Færsluflokkur: Spil og leikir

Komin út úr skápnum.

 

 

 

Ég hef bloggað í hálft ár.  Hingað til hef ég haft tveggja ára gamlar myndir af mér í höfundarboxi.  Það var með vilja gert.  Vildi kynnast þessu samfélagi bloggara, áður en ég ætti á hættu að fólk þekkti mig úti í búð eða á götu. 

.

Eftir 6 mánaða veru hérna, hef ég komist að þeirri niðurstöðu að þið, bloggvinir mínir, eruð upp til hópa gott og frábært fólk.  Smile  Þessvegna hef ég sett inn nýja mynd af mér.... u.þ.b. 10 mínútna gamla og nú er því ekkert til fyrirstöðu að þið rjúkið á mig í Bónus og knúsið mig eins og aldagamla vinkonu.

.

Ég er farin út í búð !  LoL

pssssssst..... muna að styrkja Gillí frænku mína, elskurnar.  Sjá næstu færslu.

.

 

Einn..... tveir....... og ............ þrír !  Hér kem ég.  Wink

.

 

Albúm 001

 

 


Láttu gott af þér leiða.

 

Þeir sem hafa fylgst með blogginu mínu í langan tíma, vita að ég á frænku sem er með "ólæknandi" krabbamein.  Gillí frænka er ótrúleg kona.  Hún er svo dugleg að það er næstum því ekki fyndið.LoL    

Hún ætlar og skal, sigrast á þessu meini.  Í september fer hún til Bretlands að heimsækja Matthew Manning, breskan heilara, sem getið hefur sér gott orð fyrir að hjálpa veiku fólki...........    www.matthewmanning.com

 

 

g_st_2007_030_sized 

 

Hér er Gillí með barnabörnunum á splunkunýrri mynd.   Ég hnuplaði myndinni frá henni í skjóli nætur og hún hefur ekki hugmynd um hvað ég er að bralla hérna.  Joyful 

 

Kerfið okkar íslenska, býður langveiku fólki ekki upp á digra sjóði til að spila úr.  Þessvegna hefur verið stofnaður styrktarreikningur fyrir Gillí.  Hún vill sjálf bara að fyrirtæki styrki hana.... en mér finnst eiginlega, að það sé sama hvaðan gott kemur.  Wink

 

Þessvegna bið ég ykkur, kæru bloggvinir..... að leggja þúsundkall eða tvo inn á þennan reikning

kt. 120161-5559
nr: 513-14-607627

 

og sleppa því að panta pizzu um helgina,  ha !  InLove

 

ÁSTARÞAKKIR !

 

 


Dratthalar og drullusokkar.

 

Þeir settu eitthvað í drykkinn minn, held ég.  Angry

Ég var stödd á skemmtistað í Reykjavík og var að dansa.  Hafði drukkið 3 bjóra allt kvöldið. Lagði bjórinn minn á borð hjá útlendingum, eins og kjáni.  Við sveitastúlkurnar erum saklausar fram eftir öllu.  En ég er það ekki lengur.

 

Eftir dansinn tók ég glasið og fékk mér sopa.  Og líklega annan.  Eins og hendi væri veifað,  varð mér illt og allt fór að verða eins og í móðu.  Ég,, snögg eins og engispretta, hljóp út og stakk fingri ofan í kok og ældi eins og ég gat ofan í næsta niðurfall.  Sick   Man að sú hugsun hvarflaði að mér,  að ég væri ekki vænlegt fórnarlamb nauðgara, meðan ég væri ælandi.  Sick   Um leið og ég hætti að kasta upp, flýtti ég mér á Bæjarins bestu og fékk mér að borða.... og hringdi í systur mína og bað hana að sækja mig.  Hún sagði að ég hefði virkað "blindfull".  

 

Auðvitað hef ég enga sönnun fyrir einu né neinu.  Veit bara að 3 bjórar hafa, hvorki fyrr né síðar, valdið mér svona lasleika.  Þessvegna datt mér í hug að einhverju drasli hefði verið laumað í glasið mitt, meðan ég var að dansa ?  Og að það, hversu hratt mér tókst að losa mig við sumt af því í ræsið... hafi bjargað mér.  Veit ekki ? 

 

Lestu Heiðu vinkonu af blogginu, ef þig langar að fræðast um ólyfjan í glösum kvenna. 

http://skessa.blog.is/blog/skessa/entry/147986/

 

 


Þetta er algjör grís.

 

Svin

Hrín hátt í svíni 

með fína trýnið

Hlýnar sá fíni

við skínandi línið

.

en mín er að grínast.  LoL

 


Þegar ég var ung og vitlaus....

 

Skrásetning æskuminninga áður en þær falla í gleymsku.........

 -------------------

-Fékk lánaða regnhlíf systur minnar, sem hún hafði fengið í jólagjöf, örstuttu áður.  Það var rok og ein hviðan reif af mér regnhlífina og hún hvarf út í buskann á ógnarhraða.

Þá uppgötvaði ég í fyrsta skipti að sumt hverfur og kemur aldrei aftur. 

-------------------- 

-Það var íþróttamót á Breiðabliki.  Kúluvarparinn kastaði kúlunni eitthvað ónákvæmt.  Hún lenti í höfðinu á bróður hans pabba.  Ég man rosalega mikið blóð.

Þá uppgötvaði ég í fyrsta skipti að fullorðnir menn geta líka fellt tár.

--------------------- 

-Pabbi var búinn að breyta ryksugumótor í smergel.  Hann var alltaf að finna eitthvað upp.  Síðan fór hann að sýna þetta undratæki.  Smergelskífan fór af og tók þumalfingurinn af pabba.  Aftur mikið blóð.

Þá gerðist ég fréttakona...... hljóp á næstu bæi og gólaði: "pabbi missti putta, pabbi missti putta" !

---------------------- 

-Það var dansleikur á Breiðabliki.  Hljómsveitin Stykk.  Ég var 11 ára gömul og bróðir minn 12 og vinkona mín, 11 ára var líka með okkur.  Okkur langaði á ball en gátum ekki spurt, því það var enginn heima.  Svo við fórum bara...   Grin .....á puttanum.  

Á ballinu sá ég frænku mína í sleik við einhvern strák.  Ojj barasta. 

---------------------- 

-Við vorum með eitt allsherjar búó í Dal.  Kofa, potta og pönnur, vegi og bíla, felgu sem við notuðum sem klósett...... allt til alls.  Þangað til pabbi kom einu sinni, vippaði felgunni upp á öxlina og gekk með hana í burtu.

Þá kom skrítinn svipur á okkur krakkana.  LoL

----------------------- 

-Afi hjó hausinn af hananum og haninn hljóp út um allt, hauslaus.

Það var rosalegt.

----------------------- 

-Við vorum í grunnskólanum.  Frænka mín fullyrti að ég kæmist ekki ofan í skúffu sem var í botni skáps.  Ég hélt nú það.  Skreið ofan í skúffuna og hún renndi skúffunni inn og lokaði skápnum pent. 

Þarna uppgötvaði ég að ég gat verið vitlaus.  Grin

------------------------ 

-Amma gaf okkur "kaffi sykur brauð og mjólk" en afi gaf okkur í nefið frá 7 ára aldri.

Þetta var fyrir tíma ESB samningsins.  Wink

------------------------ 

 Svona var nú lífið í gamla daga.   Joyful

.

Já...... og nú er ég bara ung og ekkert vitlaus... eða þannig. 

 

 


Vangaði strák með hor.

 

Þegar ég var lítil,, þá var ég lítil....... ,minnst í bekknum. 

 

Á jólaskemmtunum í gegnum allan grunnskólann lék ég Stúf. 

.

Stúfur hét sá þriðji                                                  getimage

stubburinn sá

hann krækti sér í pönnu

þegar kostur var á

.

Eins og maður muni þetta ekki !  GetLost

.

Ég var alltaf höfðinu minni en frænka mín sem var TVEIMUR DÖGUM YNGRI.  GetLost  Það þótti lítilli stúlku vera stórt svindl.

.

Í bensínskúrnum hjá pabba, fór ég að vinna þegar ég var 9 ára gömul.  Það kom iðulega fyrir að menn leituðu að bensínafgreiðslumanninum,, horfðu framhjá mér.  Þegar ég spurði minni barnalegu röddu: "FYLLA"?, Happy .... Þá horfðu menn á mig með vantrú í augunum.... litu svo hver á annan..... og litu svo undan.  Stundum sá ég axlirnar hristast.  Það er ekki eins og maður sé heimskur þótt maður sé lítill !

.

Mamma sparaði líklega stórfé þegar hún saumaði á mig fötin... þurfti svo lítið efni.  Smile

.

Síðan var ég líka seinþroska.  Enginn strákur vildi vanga við mig, fyrr en ég var komin í níunda bekk.... og þá var það yngri strákur með hor.

Og svo seinþroska var ég, að þegar ég loksins byrjaði á blæðingum, hoppaði ég og dansaði af gleði.  LoL  Loksins loksins....... ég er orðin eins og hinar stelpurnar.  Húrra og jibbíjei. Wizard 

Hef ekki heyrt að aðrar stúlkur hafi fyllst þvílíkum fögnuði yfir þessum ófögnuði.  Wink

.

Um 15 ára aldur fór "Anna Sigga litla mín", eins og amma kallaði mig stundum, loks að stækka.  Hún stækkaði og stækkaði og varð 167 sentimetrar á hæð.

Svo telur hún sjálfri sér trú um það núna að seinþroska stelpur endist bara lengur.... ha... Smile .... hvað svo sem hún meinar nú með því ? 

.

Margur er knár þótt hann sé smár frameftir öllu og betra er seint en aldrei líka.

 

 

 

 

 


Mýsla sundríður froski berbakt.

 

060705-mouse-frog_big

 .

.

Þessi froskur er ekki eins útsmoginn og froskurinn sem kallaði til prinsessunnar:

Gvabikk gvabikk, kysstu mig kysstu mig !  Ég er fagur ungur prins en vonda nornin hefur breytt mér í frosk.

Prinsessan kyssti froskinn en ekkert gerðist.

Fyrsti apríl, fyrsti apríl,  æpti froskurinn og hoppaði burt.


Tárin hrynja sem foss.

 

Senn dimmir hér skerinu á

og svanirnir fljúga á brott

Króknuð og köld verður þá

kinn mín, það er ekki gott

.

svanir

.

Ég engan get yljað mér við

er alein með ískaldar tær

Í hjarta mér hef engan frið

hjálpið mér, komið þið nær

.

alone

.

Ef tilfinningar mínar tjái ég hátt

og tárin hrynja sem foss.........

 ------------------

 ------------------

-------------------

-------------------

þá opnið þið munninn upp á gátt  Grin

því ég er að grínast,,  koss.  Kissing

.

brilliant


Vont þegar það góða er lagt niður.

 

Ég er alin upp við harmonikkutónlist.  Pabbi var sko hljómsveitargæi.  Smile 

.

harmonikka

.

Í grunnskólanum heima var enginn íþróttasalur þegar ég var yngri.  Því var okkur krökkunum kennt að dansa gömlu dansana.  Það var hægt í venjulegri skólastofu.

Mér finnst fátt skemmtilegra en að dansa, við góðan dansherra, almennilegan hraðan polka.  Snúast í hringi þar til allt hringsnýst fyrir augunum á mér.  Þá er gaman.  Grin

Ég hef af því áhyggjur að harmonikkutónlist og góðir dansherrar séu að verða liðin tíð.

Síðast komst ég í gömlu dansana á þorrablóti fyrir 3 árum.  Alltof langt síðan !  Frown

Mér finnst hundfúlt þegar eitthvað sem er gott og skemmtilegt, hættir.

Nú vil ég almennilegt harmonikkuball og góða dansherra, borða kjötbúðing með grænmeti í og drekka Sinalco og borða bláan Opal á eftir.  Þetta á að gerast á fimmtudegi sem verður sjónvarpslaus.  Smile

Það er í lagi að láta sig dreyma.

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Sparisjóður grínista og nágrennis.

 

Anna Einarsdóttir
Anna Einarsdóttir

  

Af gefnu tilefni skal það tekið fram, að allt sem ég skrái á þessa síðu er vel meint, þótt það á köflum geti hljómað eins og illa meint,, þá er það alls ekki þannig meint. 

Bankahólfið

Alltaf á Toppnum....

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.8.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Bloggvinir

Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband