Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2008
11.1.2008 | 13:43
Mig vantaði Hafstein.
Ég svara í símann í mínu fyrirtæki. Í morgun hringdi maður og bað um Hafstein. Enginn Hafsteinn vinnur í fyrirtækinu og tjáði ég manninum það. Hann sagði bara VÍST og sagði mér að gefa sér samband við Hafstein. Eftir það, náði ég aldrei að klára heila setningu í símann því maðurinn greip alltaf fram í fyrir mér. Hann jós úr sér yfir mig og skipaði mér að finna út úr þessu.
.
.
Meðan maðurinn hraunaði yfir mig, datt mér ýmislegt í hug.
Kannski ég ætti að hlaupa fram, segja Geir að hendast í það að fá nafnabreytingu í þjóðskrá.....og gefa manninum svo samband við Geir... nei ég meina Hafstein.
Eða gefa símtalið í næsta símtæki, hlaupa sjálf og svara með dimmri karlmannsröddu: "Hafsteinn hér, góðan daginn".
Nú eða segja mannleysunni í símanum að Hafsteinn væri veikur og yrði það eitthvað fram eftir ári.
Í alvöru ! Hvað á maður að segja svona fólki ?
9.1.2008 | 23:29
Leitin að snillingunum....
Þessa smáþraut mun Einstein hafa samið á nítjándu öldinni og sagt að 98% fólks í heiminum gæti ekki leyst. Ert þú ein/einn af þeim 2% sem geta þetta?
.
Staðreyndirnar eru:
- Það eru 5 hús í 5 mismunandi litum.
- Í hverju húsi býr einstaklingur af ólíku þjóðerni.
- Hver þessara 5 einstaklinga drekkur eina gerð af drykk, reykir eina gerð af tóbaki og á eitt gæludýr.
- Enginn þessara einstaklinga hefur sams konar gæludýr, reykir sömu gerð af tóbaki né drekkur sömu gerð af drykk.
.
Vísbendingar:
Bretinn býr í rauðu húsi.
Svíinn á hund.
Daninn drekkur te.
Græna húsið er vinstra megin við hvíta húsið.
Eigandi græna hússins drekkur kaffi.
Einstaklingurinn sem reykir Pall Mall á páfagauk.
Eigandi gula hússins reykir Dunhill.
Einstaklingurinn sem býr í húsinu fyrir miðju drekkur mjólk.
Norðmaðurinn býr í fyrsta húsinu.
Einstaklingurinn sem reykir Blend býr við hliðina á þeim sem á köttinn.
Maðurinn sem á hestinn býr við hlið þess sem reykir Dunhill.
Sá sem reykir Blue Master drekkur bjór.
Þjóðverjinn reykir Prince.
Norðmaðurinn býr við hliðina á bláa húsinu.
Sá sem reykir Blend á nágranna sem drekkur vatn.
.
Spurningin er: HVER Á GULLFISK SEM GÆLUDÝR ?
.
..... ......
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 23:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
8.1.2008 | 21:29
Nýársnótt árið 1983.
Einu sinni var ég ung og vitlaus. Nú er ég bara ung.
Má maður viðurkenna syndir, sem framdar voru fyrir ALDARFJÓRÐUNGI ?
......
Ok, hugsa, hugsa..... hvað er það versta sem gerist ef ég játa nú ?
Þú missir prófið góða mín.
Gúlp !
.
Hvað gerir maður ekki fyrir bloggfrægðina ?
............................................................
Á mínum unglingsárum, tíðkaðist það að allir í sveitinni hittust í ótilgreindu félagsheimili um áramótin. Þar var hvorki hljómsveit né lögregla, heldur voru spilaðar vinylplötur og á milli platna sungu allir, hver með sínu nefi. Man ég til dæmis eftir að allir fóru í hring, áramót ein, undir morgun og sungu færeyskan Vikivaka. Þetta voru svakalega skemmtilegar samkomur. Allur gangur var svo á því hvar fólk endaði á nýársdagsmorgun og gat allt eins verið staldrað við í fjósi og teknar mjaltir með einhverjum bóndanum á heimleiðinni. Þetta var semsé ferð, algerlega laus við áætlaðan heimkomutíma. Aðeins ein regla gilti í þessum áramótaferðum: "Sá sem var minnst fullur, keyrði heim". Nú.... það kom því yfirleitt í minn hlut að keyra heim.
Ein af þessum heimferðum er mér sérstaklega eftirminnileg. Ég lagði af stað og fann reyndar að ég var dálítið vel við skál. Eftir nokkur hundruð metra akstur, hugsaði ég með mér: "Rosalega er ég full maður, ég er í vandræðum með að halda bílnum á veginum". Áfram keyrði ég, hallaði mér fram og vandaði mig ógurlega við að hitta á veginn. Það var ekki heiglum hent að hitta ! Bíllinn rásaði kantanna á milli og þegar ég beygði af afleggjaranum og út á þjóðveg, var ég næstum því búin að missa hann útaf. Úps.
Enn hélt ég áfram og vandaði mig sem aldrei fyrr. Bíllinn fór til hægri og síðan til vinstri og alltaf barðist ég við að halda honum á veginum.... en hálfflissaði innan í mér yfir því hvað ég væri drukkin.
Þegar við höfðum keyrt um 10 kílómetra, tautaði Þorgeir bróðir úr aftursætinu: "Anna, heldurðu að það geti verið sprungið hjá þér"? Ég stöðvaði bílinn, skrölti út og jú jú .... kolsprungið ! Bíllinn rásaði semsagt ekki svona mikið út af ofdrykkju minni, eins og ég hafði áður talið, heldur af því að það vantaði eitt dekkið.
Einu sinni var ég ung og reglulega vitlaus.
7.1.2008 | 18:00
Obbobobb.
Sparisjóður grínista og nágrennis óskar eftir að ráða laghentan sparigrís til starfa nú þegar.
.
6.1.2008 | 20:31
Hver af þessum myndum er tekin eftir jól ?
5.1.2008 | 23:31
Eigum við að leika okkur ?
.
Þetta er leikur sem ég og vinkona mín fórum oft í, á unglingsárunum.
Það á að finna öll karlmannsnöfn sem byrja á F. Bannað að nota símaskrá eða önnur hjálpartæki...... bara að virkja hugmyndaflugið.
5.1.2008 | 00:56
Hélt þetta yrði ekkert mál.
Við eldhúsborðið sat með skál
nú sannleikurinn yrði ljós
Hélt það yrði ekkert mál
að telja uppúr einni dós
.
Varð í framan feikna rjóð
ferlegar þá urðu raunir......
er kom úr stofu dóttir góð
og sá að mamma taldi baunir.
4.1.2008 | 23:30
Glimmerljósið.
Þegar ég fór til Danmerkur í nóvember, keypti ég mér tvær ógurlega fallegar jóla-glimmerkúlur í Tívolí. Önnur var með ljósaperu inní, til að hengja upp. Hin var með standi og ætlast til að sett væri inn í hana teljós.
.
.
Það var ekki auðveldast í heimi að koma þessum djásnum heim.... þurfti að hafa í handfarangri og fara afar varlega með. Á leiðinni, stakk ég hönskum í sama poka. Þegar ég kom heim og tók upp úr pokanum, blöstu ekki við mér leðurhanskar, heldur glimmerhanskar . Obbobobb. Of mikið glimmer.
Þá fékk ég snilldarhugmynd. Ég ætlaði sjálf að eiga ljósið sem hengja átti upp...... en mamma átti að fá teljósið með glimmerinu sem hrundi út um allt. Ógurlega fallegt... but you know, too much glimmer for me.
Síðan rennur upp aðfangadagskvöld og mamma opnar pakkann frá mér. Hún fékk bók og þetta líka gullfallega glimmerljós og var afar ánægð. Ég var sko líka ánægð.
Eftir að allir pakkarnir höfðu verið opnaðir, fór ég í eldhúsið að útbúa ís og marengs-ávaxta-rjóma-kókosbollu-eftirrétt. Skömmu síðar gekk ég í stofuna.
Ó ! Sé ég ekki hvar mamma er búin að taka glimmerljósið uppúr kassanum og er að skella því á stofuborðið hjá mér.
Glimmerið nánast þakti borðið á augabragði. Þvílíkt magn !
Mamma fór alsæl heim með ljósið og þetta var eiginlega bara mátulegt á mig !
1.1.2008 | 23:27
Hvað eru margar baunir í hálfdós af Ora grænum baunum ?
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 23:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (29)
Um bloggið
Sparisjóður grínista og nágrennis.
Eldri færslur
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.4.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 343353
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Gíslína Erlendsdóttir
-
Brattur
-
Ragnheiður
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Hugarfluga
-
Halldór Egill Guðnason
-
Sæmundur Bjarnason
-
Brjánn Guðjónsson
-
Gulli litli
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Marinó G. Njálsson
-
Svanur Gísli Þorkelsson
-
Þorsteinn Sverrisson
-
Árni Gunnarsson
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Finnur Bárðarson
-
Bjarni Harðarson
-
Ingibjörg Hinriksdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Guðni Már Henningsson
-
Íris Guðmundsdóttir
-
Edda Agnarsdóttir
-
Rannveig Guðmundsdóttir
-
Kristjana Bjarnadóttir
-
Erna Bjarnadóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
-
Haraldur Sigurðsson
-
Ásgeir Kristinn Lárusson
-
Daði Ingólfsson
-
Óskar Þorkelsson
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Egill Bjarnason
-
Sigurður Grétar Guðmundsson
-
Kát Svínleifs
-
Einar Indriðason
-
arnar valgeirsson
-
Kama Sutra
-
hilmar jónsson
-
Eiður Svanberg Guðnason
-
AK-72
-
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
-
Dísa Dóra
-
Sigurður Einarsson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Jóhannes Guðnason
-
Brynjar Jóhannsson
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Magga tagga
-
Fanney Björg Karlsdóttir
-
Tófulöpp
-
Valgeir Skagfjörð
-
kop
-
Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
-
Björgvin R. Leifsson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Svanhildur Karlsdóttir
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Aprílrós
-
Guðrún Björk
-
Guðmundur Óli Scheving
-
Helgi Jóhann Hauksson
-
Katan
-
Páll Rúnar Elíson
-
Þórir Aðalsteinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Kristín Snorradóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Gunnar Níelsson
-
Jón Ólafur Vilhjálmsson
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Bjarni Sæmundsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Þórdís tinna
-
Eva Hrönn Jóhannsdóttir
-
Jóhannes Freyr Stefánsson
-
kloi
-
Bjarndís Helena Mitchell
-
Ragnar Gunnarsson
-
Brynja skordal
-
Vefritid
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Árelía Eydís Guðmundsdóttir
-
Garún
-
Hörður B Hjartarson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði