27.1.2008 | 22:19
Eins gott !
.
Alvöru vini má þekkja á því að þótt þú hafir
gert þig að algjöru fífli, finnst þeim þér samt
við bjargandi.
.
.
27.1.2008 | 12:25
Sparisjóður grínista og nágrennis - uppgjör.
Sparisjóðurinn var stofnaður í mars 2007 og hefur reksturinn gengið bærilega.
Eins og staðan er núna, erum við í frjálsu falli, samkvæmt nánasta ráðgjafa sjóðsins, Bobotov. Takið eftir bloggvinalistanum hans. Sparisjóðsstjórinn hefur sérstakar mætur á fólki sem hefur svona afburðagóðan smekk.
Eruð þið búin að kíkja á Bobo ?
------------------------------------
Ok, þá held ég áfram.
SGON fjárfesti í málverki á árinu, eins og Sparisjóða er siður, venja og hefð.
.
.
Það held ég nú. Þessa mynd málaði vinkona mín, Helena. Klíkuskapur og ekkert annað, eins og fyrirtækja er siður, venja og hefð.
--------------------------------------
Sparisjóðurinn opnaði tvö útibú erlendis á árinu. Annað útibúið er í Noregi og þar réð ég auðvitað vinkonu mína, hana Helenu.
Hitt útibúið er rekið í Svíþjóð, af Gunnari Svíafara. Gunnar þroskaðist mikið í starfi á árinu. Reyndar leit hann út eins og tveggja ára þegar ég réð hann..... síðan breyttist hann, nánast yfir nótt. Það er áhyggjuefni fyrir Sparisjóðinn því með þessu áframhaldi verður hann orðinn ellilífeyrisþegi um mitt árið. Verkefni Gunnars eru aðallega að laga útlit og virkni bloggsins fyrir Sjóðinn, auk þess sem honum er gert að benda á skemmtileg spil og leiki.
---------------------------------------
Eins og önnur fyrirtæki, ætlar Sparisjóðurinn að gera meira og meira og alltaf miklu meira en nokkurn tíma hefur áður þekkst.
Í bígerð er að fjárfesta í fleiri myndum og horfir SGON hýrum augum á myndirnar hjá Maddý. sem er besti fuglaljósmyndari í öllum heiminum. Jafnvel hefur komið upp sú hugmynd að fá eins og eina Kríu í LOGO sjóðsins. Það eru tilmæli sjóðsins að viðskiptavinir skelli sér á síðuna hjá Maddý og smelli þar á þessa mynd. Þá verður Maddý vinsæl í útlöndum og myndirnar verðmætari, sem er hagur sjóðsins ef af viðskiptum verður.
.
.
Eiginfjárstaða mín persónulega er allgóð en Sparisjóðurinn á lítið grín á lager. Eiginlega bara einn brandara. Ég biðla því til viðskiptavina að vera duglega að leggja inn spaug og spaug.
Sjaldan fellur grínið langt frá brandaranum.
26.1.2008 | 17:52
Maður er það sem maður hugsar.
.
Þegar snjór er yfir öllu og dagarnir dimmir, er gott að grafa upp mynd af fögru íslensku landslagi, tekna að sumarlagi......... og láta sig dreyma.
Ég vildi gjarnan vera stödd þarna, með tjald við árbakkann, liggja í grasinu og skoða himininn, lygna svo aftur augunum og anda að mér fersku fjallaloftinu. That is life !
.
25.1.2008 | 19:06
Til hamingju með daginn bændur !
.
.
Þið klikkið ekki á því, að þið eigið frí í dag.
Þar sem ég er frekar sveitó, gaf ég fyrrverandi kallinum eitt sinn dráttarvél í bóndadagsgjöf. Grínlaust ! Við skildum nú samt stuttu síðar. Kannski af því að þetta var gömul dráttarvél.
Fyrst ég er byrjuð að tala um hann; Þá kenndi hann mér, á sínum tíma, allt um skítadreifara. Við keyrðum hringinn í kringum landið og skoðuðum hvern einasta skítadreifara sem á vegi okkar varð. Hann dreymdi svo innilega um að eignast einn slíkan. Kannski skildum við af því að ég gaf honum dráttarvél en ekki skítadreifara.
24.1.2008 | 22:02
Halli skalli.
.
.
Nú kynni ég til sögunnar nýjan heimilisvin. Haraldur sköllótti heitir náunginn... kallaður Halli skalli. Hann er víst þannig karakter að ef hann fær nóg af góðum drykk, vex á hann hár... er mér sagt. Hahahaha..... ég trúi því ekki fyrr en ég sé það.
Ef að hið ómögulega gerist, mun ég umsvifalaust kalla hann Harald hárfagra.
Það sem mér finnst merkilegast, eru upplýsingar sem fylgdu með honum að það mætti alls ekki hrista hann. Ef að hann er hristur, vex nefnilega ekki á hann hár, heldur skegg !
Nú mæli ég með að þið konur, athugið mennina ykkar vel og vandlega. Hafi þeir mikið skegg, er líklegt að þeir hafi verið hristir til og tugtaðir í æsku.
Ég er að segj´ykkur það !
Og í Guðanna bænum, gefið mönnunum ykkar að drekka ef þeir eru sköllóttir.
23.1.2008 | 23:39
Tvíburaljósin mín.
Bestu bloggararnir eru, að mínu mati, þeir sem skrifa frá hjartanu. Þar nefni ég til dæmis bloggvinkonur mínar, þær Ragnheiði og Guðrúnu Örnu.
Aldrei á ég nú eftir að komast með tærnar þar sem þær hafa hælana en ætla þó að skrifa eins og eitt einlægt blogg...... blogga frá hjartanu.
Athugið að það verður bara eitt svona blogg...... og svo heldur bullið áfram.
------------------------------------------------
Fyrir 13 árum, varð ég ólétt. Þá átti ég fyrir tvö yndisleg börn. Fljótlega á meðgöngunni dreymdi mig draum. Mig dreymdi að ég fór í tvær mæðraskoðanir. Ekki hugsaði ég mikið um þennan draum, fyrr en mig dreymdi annan, aðeins síðar. Þá dreymdi mig að ég fékk tvo happadrættisvinninga.
Morguninn eftir þann draum, þegar ég mætti í vinnuna, sagði ég við stelpu sem vann með mér:
"Ef að ég geng með tvíbura, þá er ég berdreymin". Þessu kastaði ég fram í hálfkæringi, þar sem það hafði ekki, í eina mínútu, hvarflað að mér að ég gæti átt tvíbura. Engir tvíburar í ættinni, mér vitanlega.
Allnokkru síðar fer ég í fyrstu sónarskoðunina. Þá kom upp mynd af tveimur litlum krílum á skjánum. Þótt ég hefði átt að verða mjög hissa, varð ég það samt ekki. Draumarnir sátu enn í mér. Líður svo á meðgönguna. Þegar ég er komin 20 vikur á leið, missi ég dálítið legvatn. Var ég flutt í skyndi á sjúkrahús. Við skoðun kom í ljós að gat var komið á annan belginn. Mér var tjáð að litlar líkur væru á að meðgangan myndi takast, þar sem algengt væri að fæðing færi af stað fljótlega eftir svona legvatnsmissi.
Við tók spítalalega. Í tvær vikur lá ég á Akranesi en var síðan flutt til Reykjavíkur, á meðgöngudeild Landspítalans. Þar lá ég næstu vikurnar. Hver vika sem leið, var sem Guðs gjöf fyrir mig. Hver einasta vika, hver einasti dagur, taldi. Lífslíkur barnanna jukust. Eftir 26 vikna meðgöngu, gáfu læknarnir mér veika von. Meiri vonir eftir 27 vikur og eftir 28 vikur voru læknarnir farnir að brosa til mín. Líkurnar orðnar töluvert góðar. Allan tímann var ég viss um að þetta færi vel. Draumarnir !
Í 29. viku fór fæðing af stað. Læknarnir gáfu mér dripp, til að reyna að stöðva fæðinguna. Sólarhringurinn sem á eftir kom, er einn sá líkamlega erfiðasti, sem ég hef lifað. Að fæða barn undir venjulegum kringumstæðum, finnst mér eiginlega frekar lítið mál. Að vera með hríðar, sem eru stöðvaðar með lyfjum, verkar eins og ein stór samfelld hríð. Í sólarhring var ég með samfelldar hríðar og ofan í það kom óttinn um börnin mín. Loks gafst ég upp og sagði læknunum að ég gæti ekki meira. Bara gat ekki tekið meiri sársauka. Stúlkurnar mínar fæddust með 8 mínútna millibili það kvöldið.
Þær voru strax teknar frá mér og hlaupið með þær í burtu. Eftir, að því er mér virtist óratíma, kom læknirinn til mín. Hann sagði mér að því miður væri önnur dóttirin að deyja en góðu fréttirnar væru þær, að hin stúlkan fékk 9 í einkunn. 9 í einkunn þýðir 90% lífslíkur. Síðan spurði hann hvort við vildum sjá dótturina sem væri að fara ?
Hvernig svarar maður svona spurningu ? Á þessari stundu var ég örþreytt eftir átök í heilan sólarhring. Ég man að hugsanirnar flugu um kollinn á mér. Var ég tilbúin í þessa lífsreynslu. Gat ég horft á barnið mitt deyja ? Læknirinn hjálpaði mér. Hann sagðist ætla að koma með hana og svo hvarf hann fram.
Þegar þeir rúlluðu barninu inn í stofuna, var hún enn að taka síðustu andköfin. Það var hræðilegt að geta ekki hjálpað henni. Þetta var lífsreynsla sem markaði mig ævilangt. Ljósmyndir voru teknar af henni og hún kvödd af niðurbrotnum foreldrum.
Læknar og hjúkrunarfólk sögðu við okkur þessa undarlegu setningu: "Ég samhryggist og til hamingju".
Tilfinningar mínar voru frosnar. Ég grét ekki og ég var ekki glöð. Bara steinfrosin. Augnablik fékk ég að sjá hina dótturina í kassa á gjörgæslu barnaspítalans. Þær voru ólíkar systurnar en báðar svo fallegar. Rúmlega 4 merkur hvor en samt svo svipmiklar og "tilbúnar".
Daginn eftir var ég ennþá tilfinningalega frosin. Ég man að ég hafði sjálf áhyggjur af viðbrögðum mínum. Hvað var að mér ? Ég var að missa barnið mitt og ég grét ekki. Síðdegis þann dag kom yfirlæknirinn til mín. Hann brosti og sagði að sú litla spjaraði sig vel. Þá brustu hjá mér allar gáttir og ég grét lengi, lengi.
Næstu tveir dagar voru mjög sveiflukenndir hjá mér. Ýmist grét ég eða gladdist. Grét yfir dótturinni sem ég missti og gladdist yfir dótturinni sem ég átti. Löngum stundum sat ég yfir kassanum og horfði á dótturina. Langaði svo ofboðslega að halda á henni en það var ekki hægt. Ef hún grét í kassanum, grét ég fyrir utan kassann. Ég gat bara haldið í litlu hendina hennar.
Nú vík ég aftur að meðgöngunni. Þegar ég hafði legið í sex vikur samfellt á bakinu, fór ég að fá verk í nára. Ég hafði lítið getað hreyft mig í legunni, því ef ég færði mig á hliðina, fann ég að legvatnið lak. Þar sem það var lífsspursmál fyrir barnið að hafa legvatn, varð ég að liggja nánast eingöngu á bakinu allan tímann. Verkurinn í nára varð meiri og ég bað lækni að athuga mig. Hann setti mig í nýrnasónar en það kom ekkert út úr því. Þá var ekki meira gert. Hjúkrunarkonurnar vorkenndu mér að finna svona til og sendu mér nuddkonu. Hún nuddaði nárann en allt kom fyrir ekki. Ég var drulluaum.
Tveimur dögum eftir fæðinguna, tek ég eftir því, þegar ég er að koma af Barnadeildinni, að fóturinn er orðinn tvöfaldur. Ég hringi bjöllunni og bendi hjúkrunarkonu á afmyndaðan fótinn. Hún segist ætla að láta vita af þessu. Síðan er ekki meira gert. Hugur minn var allur hjá dótturinni og ég var auk þess dofin af atburðum liðinna daga svo ég hafði minnstar áhyggjur af sjálfri mér.
Fjórum dögum eftir fæðingu dætranna seig enn meira á ógæfuhliðina. Dóttir mín í kassanum átti orðið erfitt með andardrátt og allir mælar fóru í vitlausar áttir. Súrefnismagn í blóði minnkaði skv. mælunum og hún átti sífellt erfiðara. Þetta kvöld dó hún líka.
Ég fékk hana fyrst í fangið þegar hún var dáin. Það var sárara en hægt er að lýsa. Brjóstin mín full af mjólk og báðar dæturnar dánar. Við tókum langan tíma í að kveðja hana. Mér þótti vænt um að ein hjúkrunarkonan á deildinni grét líka yfir dóttur minni.
Aðeins ein pínulítil ljósglæta var í mínum huga, síðar þetta kvöld. Ég var á leiðinni heim til hinna barnanna minna. Útgrátin klæddi ég mig í fötin mín og gekk af stað út ganginn. Þá var kallað í mig. "Heyrðu, við áttum eftir að skoða á þér fótinn". Næst var ég send í hinn endann á spítalanum, niður allan ganginn. Við skoðun kom í ljós að ég var með stóran blóðtappa í aðalæð í nára. Afleiðing af langri legu, auk þess sem ófrískum konum er mun hættara að fá tappa en öðrum.
Eftir þessa niðurstöðu, var mér sagt að setjast í hjólastól og svo var aftur keyrt á fæðingardeildina og ég háttuð upp í rúm og sett á blóðþynningu í æð. Næsti sólarhringur myndi skera úr um hvort tappinn færi af stað eða ekki. Færi þá í lungun og líkurnar fyrir mig 50/50. Á þessari stundu var mér næstum því sama hvað um mig yrði.
Næstu daga lá ég á grænu klósetti á fæðingardeildinni. Það var eina einkastofan sem til var. Það slapp svosem til meðan ég lá þar. Það var miklu verra þegar ég gat farið aftur á stjá. Ofboðslega var erfitt að fara fram á gang og sjá allar glöðu, nýbökuðu mæðurnar með börnin sín. Nei, ég vildi helst bara vera inni á ljóta græna klósettinu.
Ég fékk að skreppa út dagpart til að vera við kistulagningu dætra minna. Athöfn þar sem eingöngu voru viðstaddir foreldrar, systkini, prestur og einn flautuleikari sem spilaði fyrir okkur Ave Maria.
----------------------------------------
Nú eru liðin rúm tólf ár síðan.
Fljótlega eftir missinn, ákvað ég að þetta yrði að hafa tilgang. Ég bara bjó til tilgang. Gerðist styrktarforeldri stúlku í Kashastan sem var fædd sama ár og hef styrkt hana síðan. Einnig hringdi ég í Ingibjörgu Pálmadóttur, þáverandi heilbrigðisráðherra og bað hana vinsamlegast að leiðrétta fæðingarorlof fyrir tvíburaforeldra. Fæðingarorlof á þeim tíma var 3 mánuðir fyrir eitt barn og 4 mánuðir fyrir tvíbura. Mér fannst það mjög óréttlátt og vildi ekki að tvíburaforeldrar framtíðarinnar byggju við það. Hún var sammála mér og leiðrétti þetta mjög fljótt. Þarmeð var kominn EINHVER tilgangur og það hjálpaði mér.
----------------------------------------
Það sem mig langar mest að koma á framfæri með þessari færslu er þetta:
Það koma upp þau tilvik í lífinu að maður hefur ekkert val. En.... maður getur alltaf valið hvernig maður bregst við erfiðleikunum. Erfiðleikar styrkja fólk og þroska. Ég verð alltaf þakklát fyrir þann þroska sem ég öðlaðist þarna, þótt ég sakni alltaf litlu ljósanna sem ég fékk ekki að hafa hjá mér í lífinu.
Ég hefði aldrei viljað missa af þessum litla tíma sem við áttum saman.
---------------------------------------
Tveimur mánuðum eftir fæðinguna, varð ég ólétt aftur. Það átti ég ekki að verða, samkvæmt fyrirmælum frá læknunum en það gerðist.... til allrar hamingju. Ég sprautaði mig með blóðþynningarlyfjum á meðgöngunni.
Lítil, falleg dóttir fæddist mér ellefu mánuðum eftir að ég missti tvíburana.
Hálfu ári eftir missinn mikla, fór húmorinn að gægjast í gegn hjá mér aftur.
Ég sagði: "Þrjú börn á einu ári. Tryggingastofnun heldur örugglega að ég sé kanína".
Bloggar | Breytt 24.1.2008 kl. 10:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (35)
23.1.2008 | 21:13
Strákarnir mínir :-)
Í tilefni dagsins birti ég hér mynd af SIGFÚSI FRÆNDA MÍNUM.
.
.
Hann veit nú reyndar ekkert af þessari frænku sinni.......... ennþá.
Erum við ekki næstum því alveg eins, ég og Fúsi ?
Hann er bara með aðeins stærra tattoo.
22.1.2008 | 21:39
Í kvöld varð ég 18 ára...
Guðrún Arna Möller er ný bloggvinkona mín. Mig langar að kynna hana fyrir ykkur.
Guðrún Arna hefur mikla lífsreynslu að baki og er rétt að byrja að segja sögu sína á blogginu. Ekki bara, hefur hún frá miklu og merkilegu að segja, heldur gerir hún það alveg snilldarvel. Mér fannst ég vera stödd í miðri atburðarásinni meðan ég las. Nú bíð ég eftir næsta kafla. Hún er upprennandi rithöfundur, spái ég. (maður verður að klæðast spákerlingarbúningi þegar svona stendur á).
Hér er linkur á síðuna hennar. Byrjið að lesa færsluna "Í kvöld varð ég 18 ára" sem þið finnið, með því að fara 4 færslur til baka.... skrolla niður. Færslan er dagsett 5. janúar 2008.
Njótið svo kvöldsins og gleymið ekki að knúsa hvert annað.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 21:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
21.1.2008 | 18:34
Fluggreindur hlunkur.
.
Depill kom á heimilið fyrir rúmlega tveimur árum, lítill, krúttilegur, ómótstæðilegur kettlingur.
Í dag er öldin önnur. Þessi feiti fress, flæðir út úr fletinu sínu.
Hann er sjálfur farin að sjá hversu fáránlega hann lítur út í litlu sætu rúmi.... en reyndi þó í lengstu lög að loka augunum fyrir þeirri staðreynd.
.
.
Það er erfitt að sofa með hausinn hangandi út úr rúminu. Depill ákvað að leita nýrra leiða til að fá hina fullkomnu hvíld og hugsaði stíft.... enda heilinn hans stærri en gengur og gerist í köttum.
.
.
Depill fann ráð. Hann þóttist vera handklæði.
.
.
Kunnið þið betra ráð ? *Fliss* Hélt ekki,, kötturinn er klárari.
17.1.2008 | 21:49
Pant ekki ver´ann.
Mikið er ég glöð. Það voru allavega fjórir bloggvinir mínir spurðir "Ert þú hann"? og það sagði enginn: "pant ekki ver´ann".
Svarið við síðasta bloggi er falið, einhvers staðar í þessu bloggi og það er ykkar að finna það.
.
------------------------------------------------
.
Úff..... ég er dálítið í uppnámi eftir handboltaleikinn. Verð að segja að Svend hinn Sænski hefði mín vegna mátt vera minna fjörugur fyrir 40 árum. Óþarfi að búa til svona markmann sem fer flikk, flakk, heljarstökk, spíkant og splitt.
Fæddist barnið ekki með liðamót ?
Ég ætla bara að muna flotta markið hans Loga og gleyma úrslitunum.
Og svo undirbúum við okkur fyrir næsta leik og æfum okkur í brjáluðum fagnaðarlátum með strákunum okkar.
.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 21:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
Um bloggið
Sparisjóður grínista og nágrennis.
Eldri færslur
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Gíslína Erlendsdóttir
-
Brattur
-
Ragnheiður
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Hugarfluga
-
Halldór Egill Guðnason
-
Sæmundur Bjarnason
-
Brjánn Guðjónsson
-
Gulli litli
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Marinó G. Njálsson
-
Svanur Gísli Þorkelsson
-
Þorsteinn Sverrisson
-
Árni Gunnarsson
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Finnur Bárðarson
-
Bjarni Harðarson
-
Ingibjörg Hinriksdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Guðni Már Henningsson
-
Íris Guðmundsdóttir
-
Edda Agnarsdóttir
-
Rannveig Guðmundsdóttir
-
Kristjana Bjarnadóttir
-
Erna Bjarnadóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
-
Haraldur Sigurðsson
-
Ásgeir Kristinn Lárusson
-
Daði Ingólfsson
-
Óskar Þorkelsson
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Egill Bjarnason
-
Sigurður Grétar Guðmundsson
-
Kát Svínleifs
-
Einar Indriðason
-
arnar valgeirsson
-
Kama Sutra
-
hilmar jónsson
-
Eiður Svanberg Guðnason
-
AK-72
-
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
-
Dísa Dóra
-
Sigurður Einarsson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Jóhannes Guðnason
-
Brynjar Jóhannsson
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Magga tagga
-
Fanney Björg Karlsdóttir
-
Tófulöpp
-
Valgeir Skagfjörð
-
kop
-
Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
-
Björgvin R. Leifsson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Svanhildur Karlsdóttir
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Aprílrós
-
Guðrún Björk
-
Guðmundur Óli Scheving
-
Helgi Jóhann Hauksson
-
Katan
-
Páll Rúnar Elíson
-
Þórir Aðalsteinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Kristín Snorradóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Gunnar Níelsson
-
Jón Ólafur Vilhjálmsson
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Bjarni Sæmundsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Þórdís tinna
-
Eva Hrönn Jóhannsdóttir
-
Jóhannes Freyr Stefánsson
-
kloi
-
Bjarndís Helena Mitchell
-
Ragnar Gunnarsson
-
Brynja skordal
-
Vefritid
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Árelía Eydís Guðmundsdóttir
-
Garún
-
Hörður B Hjartarson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði