stöðunni? Við fáum ekkert að vita! Á meðan svo er á ekki að skrifa undir. Alveg 100% viss um að þú hefur aldrei skrifað undir óútfyllt skuldabréf, ef marka má skákhæfileika þína. Annars er þetta ein besta mynd sem ég hef séð af vínrekka. Sennilega færi betur að það væru kettlingar í öllum rekkanum mínum. Maður tuðaði þá sennilega minnaEigðu gott frí og vonandi finnið þið köflótta hestinn í Blöndudalnum, saman í sumar
Halldór Egill Guðnason, 27.6.2009 kl. 01:09
Ég er blessunarlega fjarri góðu gamni í þessu öllu saman, en skammast mín ekkert fyrir að vera Íslendingur.
Þó ég sé hinu megin á hnettinum, þá er ég stundum spurður út í þetta ástand og reyni að útskýra það eftir bestu getu.
Þú verður að drífa köttinn í afvötnun, það gengur ekki að láta hann liggja svona í rauðvíninu.
kop, 27.6.2009 kl. 12:27
Hafðu það gott í fríinu Anna mín
Ragnheiður , 27.6.2009 kl. 15:06
sammála kop. kisi þarf að fara að stramma sig af.
Brjánn Guðjónsson, 28.6.2009 kl. 02:54
Hafðu það gott í sumarfríinu Anna mín - sá mynd af þér einhversstaðar í húsmæðraorlofi!
Edda Agnarsdóttir, 28.6.2009 kl. 08:30
Flott myndin.
Hafðu það gott í fríinu og njóttu þess í botn ;)
Knús og kreist ;)
Aprílrós, 28.6.2009 kl. 20:40
Hlakka til ad sja tig mamma min !
Íris Guðmundsdóttir, 28.6.2009 kl. 23:50
Ég er sammála þér báðir kostir eru slæmir, en af tvennu illu þá ....... er ég líka sammála þér ! - Hafðu það sem allra best í sumarfríiu þínu. Skemmtileg mynd, hann ætlar sem sagt að liggja í'ðví, sá litli meðan þú nýtur orlofsins?
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, 29.6.2009 kl. 00:37
Sumarið er yndilegur tími, veturnir eru skemmtilegir, vor og haust eru lofandi.
Ég er þér svo sem sammála Anna, en lít þó frekar á að það hafi verið skrifað upp á þetta í okkar umboði fyrir löngu síðan. Þrátt fyrir að hafa hvorki kosið Dabba né Dóra, þá er ég jafn ábyrg og þeir sem það gerðu af því að ég bý samfélagi sem er með stjórnarskrá sem samþyktt hefur verið á Alþingi Íslendinga og erum við ekki öll hluti af því.
Það sem mér finnst undarlegast að þeir sem eru í forsvari fyrir þá sem sökina eiga hvað mesta, láta allir verr en hálfvitar, firra sig allri ábyrgð og þykjast geta gert betur. Hvar eru þau Þorgerður Katrín og Bjarni Ben sem ætluðu að klára dæmið. Hvað leggja þau til?
Hef sagt það áður og segi það enn, ég vil frekar deyja snauð en að skammast mín fyrir að sýna vegabréfið mitt.
Ingibjörg Friðriksdóttir, 29.6.2009 kl. 01:18
Gleymdi að óska þér gleði og gæfu í sumarfríinu og gerið það því hér með!
Ingibjörg Friðriksdóttir, 29.6.2009 kl. 01:19
Úff...erfitt að segja...afleiðingarnar virðast slæmar á alla kanta....en vonandi fer þetta allt betur en það lítur út fyrir núna í augnablkinu...
Njóttu frísins...hlakka til að lesa þig aftur að fríi loknu!!!!
Bergljót Hreinsdóttir, 5.7.2009 kl. 23:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.