Ólétt !!!

 

Litla barnið mitt er ólétt.  Gasp

.

Katla 

.

Hrafnkatla Himinbjörg Gustavsberg er kasólétt.  Þetta litla grey sem dóttir mín færði mér í afmælisgjöf fyrir ári síðan.  Sakleysinginn sjálfur. 

Henni hefur verið nauðgað.  GetLost  Pottþétt.  Hún gerir ekki svona lagað.

Ég var á leiðinni með hana til dýralæknisins til að fá pilluna en mig bara grunaði ekki að kattarómyndirnar í nágrenninu væru svona illa innrættar.

Sveiattann.  Angry

Þegar kettlingarnir koma ætla ég að fá DNA og síðan geng ég hús úr húsi og ber það saman við steggina í nágrenninu.  Sá seki skal fá að mjálma til saka.   Police

.

KatlaII 

.

Vantar einhvern kisu í vor ?  Halo

.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Offari

Ég er saklaus.   En mig vantar einmitt kisu í vor en hún þarf helst að vera austfirsk svo ég þurfi ekki að sækja hana langt.

Offari, 4.4.2009 kl. 23:45

2 Smámynd: Ragnhildur Jónsdóttir

Til lukku! ég get alveg lofað þér því að þú átt dásamlega yndislega skemmtilegt vor framundan

Ragnhildur Jónsdóttir, 4.4.2009 kl. 23:53

3 identicon

Falleg kisan þín.  Það verður bara gaman að fá nokkur "ömmukisubörn".

Páll A. Þorgeirsson (IP-tala skráð) 5.4.2009 kl. 00:52

4 Smámynd: Einar Indriðason

Steggir?  Þú hlýtur að eiga við ... Högna?  Annars er dýrafræðin að bregðast mér og/eða ... Hrafnkatla ungar út skrítnu ungum..... hálfgerðum skoffínum....

Einar Indriðason, 5.4.2009 kl. 09:43

5 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Nei nei Einar. 

Nágranni minn fyrrverandi heitir Högni og þetta var sko ekki hann.  Þessvegna er ég viss um að einhver skrambans steggurinn "kettlingaði" Kötlu litlu.

Anna Einarsdóttir, 5.4.2009 kl. 09:51

6 Smámynd: Einar Indriðason

Ehum...... það verður amk fróðlegt að fylgjast með þessu hjá Hrafnkötlu :)

Einar Indriðason, 5.4.2009 kl. 09:56

7 Smámynd: Ragnheiður

Æj..blessaður sakleysinginn

Í hvaða póstnúmeri býrð þú ? Þar sem kettir láta svona

Minn lætur ekki svona - hann hefur einhverntímann tapað "kúlunum" sínum og veiðir bara fugla í staðinn

Ragnheiður , 5.4.2009 kl. 11:36

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Gvöð hvað það eru dónalegir kettir í nágrenni við þig! Þið Fanney eigið það þá sameiginlegt að búa í svona perrkattasveitum.......

Hrönn Sigurðardóttir, 5.4.2009 kl. 15:28

9 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Í minni sveit búa bara persneskir kettir

Hrönn Sigurðardóttir, 5.4.2009 kl. 15:29

10 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

gullfalleg gráböndótt kisa. gaman verður að vita hvernig afkvæmin verða.

ég átti eitt sinn kisu sem eignaðist afkvæmi með ljósritunarvél. þrjár eftirmyndir móðurinnar.

Brjánn Guðjónsson, 5.4.2009 kl. 15:59

11 Smámynd: Íris Guðmundsdóttir

what? hvenar eiga kettlingarnir ad ungast ut?

Er tetta ekki bara depill? hinn kotturinn TINN

Íris Guðmundsdóttir, 5.4.2009 kl. 16:05

12 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ég mun finna dónann,  Hrönn....... with or without DNA. 

Íris !  Ertu fyrir utan myndina þína ? (out of your mind)  Depill er saklaus sem lamb og á engan þátt í þessari útrás nýrra kettlinga.

Ég spái því að þeir spýtist í heiminn um páskana. 

Anna Einarsdóttir, 5.4.2009 kl. 16:12

13 Smámynd: Íris Guðmundsdóttir

um paskana? eru paskarnir ekki naestu helgi?

og hvad aetlaru ad losa tig vid alla eda eiga einn? litla kattar-family

Íris Guðmundsdóttir, 5.4.2009 kl. 16:34

14 identicon

við ætlum að eiga einn kettlinginn :D !

Soffía (IP-tala skráð) 5.4.2009 kl. 16:48

15 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ætli ég verði ekki hin nýja Guðrún Á Símonar ? 

Anna Einarsdóttir, 5.4.2009 kl. 17:03

16 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Þetta eru nú meiri dónarnir þarna í Borgarfirðinum.  Ég vona að þú náir í þann seka, það er lágmark að fá meðlagið greitt.  Annars til haaaaamingju!

Ingibjörg Friðriksdóttir, 5.4.2009 kl. 20:38

17 identicon

Ég ætla að vona að það hafi verið högni sem kettlingaði hana. Þetta gæti orðið soldið skrítið ef að steggur hefur "kettlingað" kisuna þína.

Kannski það yrði eitthvað eins og þessir kanínu-kettir http://www.liveleak.com/view?i=e15_1232758435 

Sem urðu til svona http://www.youtube.com/watch?v=LAn2UFXSsgw 

Bjöggi (IP-tala skráð) 5.4.2009 kl. 21:22

18 Smámynd: Guðni Már Henningsson

Hver hefur ekki lent í þessu?  Kettlingar eru ósköp sætir en kettir eru frekar leiðinlegir.... ég á einn.

Guðni Már Henningsson, 5.4.2009 kl. 21:27

19 Smámynd: Jóhannes Guðnason

En elsku Anna mín,þetta er nú svo eðlilegt,ha ha ha að fá sér einn góðan,HA HA HA gott að getað elskast út í náttúrinn,afhverfu heldur þú að þetta sé nauðgun.??''Í þessari guðskapa blíðu,og gull fallega Borgarfirði,nú þá fá allir góðir karlmenn lönguna í gott kinnlíf ekki satt,hefur hún ekki bara orðið svona gröð í blíðunni sem var í Borgarnesi í vikunni,??? allavega varð ég mjög graður þarna um daginn,eins var um greyið kisu þína og þann heppna sem tók hana,vertu nú Anna mín bara glöð fyrir hönd elsku kisu þinnar,að hafa upplifað þennan sælutilfengu sem hún lenti í,það var stór haga mús sem tjáði mér frá því stórkostlegu kisu ást,með leyfi og gleði beggja hefði staði í tvo tíma,geri aðrir betur,nei nei Anna mín,þetta hefur alls ekki verið nauðunn,ertu ekki sammála mér.???taktu nú bara gleði þína aftur,eftir smá tíma áttu fullt af fallegum kisum. HA HA HA HA.

Jóhannes Guðnason, 5.4.2009 kl. 22:11

20 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Þú ert bara óheppinn með kött Guðni Már.    Viltu nýjan ? 

Anna Einarsdóttir, 5.4.2009 kl. 23:35

21 Smámynd: arnar valgeirsson

alltaf nóg að gerast þarna útálandi sko. hún er bara unglingur. en til hamingju með himinbjörgu og þú heldur þeim auðvitað öll sjálf.

arnar valgeirsson, 6.4.2009 kl. 01:21

22 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Þið Hrafnkatla getið lifað kóngalífi á meðlagsgreiðslunum :)

Ásgeir Kristinn Lárusson, 6.4.2009 kl. 10:24

23 identicon

Rukka svo meðlag með litlu krílunum hehehehehe.En hún er falleg kisan þín

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 6.4.2009 kl. 11:17

24 Smámynd: Gulli litli

Mjá baby.......

Gulli litli, 8.4.2009 kl. 15:55

25 Smámynd: Fanney Björg Karlsdóttir

Iss Anna mín.... við tökum þessu eins og hverju öðru hundsbiti hér í þessari sveit.....Ég er með fjóra ketti...og ein er semsagt alveg kasólétt.... það verður svaka fjör hér á bæ áður en langt um líður..... ætli við getum ekki hist á svona mömmu-morgnum....

Fanney Björg Karlsdóttir, 8.4.2009 kl. 19:26

26 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Skemmtilet!

Gleðilega páska Anna mín? ert þú ekkert að stússa í ...tíkinni?

Edda Agnarsdóttir, 9.4.2009 kl. 10:11

27 Smámynd: Finnur Bárðarson

Sem sagt kynferðislegt ofbeldi, en hann Nói minn er alveg saklaus af öllu slíku enda ekki með kúlur og fer aldrei út. En mikið er gaman að fá svona færslu, léttir lundina :)

Finnur Bárðarson, 9.4.2009 kl. 16:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 342785

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband