Bloggfærslur mánaðarins, september 2007
30.9.2007 | 20:58
Sýnishorn frá Laufskálarétt.
Mig langar að deila með ykkur tveimur atvikum frá helginni:
.
Örn Árnason var að skemmta í reiðhöllinni á Sauðárkróki. Hann sagði, íklæddur rónafrakkanum sem hann er stundum í, í Spaugstofunni:
Guð skapaði allt ! Hann skapaði sólarhringinn, með 24 tímum. Hann skapaði líka bjórkassann. Það er engin tilviljun að það eru 24 bjórar í kassanum !
.
psssst.... Þetta er birt í leyfisleysi svo suss..... leyndó.
-----------------------------
.
Þegar við smöluðum Kolbeinsdalinn, stoppuðum við auðvitað á nokkrum stöðum. Í einu slíku stoppi hlustaði ég á par tala saman.
.
Hann er eitthvað að tala um hest sem hann á.
Hún spyr hvað hesturinn sé gamall.
Hann segir: Ég man það ekki, hann er alltaf að eldast og eldast.
Þá segir Anna litla: Fer hann þá ekki að verða tilbúinn ?
.
.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 21:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
28.9.2007 | 00:01
Laufskálarétt..
Lag: "Þeir greiddu í píku"....
.
.
Ég læðist inn í Laufskálarétt
og lít yfir mannskapinn
Yfir mönnum virðist afar létt
mér sýnist ég vera eini apinn
allir strákarnir vor´í hestaskóm
og stelpurnar með úfið hár
þá ég söng með mínum afleita róm
og allt fólkið fór að fella tár
.
Ég skil ekkert í þeeeessu
nú fer allt í kleeeessu
en ég vandaði mig svo vel
söng af einurð og þrá...
allir grétu þá...
.
Ef ég einn söngtíma nú fengi
ég yrð´ekki lengi
að verða eins og Björgvin Halldórsson
já minn tími kemur.....
fyrr en verð ég trítilóð.
.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 15:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (38)
27.9.2007 | 18:32
Ég er agaleg.
Börnin mín eru líka agaleg og hundurinn er alveg agalegur.
Sumt fólk er alveg agalaust.... ekki gott.
Ætli ég verði ekki að útskýra núna ? Ég er að finna andheiti. Ef þú hefur engan aga á sjálfum þér... ertu agalaus. Ef þú ert agaður, má segja að þú sért agalegur. Mér finnst það rökrétt.
.
.
Það tók mig langan tíma að finna mynd sem passaði við færsluna.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 21:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
26.9.2007 | 21:36
Skipt um skoðun, smekk og dekk.
Ég fékk bakþanka.... fór að hugsa með bakinu.... og ákvað að taka út síðustu færslu. Aðeins hörðustu aðdáendur mínir fengu að njóta hennar. Og þetta var engin SMÁ færsla.
Var þó í stökustu vandræðum með að FELA færsluna... svo stór var hún.
.
Þá er það næsta viðfangsefni:
Við erum alltaf að skipta um skoðun. Ný fatatíska... aðrar tónlistarstefnur.... út með sófasettið og inn með annað.... öðruvísi vinnuaðferðir.....eða bara nýr köttur fyrir þann gamla.
.
Ætli dýr séu með svipaðan þankagang ?
.
Maurar sem alltaf hafa labbað í halarófu eftir gangstéttinni, taka sig til einn daginn, halda fund og ákveða að ganga sikk sakk næsta árið..... eða í hringi.
Ljón ákveða, öll sem eitt að nú sé ekki lengur "inn" að vera grimm og ákveða að gerast gæludýr.
.
Eða er það bara mannskepnan, sem er svona undarleg og nýjungagjörn ?
.
Kona spyr sig.
Spil og leikir | Breytt 27.9.2007 kl. 18:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
25.9.2007 | 23:11
Þau fara samt alltaf sátt að sofa.
.
.
.
Nú verður ekki bloggað meira um hund og kött í bili, því þau hafa beðið um að ég virði þeirra einkalíf. Ástin blómstrar sem aldrei fyrr á þeim bænum.
.
.
(Pssssssst..... ef þau gera eitthvað skemmtilegt síðar, læt ég ykkur vita. )
25.9.2007 | 18:03
Íslensk fjölbragðaglíma.
...... og dóttir mín var að taka upp.
24.9.2007 | 21:12
Stórfrétt !
Alvarleg líkamsárás og nauðgun átti sér stað í heimahúsi í Borgarnesi nú undir kvöld.
Atburðurinn náðist á myndband.
.
.
23.9.2007 | 13:40
Hugarflug.
.
Ef ég er sífellt að herða upp hugann, verður þá hugur minn of harður ? Bara að hugsa.
.
.
.
22.9.2007 | 17:09
Í þá gömlu góðu daga....
.
Jæja.... hér er komin mynd sem sýnir sveitabörn, tilbúin að sníkja pening af fávísum, saklausum, erlendum ferðamönnum. "Outfittið" er sérhannað til að vekja meðaumkun.
.
.
Hér er Anna litla að reyna að fljúga.....
.
.
Sveitabörnin komin í spariföt.... flest ! Þorgeir bróðir er á leiðinni í buxurnar, sýnist mér.
21.9.2007 | 13:47
Helena Björnsdóttir.
Helena er góð bloggvinkona mín. Hún er ein af þessum persónum, sem fá mann til að undrast hversu fjölbreytilegt lífið getur verið. Helena hefur misst sjónina en samt getur hún málað hreinustu listaverk. Það er mér alveg óskiljanlegt.
Reyndar segir hún sjálf, að hún hafi ekki getað teiknað Óla prik skammlaust, meðan hún hafði sjón. Helena gerir oft grín að sjálfri sér og stundum er hún svo djúp að ég kveiki ekki fyrr en mörgum klukkutímum síðar.
"Mig dreymir um að hafa efni á að leigja mér lítið verkstæði (ætti varla að kosta mikið, ég þarf ekki einu sinni glugga :o) )" segir hún.
Mörgum klukkutímum eftir að ég las þetta, var ég að láta mig dreyma um verkstæðið hennar Helenu. Í mínum huga var það bjart og fallegt, með dásamlegu útsýni. Ég undraðist í huganum, hvers vegna hún gerði ekki kröfur um glugga. Fattlaus og vitlaus ég !
.
Myndin mín, HUGLJÚF. REYKJAVÍK Í HUGA MÉR.
EILÍFÐIN FLJÓTT SKIPAST VEÐUR. LÍFSTRÉÐ.
HUGMYND BLÆBRIGÐI.
.
.
Undanfarin 5 ár, hef ég haft það fyrir reglu, að kaupa eins lítið af drasli og ég get... en í staðinn kaupi ég einu sinni á ári, eitthvað sem mig virkilega langar í.
Árið 2007 varð myndin Hugljúf eftir Helenu fyrir valinu.
.
Ég held að mér sé óhætt að segja, að fimm af myndunum hérna fyrir ofan séu til sölu (ekki tvær efstu) og þær fást fyrir aðeins 25 þúsund. Þú leiðréttir mig Helena, ef ég er að bulla. (það væri þá heldur ekki í fyrsta skiptið).
.
Helena vinkona ! þú ert ekki bloggvinkona mín af þeirri ástæðu að þú málar flottar myndir, né af því að þú átt svo fluggáfaðan hund ....... heldur einfaldlega af því að húmorinn þinn er óborganlegur.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 13:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Um bloggið
Sparisjóður grínista og nágrennis.
Eldri færslur
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- Gíslína Erlendsdóttir
- Brattur
- Ragnheiður
- Hrönn Sigurðardóttir
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Hugarfluga
- Halldór Egill Guðnason
- Sæmundur Bjarnason
- Brjánn Guðjónsson
- Gulli litli
- Ingibjörg Friðriksdóttir
- Marinó G. Njálsson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Þorsteinn Sverrisson
- Árni Gunnarsson
- Bergljót Hreinsdóttir
- Finnur Bárðarson
- Bjarni Harðarson
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Steingrímur Helgason
- Guðni Már Henningsson
- Íris Guðmundsdóttir
- Edda Agnarsdóttir
- Rannveig Guðmundsdóttir
- Kristjana Bjarnadóttir
- Erna Bjarnadóttir
- Þorsteinn Valur Baldvinsson
- Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
- Haraldur Sigurðsson
- Ásgeir Kristinn Lárusson
- Daði Ingólfsson
- Óskar Þorkelsson
- Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
- Egill Bjarnason
- Sigurður Grétar Guðmundsson
- Kát Svínleifs
- Einar Indriðason
- arnar valgeirsson
- Kama Sutra
- hilmar jónsson
- Eiður Svanberg Guðnason
- AK-72
- Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
- Dísa Dóra
- Sigurður Einarsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Jóhannes Guðnason
- Brynjar Jóhannsson
- Jón Steinar Ragnarsson
- Magga tagga
- Fanney Björg Karlsdóttir
- Tófulöpp
- Valgeir Skagfjörð
- kop
- Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
- Björgvin R. Leifsson
- Gunnar Helgi Eysteinsson
- Svanhildur Karlsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Aprílrós
- Guðrún Björk
- Guðmundur Óli Scheving
- Helgi Jóhann Hauksson
- Katan
- Páll Rúnar Elíson
- Þórir Aðalsteinsson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristín Snorradóttir
- Þorsteinn Briem
- Gunnar Níelsson
- Jón Ólafur Vilhjálmsson
- Helga Guðrún Eiríksdóttir
- Bjarni Sæmundsson
- Heiða B. Heiðars
- Þórdís tinna
- Eva Hrönn Jóhannsdóttir
- Jóhannes Freyr Stefánsson
- kloi
- Bjarndís Helena Mitchell
- Ragnar Gunnarsson
- Brynja skordal
- Vefritid
- Tryggvi Gunnar Hansen
- Árelía Eydís Guðmundsdóttir
- Garún
- Hörður B Hjartarson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði