17.5.2007 | 18:05
Kát í dag.
Skoðið færsluna sem ég skrifa áður en ég fer í misheppnaða fýlukastið ! Geir var greinilega mjög brugðið. Hann skellti sér í biðilsbuxurnar - hver selur annars biðilsbuxur ? Og nú vill hann vera memm. Geir veit líka að ég gæti alveg tekið hann í bakaríið og gefið honum þar eitthvað á snúðinn og tekið hann svo í kleinu. Geir er ekki vitlaus. Hann er ekki tilbúinn að koma með mér í bakaríið.
Í gær fór ég á árshátíð GGT. Ekkert smá gaman heldur stórskemmtilegt. Hundur í óskilum var að skemmta. Fyrir þá sem ekki vita neitt, þá er Hundur í óskilum ekki týndur hundur, heldur tveir menn sem spila á næstum öll hljóðfæri. Þeir spiluðu nokkur lög og ég var farin að skammast mín fyrir sjálfa mig. Ekki bara hló ég..... heldur grenjaði ég úr hlátri í tvær munnþurrkur - viðstöðulaust allan tímann sem þeir spiluðu. Það er snilld að þykja lög svona fyndin. Það sannast því enn og aftur; ég hef laglegan húmor.
Flokkur: Spil og leikir | Facebook
Um bloggið
Sparisjóður grínista og nágrennis.
Eldri færslur
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Gíslína Erlendsdóttir
- Brattur
- Ragnheiður
- Hrönn Sigurðardóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Hugarfluga
- Halldór Egill Guðnason
- Sæmundur Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Gulli litli
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Marinó G. Njálsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Þorsteinn Sverrisson
- Árni Gunnarsson
- Bergljót Hreinsdóttir
- Finnur Bárðarson
- Bjarni Harðarson
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Steingrímur Helgason
- Guðni Már Henningsson
- Íris Guðmundsdóttir
- Edda Agnarsdóttir
- Rannveig Guðmundsdóttir
- Kristjana Bjarnadóttir
- Erna Bjarnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
- Haraldur Sigurðsson
- Ásgeir Kristinn Lárusson
- Daði Ingólfsson
- Óskar Þorkelsson
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Egill Bjarnason
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Kát Svínleifs
- Einar Indriðason
- arnar valgeirsson
- Kama Sutra
- hilmar jónsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- AK-72
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- Dísa Dóra
- Sigurður Einarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Jóhannes Guðnason
- Brynjar Jóhannsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Magga tagga
- Fanney Björg Karlsdóttir
- Tófulöpp
- Valgeir Skagfjörð
- kop
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Björgvin R. Leifsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Svanhildur Karlsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Aprílrós
- Guðrún Björk
- Guðmundur Óli Scheving
- Helgi Jóhann Hauksson
- Katan
- Páll Rúnar Elíson
- Þórir Aðalsteinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristín Snorradóttir
- Þorsteinn Briem
- Gunnar Níelsson
- Jón Ólafur Vilhjálmsson
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Heiða B. Heiðars
- Þórdís tinna
- Eva Hrönn Jóhannsdóttir
- Jóhannes Freyr Stefánsson
- kloi
- Bjarndís Helena Mitchell
- Ragnar Gunnarsson
- Brynja skordal
- Vefritid
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Árelía Eydís Guðmundsdóttir
- Garún
- Hörður B Hjartarson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Hvað er GGT Anna mín?
Jenný Anna Baldursdóttir, 17.5.2007 kl. 19:07
Golfklúbbur Guttorms tudda - án gríns.
Anna Einarsdóttir, 17.5.2007 kl. 19:56
Sko - upplýsingar um GGT er hægt að sjá á http://www.ggtgolf.com/. Ég hef fylgst dálítið með þessum klúbbi, sem byrjaði eiginlega sem einskonar Snæfellingafélag eða félag fyrrverandi Miklhreppinga. Svo hefur mér alltaf fundist sniðugt að þó liðsmenn klúbbsins kenni sig við golf eru þeir eiginlega betri í ýmsum öðrum íþróttagreinum s.s. skák, krullu, pool og mörgu fleiru.
Sæmundur Bjarnason, 17.5.2007 kl. 20:34
Hundur í óskilum eru snillingar ! ég get alveg deilt þessu með þér, hef verið á árshátíð þar sem þeir voru og aumingja greyið þeir sem á eftir komu, þeir áttu engann séns í okkur eftir þessa snillinga ! Ég grét úr hlátri En bíddu þarf maður ekki að vera klár í Golfi í GGT ? ég meina ég er rosalega klár í borðtennis!?!
bara Maja..., 17.5.2007 kl. 20:44
Ef þú hefur einhverntíma séð upptöku frá Stuðmannatónleikunum í Royal Albert Hall í London í mars 2005, þá var Hundur í óskilum upphitunarbandið og ég er ljóshærða konan á 2. bekk með glimmerklútinn, sem hreinlega veina og græt úr hlátri. Bara svona in case þú værir mikið að horfa á þessa upptöku ... ef hún er til .. og ef þú hefðir áhuga .. svona kannski.
Hugarfluga, 17.5.2007 kl. 21:15
Það þýðir ekkert að bjóða mér í golf, nema viðkomandi hafi áhuga á að týna öllum kúlunum sínum. Ég er sérstaklega góð að skjóta golfkúlum í tjarnir. Fleyti kerlingar. Hver fann upp það orðatiltæki ? Einhver sem henti kjellunni sinni í vatn og hún hoppaði uppúr og ofaní og uppúr og......
Ekki hef ég séð þessa upptöku af Stuðmannatónleikunum en hefði verulegan áhuga á því. Veit einhver hvar sú taka er til ?
Anna Einarsdóttir, 17.5.2007 kl. 21:24
Golfklúbbur Guttorms Tudda er keppnisklúbbur skemmtilegs fólks að vestan sem getur ekki hætt að hanga með hvert öðru, hvorki vetur né sumar og grípur því á það ráð að hittast undir því yfirskini að vera miklir íþróttamenn....sem við auðvitað erum...og keppa í öllu sem við erum öll góð í.
Gíslína Erlendsdóttir, 17.5.2007 kl. 21:27
Húrra, húrra, húrra, húrrrrraaaaa, fyrir Gillí og Rögnu. Frábær matur, óborganleg skemmtiatriði en ég verð nú að kvarta yfir happadrættinu þar sem ég fékk ekkert. Betra happadrætti næst.
Anna Einarsdóttir, 17.5.2007 kl. 21:43
Gott að þú er kát, enda full ástæða fyrir því og get ég alveg unnt þér það. Ég er svosem ekkert óhress heldur enda tel ég mína menn hvíldar þurfi.
Já ég sé að þetta er hinn laglegasti húmor sem þú hefur
Arnfinnur Bragason, 17.5.2007 kl. 23:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.