13.11.2009 | 13:47
Sérlega ósvífnir þjófar.
Einn lítill bloggvinur minn, Gulli litli, hefur lent illilega í óprúttnum þjófum að undanförnu.
Þeir hafa sýnt honum eina þá mestu óvirðingu sem hugsast getur.
Meira um það HÉR.
.
.
Fjármál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.11.2009 | 15:09
Það má láta sig dreyma.
Oft óska ég þess að mér hlotnaðist sú náðargáfa að geta komið frá mér ritmáli sem væri svo fagurt, vandað og sérstakt að lesendur tækju andköf við lesturinn.
Að mér tækist að raða orðunum saman á einhvern undursamlega fullkominn hátt.
Hæfileikar mínir hingað til, kalla í besta falli fram að lesendur hósti við lesturinn.
.
.
En ég hugsa samt stundum; "Leynist mögulega í mér örlítill rithöfundur" ?
Já, maður má nú alveg hugsa út fyrir rammann og láta sig dreyma um hið ólíklega.
Undanfarið hafa farið fram rökræður í kolli mínum:
Rithöfundur ?
Nei maður.
Hvernig gæti ég bullað út heila bók ?
Þú gætir haft stórt letur.
Hvað með barnabók ?
Ég veit ekki.
Um hvað ætti bókin svosem að fjalla ?
Bullárin á blogginu ?
Er ekki búið að skrifa um allt sem hægt er að skrifa um ?
Nei Anna, það er ekki búið.
Það vantar ekki að mig langi dálítið að prófa.
Af hverju dett ég ekki niður á hina fullkomnu hugmynd ?
Kannski gerist það einhvern daginn.
Kannski ekki.
Sjáum til.
.
Mér finnst eiginlega best í þessu öllu, að ég stend mig að heilu samræðunum við sjálfa mig í huganum. Og ekki bara um þetta mál, heldur ýmsar aðrar hugdettur sem ég fæ.
Bullandi innra spjall, megnið af deginum.
.
.
En maður talar þá ekki af sér á meðan.
Bækur | Breytt s.d. kl. 15:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.11.2009 | 11:27
Kreppuhappadrætti - allir sem taka þátt fá vinning.
Dóttir mín, sem lengi hafði suðað um kettling og ávallt fengið neitun, gaf mér kettlinginn í afmælisgjöf í marsmánuði 2008 með þeim fleygu orðum "Til hamingju með afmælið".
Fyrir áttum við einn hund og einn kött.
Ekki var kettlingurinn hættur að vera kettlingur (fannst mér) þegar hún dældi út úr sér fjórum nýjum kettlingum í apríl 2009. Jasso ! Afmælisgjöfin ávaxtar sig um 400% á ári og ég þarf ekkert að gera nema telja kettlinga að morgni rétt eins og bankastjórar Landsbankans gerðu forðum með innlán Icesave.
En árið er ekki búið !
Afmælisgjöfin,, Katla Gustavsberg, gerir mikinn mannamun og hún lítur til dæmis ekki við mömmu minni. Það er sennilega of vægt til orða tekið að hún líti ekki við mömmu. Sannast sagna hleypur hún í burtu á harðaspretti ef mamma nálgast. Sem kom sér illa núna í september.
Mamma átti að passa dýrin í tvær vikur - gefa þeim að borða, hleypa hundinum út, og gefa Kötlu pilluna.
En hvernig sem mamma reyndi, gat hún ekki gefið Kötlu pilluna. Kisa hljóp hraðar en mamma.
Og nú er Katla Gustavsberg að fara að ávaxta sig meira. Hún er bomm.
Þegar ein afmælisgjöf ávaxtar sig allt að því tífalt á örfáum mánuðum, bendir það þá ekki til að dóttir mín hafi óendanlega mikið viðskiptavit ? Ég hefði haldið það.
.
Nú, þar sem ég aðhyllist þá skoðun að lífsgæðum skuli skipt nokkuð jafnt á milli manna, efni ég hér með til kreppuhappadrættis og allir sem taka þátt fá vinning.
Vinningurinn gæti til dæmis litið svona út;
.
.
Og breytist stöðugt - þetta er sko sami kötturinn og hann stillir sér sjálfur upp;
.
.
Það er fátt ánægjulegra en að kúra með kött í fanginu fyrir framan sjónvarpið, hlusta á róandi malið og horfa í aðdáunarfull augun.
Köttur á heimilið = meiri ást á heimilinu.
.
.
Spil og leikir | Breytt 10.11.2009 kl. 12:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
5.11.2009 | 14:53
Bilaðir bílstjórar af báðum kynjum.
"Konur kunna ekki að keyra" er algengur frasi, oftast sagður af körlum.
Vissulega eru þess dæmi eins og myndbandið sýnir ágætlega.
.
En það eru ekki eingöngu konur sem eiga miserfitt með að stýra ökutækjum.
Í sumar varð ég vitni að því að karlmaður lagði af stað í sitt fyrsta ferðalag með fellihýsi í eftirdragi.
Gallinn var bara sá að maðurinn kunni ekki að bakka með fellihýsi, kerru né neitt annað viðhengi.
Hring eftir hring eftir hring eftir hring........ fór bílstjórinn.....
.
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.11.2009 | 18:21
Skottrækt.
.
Ný atvinnugrein gæti verið í þann mund að spretta upp á Íslandi.
.
Skottrækt !
.
Á meðfylgjandi myndum má sjá skott úr nýlegri ræktun.
.
.
Þá er bara eftir að finna notagildið ?
4.11.2009 | 11:21
Maybe I should have.
Stikla úr heimildarmynd Gunnars Sigurðssonar og Lilju Skaftadóttur.
Og Lára Hanna skrifar athyglisverðan pistil um Rödd og raddleysi almennings á Íslandi.
Lára Hanna er að mínu viti langbesti bloggari landsins og ég er líklega ekki ein um það álit, þar sem hún er efst á vinsældarlista Moggabloggsins.
Svo spillir ekki fyrir að ég er nánast undantekningarlaust sammála henni.
Mér finnst ég og Lára Hanna hafa réttar skoðanir.
Ætli þeim sem hafa vitlausar skoðanir, finnist það aldrei sjálfum ?
Það má nefnilega skipta um skoðun !
.
3.11.2009 | 12:15
Ég ætla að vera í ógeðslega fúlu skapi :-(((((
Vonda skapið æskilegra sýnir rannsókn
Ástralar telja sig nú hafa sýnt fram á það með rannsókn að ákaflega hollt sé að vera í mjög vondu skapi annað slagið.
Skaphundar heimsins geta nú heldur betur tekið gleði sína eftir að sálfræðiprófessorinn Joseph Forgas við Háskólann í New South Wales í Ástralíu komst að þeirri niðurstöðu að fólk í vondu skapi tekur betur eftir umhverfi sínu og hugsar á mun gagnrýnni hátt en við sem önum gegnum daginn á bleiku skýi með heimskulegt glott.
Ljúflingarnir búa reyndar að jafnaði yfir meiri sköpunargáfu og eru samvinnuþýðari og almennt sveigjanlegri en hver hefur áhuga á svoleiðis fólki? Og hvernig rannsaka sálfræðingar svona lagað? Forgas og samstarfsfólk hans kom hópi fólks í ömurlegt skap með því að láta það horfa á leiðinlegar kvikmyndir og rifja upp verstu augnablik ævi sinnar.
Þegar þessi hópur var svo borinn saman við annan og hressari hóp kom í ljós að fúli hópurinn hrapaði síður að vafasömum ályktunum og lét fordóma síður afvegaleiða sig við ákvarðanatöku. Hrygga fólkið varð meira að segja mun pennafærara en ella í hryggð sinni og setti fram lipran texta með góðum rökstuðningi.
Þá reyndust neikvæðar hugsanir stórbæta minni fólks líka. Rannsóknin er kynnt í nýjasta tölublaði Australian Science og nú skulum við bara muna það að lífið er ömurlegt. Þá gengur allt miklu betur.
.
.
31.10.2009 | 17:14
Frábær dagur !
.
.
Ef ég væri ekki ég, myndi ég stóröfunda mig !
Á næstu klukkustundum mun ég snæða gómsæta fiskisúpu eiginmannsins, horfa á Man. United gjörsigra Blackburn, fá góða vini í heimsókn, súpa á tveimur bjórum og spila nokkur spil.
Það gerist ekki betra.
.
25.10.2009 | 09:48
Æfingar næturinnar.
Minn nýbakaði vaknaði í nótt og leit á mig:
Hendur mínar vísuðu beint upp í loftið.
Þannig lá ég í dágóða stund.
Þá sigu þær uns handarbökin námu við höku....
Hendurnar færðust síðan rólega niður að bringu.....
og með mjúkum hreyfingum (býst ég við) færðust þær síðan aftur fyrir hnakka.
.
.
Ég nota dauða tímann, á meðan ég sef og fer í leikfimi !
.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
22.10.2009 | 12:12
Opið bréf til Vinnumálastofnunar.
Vinnumálastofnun,
Stéttarfélag Vesturlands,
Félagsmálaráðherra.
Alla mína starfsævi hef ég lagt metnað í að standa mig vel í vinnu, vera dugleg og mæta vel. Hef jafnvel mætt þótt ég sé lasin eða með hönd í fatla, ef illa stendur á fyrir vinnuveitandann að missa mig. Enda hef ég góð meðmæli frá öllum mínum vinnuveitendum.
Jafnframt hef ég haft þá persónulegu reglu að ef ég get ekki hlakkað til að mæta í vinnuna, þá segi ég upp og finn mér eitthvað annað að gera. Það gerði ég í vor og hætti störfum 1. september s.l.
Strax þá, tjáði ég Vinnumálastofnun að ég hyggðist vera í sumarfríi í september, enda var ég að fara að gifta mig með tilheyrandi undirbúningi og brúðkaupsferð en það hafði verið ákveðið fyrir kreppu.
Þar sem ég segi sjálf upp störfum á ég ekki rétt á atvinnuleysisbótum í næstum tvo mánuði og það vissi ég. Taldi að ég hefði þá tíma til októberloka til að reyna að finna mér vinnu eða huga að stofnun eigin fyrirtækis.
En nei !
Ég kom heim þann 4. október og þá biðu mín nokkur bréf frá Vinnumálastofnun.
- Boðun á bókhaldsnámskeið (ég hef Samvinnuskólapróf og hef unnið sem bókari, ritari, gjaldkeri og skrifstofustjóri, alls í 25 ár, þannig að ég hef litla þörf fyrir slíkt námskeið.)
- Boðun í starfsviðtal, heimaaðhlynning. (með dagssetningu sem var liðin þegar ég kom heim)
- Ákvörðun um frestun greiðslu atvinnuleysisbóta (ég taldi ekki að ég hefði óskað eftir atvinnuleysisbótum fyrr en að loknum biðtíma, hvort eð er) og ástæða fyrrum vinnuveitanda fyrir uppsögn minni. (og tilgreind röng ástæða, byggð á kjaftasögum)
- Boðun á Excel námskeið fyrir byrjendur !
En þetta var bara fyrsta vers.
9. október fæ ég bréf sem inniheldur setninguna Þar sem upplýsingar frá þér um ástæður starfslokanna bárust ekki..... Rangt ! Ég var búin að senda þeim skriflegt svar þann 5. okt. í tölvupósti.
13. október kemur bréf... Það er mat Vinnumálastofnunar að skýringar þínar á ástæðum starfslokanna teljast ekki gildar (bíddu, bíddu, eru þeir að segja að ég sé að segja ósatt? Nei, eftirgrennslan leiddi í ljós að þetta þýddi engar bætur á lögbundnum biðtíma - sem ég vissi nú alveg sjálf.)
15. október..... tvö bréf..... Boðun í starfsviðtal, vinnutími aðra hvora viku til 18.30 og aðra hvora helgi. (Hef ég ekkert um það að segja lengur hvað ég vil starfa og hvort ég vil vinna kvöld og helgarvinnu?) og bréf þar sem ég er beðin um að skýra 7.300 króna tekjur sem fram komu við samkeyrslu tölvugagna Vinnumálastofnunar og Ríkisskattstjóra en ég hafði ekki tekið fram, þegar ég skilaði inn áætlun um tekjur. (Þessar tekjur voru vegna þátttöku í nefnd á vegum bæjarins, nefnd sem búið er að leggja niður þannig að þaðan var ekki frekari greiðslna að vænta).
.
Nú hef ég verið atvinnuleitandi í tæpar 3 vikur og á þeim tíma hef ég fengið 8 bréf frá Vinnumálastofnun..... og ég er ekki einu sinni byrjuð á atvinnuleysisbótum !.
.
Ekkert tillit er tekið til menntunar eða fyrri starfa minna, við boðanir á námskeið.
Aldrei hef ég verið spurð hvort einhver tiltekinn vinnutími eða starf henti mér ekki.
Er ég orðin eign Vinnumálastofnunar og getur stofnunin ráðstafað mér að vild ?
Mér líður eins og fanga á skilorði.
.
Mig langaði bara að benda ykkur hjá Vinnumálastofnun á, að þessi vinnubrögð gagnvart skjólstæðingum ykkar, gera hvern meðalmann þunglyndan á mettíma..
Og til að forðast það að ég lendi í þeim farvegi, afþakka ég hér með öll afskipti ykkar af mínu lífi og bið um afskráningu hjá Vinnumálastofnun.
Ég er stolt og hef lagt allt kapp á að sjá fyrir mér sjálf, frá því ég var 16 ára.
Það mun ég gera núna líka, einhvern veginn.
Jafnframt bið ég ykkur að íhuga að atvinnuleysið á Íslandi er ekki fólkinu á atvinnuleysisbótum að kenna.
Sýnið fólki lágmarks virðingu.
Borgarnesi, 22. október 2009
Anna Einarsdóttir
Mannréttindi | Breytt s.d. kl. 12:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (32)
Um bloggið
Sparisjóður grínista og nágrennis.
Eldri færslur
- Febrúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
Gíslína Erlendsdóttir
-
Brattur
-
Ragnheiður
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Hugarfluga
-
Halldór Egill Guðnason
-
Sæmundur Bjarnason
-
Brjánn Guðjónsson
-
Gulli litli
-
Ingibjörg Friðriksdóttir
-
Marinó G. Njálsson
-
Svanur Gísli Þorkelsson
-
Þorsteinn Sverrisson
-
Árni Gunnarsson
-
Bergljót Hreinsdóttir
-
Finnur Bárðarson
-
Bjarni Harðarson
-
Ingibjörg Hinriksdóttir
-
Steingrímur Helgason
-
Guðni Már Henningsson
-
Íris Guðmundsdóttir
-
Edda Agnarsdóttir
-
Rannveig Guðmundsdóttir
-
Kristjana Bjarnadóttir
-
Erna Bjarnadóttir
-
Þorsteinn Valur Baldvinsson
-
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir
-
Haraldur Sigurðsson
-
Ásgeir Kristinn Lárusson
-
Daði Ingólfsson
-
Óskar Þorkelsson
-
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir
-
Egill Bjarnason
-
Sigurður Grétar Guðmundsson
-
Kát Svínleifs
-
Einar Indriðason
-
arnar valgeirsson
-
Kama Sutra
-
hilmar jónsson
-
Eiður Svanberg Guðnason
-
AK-72
-
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir
-
Dísa Dóra
-
Sigurður Einarsson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Jóhannes Guðnason
-
Brynjar Jóhannsson
-
Jón Steinar Ragnarsson
-
Magga tagga
-
Fanney Björg Karlsdóttir
-
Tófulöpp
-
Valgeir Skagfjörð
-
kop
-
Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir
-
Björgvin R. Leifsson
-
Gunnar Helgi Eysteinsson
-
Svanhildur Karlsdóttir
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Aprílrós
-
Guðrún Björk
-
Guðmundur Óli Scheving
-
Helgi Jóhann Hauksson
-
Katan
-
Páll Rúnar Elíson
-
Þórir Aðalsteinsson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Kristín Snorradóttir
-
Þorsteinn Briem
-
Gunnar Níelsson
-
Jón Ólafur Vilhjálmsson
-
Helga Guðrún Eiríksdóttir
-
Bjarni Sæmundsson
-
Heiða B. Heiðars
-
Þórdís tinna
-
Eva Hrönn Jóhannsdóttir
-
Jóhannes Freyr Stefánsson
-
kloi
-
Bjarndís Helena Mitchell
-
Ragnar Gunnarsson
-
Brynja skordal
-
Vefritid
-
Tryggvi Gunnar Hansen
-
Árelía Eydís Guðmundsdóttir
-
Garún
-
Hörður B Hjartarson
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Enski boltinn
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Pepsi-deildin
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Tónlist
- Trúmál
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði