Kristjönubragur.

 

kristjanag

 

 

Kristjana er algjör perla..... svo góð að ég veit bara næstum því ekkert betra.

 

 

Litla sæta ljúfan góða

með dökka hárið

fyrir hana geri allt

gef´enni appelsín og malt

en það þarf að vera kalt

 

               Heart           

 

Litla sæta ljúfan góða

svo flink að tefla

og hún skákar öllum út

hún er allra besta stúlkan þetta krútt

 

                      Heart 

 

En þegar keppni hefst þá breytist reyndar allt

þá verður viðmót hennar skyndilega kalt

hún fer í sókn,,   og teflir rosalega svalt

Af stað með drottningu hún stekkur ógnarkúl

og riddarinn af snilli hleypur með sinn múl

ég er að tapa.......... ég er að verða fúl

 

                        GetLost 

 

Litla sæta ljúfan góða

með dökka hárið

hún er bloggvinkona mín

hún er afar sæt og ofboðslega fín. 

 

                      InLove

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Viltu ekki koma Anna mín og fá hjá mér Ritalín?  Þú ert sárþurfi held ég. en varðandi kommentið á mínu bloggi þá endurtek ég.:

Hjálpaðu mér Anna mín, ég er svo fattlaus.  Vastu að stríða mér, ef, þá endilega láttu mig vita.  Ég sjálf er stríðin og elska að mér sé strítt.  Það gefur manni ókeypis sóknarfæri.

 Eins gott annars að STEFverjar séu ekki að kíkja á bloggið hjá okkur, Við stelum og skrumskælum, án þess að taka túkall fyrir það.

 

Til hamingju STJana með ljóðið hennar Önnu 

 

Ingibjörg Friðriksdóttir, 24.7.2007 kl. 14:53

2 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ekkert ritalín Imba mín... ég er fín....   .... eða leyfið mér allavega að halda það.

Anna Einarsdóttir, 24.7.2007 kl. 14:59

3 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Þetta er guðdómlegt Var líka að kíkja á Ægisrullu! Á ekki að sækja um í rithöfunarsambandið?

Edda Agnarsdóttir, 24.7.2007 kl. 15:03

4 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Nei Edda !  Ég kann bara að fíbblast.    

Anna Einarsdóttir, 24.7.2007 kl. 15:11

5 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Gunnar Helgi Eysteinsson, 24.7.2007 kl. 15:19

6 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Þú ert svo flinkur Gunnar. 

Sjáðu, nú er ég að vanda mig.... var næstum því búin að spyrja þig hvort þú værir að KUBBA !

Anna Einarsdóttir, 24.7.2007 kl. 15:21

7 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Já, Þú ert meira en fín, þú ert stórkostleg.  

Ingibjörg Friðriksdóttir, 24.7.2007 kl. 15:26

8 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

... Þú ert bráfyndin Anna.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 24.7.2007 kl. 15:31

9 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Er að æfa mig í að læra að taka hrósi...........

TAKK !    

Anna Einarsdóttir, 24.7.2007 kl. 16:51

10 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Vonandi ertu ung og upprennandi, því það tekur mannsæfi að læra það

Ingibjörg Friðriksdóttir, 24.7.2007 kl. 17:04

11 Smámynd: Marta B Helgadóttir

 

Marta B Helgadóttir, 24.7.2007 kl. 18:12

12 Smámynd: Huld S. Ringsted

Gunnar er snillingur, ætli hann geti tekið okkur í kennslu??  Flott vísa

Huld S. Ringsted, 24.7.2007 kl. 19:31

13 Smámynd: Brattur

... Anna, þú ert æðisleg... Kristjönu bragur og Ægis bragur á einum og sama deginum... þetta er svoooo flott hjá þér...

Brattur, 24.7.2007 kl. 23:47

14 Smámynd: Anna Einarsdóttir

  Takkes takkes....... var að mæta !

Anna Einarsdóttir, 24.7.2007 kl. 23:48

15 Smámynd: Brattur

... ég var að detta inn líka... búinn að baða af mér bleikjulyktina... svona næstum því...

Brattur, 24.7.2007 kl. 23:50

16 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ég sá á blogginu þínu að ég þarf ekki að fara í búð á morgun. 

Anna Einarsdóttir, 24.7.2007 kl. 23:56

17 Smámynd: Brattur

... já... finnst þér bleikja ekki góður matur

Brattur, 24.7.2007 kl. 23:58

18 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Júbb...... góður fiskur er góður.  Eru allir sofnaðir ?  Og hvar er Halldór ?  Hann þorir kannski ekki að opna bloggið sitt !  Ætli það sé ónýtt ?

Anna Einarsdóttir, 24.7.2007 kl. 23:59

19 Smámynd: Brattur

... fyrsta erindið í Ægisbragnum... sérstaklega gott... þú ert ótrúleg

Brattur, 25.7.2007 kl. 00:00

20 Smámynd: Brattur

... Halldór er örugglega að moka út úr blogginu sínu... það var gjörsamlega sprungið af fagurbókmenntum...

Brattur, 25.7.2007 kl. 00:01

21 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ég held samt Brattur minn að ef einhver pantaði ljóð hjá mér, þá kæmu bara tvær línur.    Stundum dettur maður í gírinn..... stundum í hlutlausum.

Anna Einarsdóttir, 25.7.2007 kl. 00:02

22 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Var þetta góður dagur ?  3 fiskar !  Samkvæmt væntingum ?

Anna Einarsdóttir, 25.7.2007 kl. 00:03

23 Smámynd: Brattur

... nei... ég hefði viljað hafa meira líf... en ég var slakur og fór bara að hugsa alskonar vitleysur... eins og "af hverju heyrist í vatninu"!!!! það fór dágóður tími í það

Brattur, 25.7.2007 kl. 00:06

24 Smámynd: Anna Einarsdóttir

 þú hefur borðað of mikið kex núna.

Anna Einarsdóttir, 25.7.2007 kl. 00:13

25 Smámynd: Brattur

... heyrðu Anna, talandi um að panta ljóð, þá man ég það að ég sendi einu sinni ljóð í einhverja keppni... og koms í úrval sem var svo gefið út á bók... ég kann ekki ljóðið og finn ekki bókina, en þarna komst ég næst því að verða frægur... man þó að ljóðið heitir "Í dag" og er um fólk sem stendur upp við altarið og er að fara að gifta sig... óttalega væmið, minnir mig...

Brattur, 25.7.2007 kl. 00:14

26 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Væmið !    Þú þarft að finna þetta og birta.  Við heimtum að fá að sjá.

Anna Einarsdóttir, 25.7.2007 kl. 00:19

27 Smámynd: Brattur

... já... nú verð ég að leita að þessari bók... og leggja svo í dóm bloggvina... örugglega væmið eins og kókosbolla...

Brattur, 25.7.2007 kl. 00:24

28 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Við getum þá flissað yfir því. 

Anna Einarsdóttir, 25.7.2007 kl. 00:28

29 Smámynd: Brattur

... já... eða grátið....

Brattur, 25.7.2007 kl. 00:30

30 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Hvar ertu?

Ingibjörg Friðriksdóttir, 25.7.2007 kl. 16:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband