Það getur nú fokið í mann.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er greind kona, heiðarleg, málefnaleg og hefur látið margt gott af sér leiða.  Hún er líka býsna myndarleg.  Það vefst ekki fyrir henni að taka á sig ábyrgð og hinir slyngustu stjórnmálamenn geta ekki rúllað yfir hana í rökræðum, enda hefur hún góðan málstað að verja.

Ég er komin með gubbupest Sick eftir að hafa lesið of margar athugasemdir sem innihalda orð sem ekki er hafandi eftir, níð um Ingibjörgu.  Skammist ykkar endalaust, þið sem ekkert hafið að gera annað en að rakka niður fólk.   Þið eruð ekkert annað en drulludelar. Devil

Og ég vil ekki hafa það að þið kommentið á þessa færslu dónarnir ykkar, nema með fögrum lýsingarorðum !


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Þetta er nú dáldið flott færsla hjá mér.

Anna Einarsdóttir, 18.5.2007 kl. 00:32

2 Smámynd: Eva Þorsteinsdóttir

Myndarleg..........Ingibjörg?

Eva Þorsteinsdóttir, 18.5.2007 kl. 00:33

3 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Mér finnst hún myndarlegri en Geir.  Ættum kannski að setja þingmennina í fegurðarsamkeppni ?

Anna Einarsdóttir, 18.5.2007 kl. 00:37

4 identicon

Anna.. Ég kaus ekki Ingibjörgu en ég er svo sammála þér.. ég er alveg komin með upp í kok af þessari neikvæðu umræðu í hennar garð. Þetta er bara væl og tuð runnið undan rifjum bitra íhaldsmanna sem svo aðrir hafa apað eftir.. Flott færsla hjá þér. Tíu prik og hananú!

Björg F (IP-tala skráð) 18.5.2007 kl. 00:40

5 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Góð færsla Anna.  ISG nýtur þeirra vafasömu forréttinda að það er talað um hana út frá nánast öllum sjónarhornum öðrum en málefnum og því sem hún stendur fyrir í pólitík.  Solla er flott kona og pólitíkus.  Hún á bara gott skilið.

Jenný Anna Baldursdóttir, 18.5.2007 kl. 10:19

6 identicon

Já það er nú meira að fara vernda einhverja manneskju sem getur vel svarað fyrir sig sjálf... Mér hefur aldrei líkað við hana og er ein ástæða þess að hún er ekkert skárri en þú ert að lýsa öðrum. Hún er mjög dómhörð á aðra þingmenn þannig að hún er ekkert saklaust fórnalamb eins og þú lýsir..

Skonsan (IP-tala skráð) 18.5.2007 kl. 10:37

7 Smámynd: bara Maja...

*fullt af fögrum lýsingarorðum*  já þetta er bara dáldið flott færsla hjá þér !

bara Maja..., 18.5.2007 kl. 10:39

8 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Skonsa:  Heldur þú að ég geri mér ekki grein fyrir því að hún geti svarað fyrir sig sjálf ?  Þegar hins vegar er vegið að henni úr öllum áttum, þá er mér misboðið og þetta er MÍN síða og til þess ætluð að ég tjái mig á henni.  Nefndu mér EITT DÆMI um það að Ingibjörg Sólrún hafi notað ljótt lýsingarorð um aðra persónu...... Bara eitt !   Ef þú getur það ekki, vertu þá úti.

Anna Einarsdóttir, 18.5.2007 kl. 10:44

9 Smámynd: Anna Einarsdóttir

 Gefðu út ljóðabók svampur - en ekki kalla hana ljóðabók samt.

Anna Einarsdóttir, 20.5.2007 kl. 21:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 342845

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband