Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2009
30.8.2009 | 15:26
B og C fóru í bíó og skildu A útundan.
Hugsanir mínar, fyrstu mínúturnar eftir að ég vakna á morgnana, eru á stundum svo furðulegar að það er á mörkunum að ég viðurkenni þær opinberlega.
Í morgun vaknaði ég til dæmis með þessar pælingar;
Ef A er B
og B er C
geta B og C farið saman í bíó
en hvað verður þá um A ?
.
.
Er ég kannski óuppgötvaður stærðfræðisnillingur ?
29.8.2009 | 10:24
Fimmaurinn...
Dvergur og svertingi hittust í lyftu og ákvað svertinginn að vera kurteis og kynna sig. Blessaður. Ég er tveir og tíu á hæð, 120 kíló, atvinnumaður í körfubolta, er með 60 sentimetra kvikindi undir mér og heiti Turner Brown.
Skipti engu en að það steinleið yfir dverginn.
Turner beygði sig yfir hann alveg eyðilagður. Er ekki í lagi með þig spurði hann þegar dvergurinn komst til meðvitundar. Viltu endurtaka það sem þú sagðir stundi dvergurinn. Ég er tveir og tíu á hæð, 120 kíló, atvinnumaður í körfubolta, er með 60 sentimetra kvikindi undir mér og heiti Turner Brown.
Guð sé lof. Mér heyrðist þú segja: turn around,,,,,,
.
.
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 10:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.8.2009 | 20:20
Ford Buick.
Ég stend fyrir utan æskuheimili mitt.
Nokkrum metrum frá mér stendur eldrauður, gullfallegur, Ford Buick.
Ég velti því fyrir mér hver eigi bílinn og geng af stað til að skoða hann betur.
Þegar ég kem að bílnum átta ég mig á því að hann er bara "sýn".
Bíllinn er ekki í efnislegu formi og ég get gengið í gegnum hann.
Enginn sér bílinn nema ég en fyrir mér er hann mjög greinilegur.
.
.
Þennan draum dreymdi mig.
Nú spyr ég.... er ég skyggn eða er ég klikk ?
.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
24.8.2009 | 23:04
Margt merkilegt á netinu.....
Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, segir viðskiptabankana berjast gegn frumvarpi sem miðar að því að bæta stöðu skuldara gagnvart lánveitenda. Samkvæmt frumvarpinu er lögð til sú breyting að lánveitandi, sem lánar fé gegn veði í fasteign, megi ekki ganga að öðrum eigum lántakans en viðkomandi fasteign.
Þessi frétt vakti ekki endilega sérstaka athygli mína, heldur ein afar merkileg athugasemd við umfjöllun um fréttina. Hér er úrdráttur úr athugasemdinni;
.
.
Jasso !
Ég verð að taka undir orð þessa manns. Hann er örugglega sá eini á Íslandi sem hefur nógu mikla forsenduþekkingu og greind til að skilja sjálfan sig.
Ég er að minnsta kosti alveg mát þegar kemur að því að skilja hvernig honum tekst að orða hlutina svona.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 23:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.8.2009 | 11:11
Breyttu bróður þínum......
Í gærkvöldi horfði ég á myndina Rush Hour 3.
Hún byrjaði frekar leiðinlega en dóttir mín sagði að hún væri fyndin, svo ég sat áfram.
Sem betur fer.
Myndin fjallar m.a. um tvo bræður. Annar þeirra er bófi en hinn lögga. Þeir elda grátt silfur saman.
Í einu atriði myndarinnar eru bræðurnir að skylmast og má ekki á milli sjá hvor mun hafa betur.
Lögreglubróðirinn hefur félaga sinn, aðra löggu, með sér og félaginn hvetur hann grimmt áfram í bardaganum.
.
.
Eitt hvatningarópið var;
"Breyttu bróður þínum í systur þína" !
Sjónvarp | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.8.2009 | 13:42
GTO og GEO og RPI og WGP !
Ég er hætt að skilja fréttir og held reyndar að það sé engin tilviljun.
GTO er að sameinast GEO, RPI og WGP.
Ég hef það á tilfinningunni að viljandi séu hlutir flæktir þannig að hinn almenni Íslendingur skilur ekki upp né niður í fréttum af sölu á auðlindum landsins.
Mig langar að benda á blogg Láru Hönnu sem aftur bendir á blogg Öldu Sigmundsdóttur.
Er verið að úthluta auðlindum þjóðarinnar til fárra útvalinna meðan ríkisstjórn Íslands er upptekin við að leysa þann vanda sem einmitt úthlutun bankanna til fárra útvalinna olli ?
Stoppum þessa endalausu vitleysu !
.
.
Hlutafé fyrir 21 milljarð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.8.2009 | 11:08
Heimspeki.
Þessi færsla flokkast undir heimspeki. Fyrir því eru tvær ástæður; allt sem frá mér kemur er spekingslega sagt.... .... og ég ætla í stuttu máli að fjalla um fólk sem kemur utan úr heimi og þarf að læra okkar ástkæra ylhýra tungumál.
Hvað fyndist þér um að læra erlent tungumál og það hljómaði einhvern veginn svona;
Hukkalla a lukkala pukkala sa sukkala ?
.
.
Íslenskan er nefnilega í þessum dúr:
Egill á þvegil, spegil og dregil.
Dr Egill á Dregil.
.
Fyrirgefðu stríðnina Dr. Egill frændi.
Heimspeki | Breytt s.d. kl. 11:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
13.8.2009 | 12:27
Stuttur fattari.
Ætli það sé misjafnt hvað fólk fæðist með langan fattara ?
Minn fattari er t.d. í styttra lagi. Stubbur !
Eins mikið og ég get bullað þegar þannig liggur á mér, getur verið með ólíkindum hvað ég er stundum lengi að fatta bull annarra.
.
.
Nýlega sagði við mig gömul sveitunga (nýyrði - kvk. sveitungi) að það væri alveg frábær nýjung þetta rauða grænsalat.
Ég játti því enda alltaf gaman að fá nýjungar í matvælaflóruna.
Hún kom svo aftur og endurtók að þetta væri óendanlega skemmtilegt að geta keypt rautt grænsalat.
Ég var yfir mig glöð yfir því hversu mikla gleði nýja grænsalatið færði henni.
En svo....... nokkrum kílómetrum seinna...... fattaði ég djókið.
RAUTT GRÆNSALAT !
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.8.2009 | 21:11
Þúsund minnismiðar ......
Bloggið er ekkert svipað því sem var þegar ég byrjaði.
Þá var grínast og djókað og spaugað og fíflast og hnoðað saman bulli eins og mann lysti.
Í dag eru mjög margir bloggarar mjög alvarlegir.
Eins og það lagi eitthvað ?
Einhvern tíma var sagt að maður ætti bara að borga og brosa.
Ef ég á að borga skuldir annarra ætla ég sannarlega að brosa því þá fæ ég kannski eitthvað örlítið fyrir peninginn.
Hugsanlega bros á móti. Frá gjaldkeranum eða eitthvað.
.
.
Á síðustu helgi var ég stödd á pæjumóti á Siglufirði. Pæjur mæta jú á pæjumót.
Þegar ég kíkti einn rúnt um bæinn sá ég óvenjulegan bíl;
.
.
Vá hvað þessi er gleyminn !
Þetta eru frekar margir minnismiðar.
Hann hefur líklega lagt bílnum þarna af því hann mundi ekki hvort hann var að koma eða fara.
Kannski man hann heldur ekki að hann á bíl ?
Annars man ég ekki hvað ég ætlaði að skrifa meira.
.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
3.8.2009 | 18:06
Kona spyr sig !
Hver setti salt í sjóinn ?
.
.
Hverjum datt í hug að bora ofan í jörðina þar til olía fannst ?
.
.
Vissi kannski einhver af olíunni ?
.
.
Hvernig gat einhver vitað að olía væri góð á bíla ?
.
.
Ég bara skil þetta ekki !
Um bloggið
Sparisjóður grínista og nágrennis.
Eldri færslur
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Gíslína Erlendsdóttir
- Brattur
- Ragnheiður
- Hrönn Sigurðardóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Hugarfluga
- Halldór Egill Guðnason
- Sæmundur Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Gulli litli
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Marinó G. Njálsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Þorsteinn Sverrisson
- Árni Gunnarsson
- Bergljót Hreinsdóttir
- Finnur Bárðarson
- Bjarni Harðarson
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Steingrímur Helgason
- Guðni Már Henningsson
- Íris Guðmundsdóttir
- Edda Agnarsdóttir
- Rannveig Guðmundsdóttir
- Kristjana Bjarnadóttir
- Erna Bjarnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
- Haraldur Sigurðsson
- Ásgeir Kristinn Lárusson
- Daði Ingólfsson
- Óskar Þorkelsson
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Egill Bjarnason
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Kát Svínleifs
- Einar Indriðason
- arnar valgeirsson
- Kama Sutra
- hilmar jónsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- AK-72
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- Dísa Dóra
- Sigurður Einarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Jóhannes Guðnason
- Brynjar Jóhannsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Magga tagga
- Fanney Björg Karlsdóttir
- Tófulöpp
- Valgeir Skagfjörð
- kop
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Björgvin R. Leifsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Svanhildur Karlsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Aprílrós
- Guðrún Björk
- Guðmundur Óli Scheving
- Helgi Jóhann Hauksson
- Katan
- Páll Rúnar Elíson
- Þórir Aðalsteinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristín Snorradóttir
- Þorsteinn Briem
- Gunnar Níelsson
- Jón Ólafur Vilhjálmsson
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Heiða B. Heiðars
- Þórdís tinna
- Eva Hrönn Jóhannsdóttir
- Jóhannes Freyr Stefánsson
- kloi
- Bjarndís Helena Mitchell
- Ragnar Gunnarsson
- Brynja skordal
- Vefritid
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Árelía Eydís Guðmundsdóttir
- Garún
- Hörður B Hjartarson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði